Háskólar falla á prófi í samkeppnisrétti Ólafur Stephensen skrifar 1. júní 2026 17:03 Háskólum, sem þiggja fjárframlög úr sjóðum skattgreiðenda en reka jafnframt sí- og endurmenntunardeildir í samkeppni við önnur fræðslufyrirtæki, ber að halda samkeppnisrekstrinum aðskildum frá hinum ríkisstyrkta rekstri, með vísan til 14. greinar samkeppnislaga, sem kveður á um að samkeppnisrekstur skuli ekki niðurgreiddur af starfsemi sem nýtur einkaleyfis eða verndar. Samkeppniseftirlitinu er samkvæmt lögunum heimilt að mæla fyrir um fjárhagslegan aðskilnað af þessu tagi. Tilmæli sem engu skiluðu ... Félag atvinnurekenda hefur, í þágu félagsmanna sinna í fræðslu- og símenntunargeiranum, staðið í áralöngu stappi til að tryggja að háskólarnir haldi samkeppnisrekstrinum raunverulega aðskildum frá hinum ríkisstyrkta rekstri. Samkeppniseftirlitið (SKE) sendi árið 2021, í framhaldi af kvörtun FA, tilmæli á menntamálaráðuneytið, sem þá fór með málefni háskóla, og fór fram á að þess yrði farið á leit við háskólana að þeir birtu opinberlega upplýsingar um fjárhagslegan aðskilnað endurmenntunarstarfsemi frá öðrum rekstri. „Að mati Samkeppniseftirlitsins er eðlilegt að fagráðuneyti málaflokksins geri kröfu um þetta í samhengi við fjárveitingar til viðkomandi skóla,“ sagði í bréfi SKE. Skemmst er frá því að segja að háskólarnir gerðu ekkert með þessi tilmæli. FA fylgdi málinu eftir, með þeim árangri að í desember síðastliðnum gaf SKE, að beiðni menningar-, háskóla- og nýsköpunarráðuneytisins, út skýrar leiðbeiningar til skólanna um hvernig standa skuli að fjárhagslegum aðskilnaði. Með bréfum, sem send voru á alla háskólana 9.-12. janúar sl., fór ráðuneytið þess á leit að þeir færu að leiðbeiningum SKE og jafnframt leiðbeiningum fjármálaráðuneytisins um fjárhagslegan aðskilnað samkeppnisrekstrar frá 1997, sem SKE hefur staðfest að séu í fullu gildi. ... og þá komu skýrar leiðbeiningar Í leiðbeiningum SKE er m.a. útlistað að með fjárhagslegum aðskilnaði í skilningi 14. gr. samkeppnislaga sé „að lágmarki átt við algeran bókhaldslegan aðskilnað milli annars vegar þess hluta rekstrar fyrirtækis eða stofnunar, sem lagagreinin tekur til, sem nýtur einkaréttar eða hvers konar opinberra fjárframlaga, og hins vegar þess hluta rekstrar sem er í samkeppni við aðra aðila.“ (Leturbreyting greinarhöfundar) Með slíkum aðskilnaði er, að sögn SKE, átt við að rekstrartekjur og gjöld, og eftir atvikum eignir og skuldir, samkeppnisrekstrar, séu bókfærðar sjálfstætt og haldið aðgreindum frá bókfærðum rekstri og efnahag verndaðs rekstrar sama aðila. „Þannig skulu allar tekjur og öll gjöld, bein og óbein sem og föst og breytileg, sem tilheyra samkeppnisrekstrinum bókfærð á þann hluta rekstursins ásamt hlutdeild í sameiginlegum kostnaði, s.s. húsnæðiskostnaði, skrifstofuhaldi, launum starfsfólks, yfirstjórn o.þ.h. Þá er einnig gert ráð fyrir að efnahag, þ.e. eignum og skuldum sem með beinum hætti tengjast samkeppnisrekstrinum, sé haldið sérstaklega til haga í bókhaldi. Með fjárhagslegum aðskilnaði eins og honum er hér lýst er reynt að tryggja að samkeppnisrekstur sé ekki niðurgreiddur með fé frá verndaðri starfsemi sem meðal annars nýtur opinberra fjárframlaga,“ segir í leiðbeiningum SKE. Háskólinn í Reykjavík: Autt blað. HÍ og HA: Mikið vantar upp á Í framhaldi af þessu sendi FA þremur háskólum, sem reka endurmenntunardeildir, erindi í janúar sl. og óskaði svara um hvenær og hvernig yrði farið eftir leiðbeiningum SKE. Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri svöruðu því til að það yrði gert fljótlega með opinberri birtingu fjárhagsupplýsinga. Háskólinn í Reykjavík brást ekki við ítrekuðum erindum FA fyrr en í dag og hefur ekki birt neinar upplýsingar um fjárhagslega aðskilnaðinn. HÍ og HA hafa birt upplýsingar; HÍ stutt fjárhagsyfirlit á einni síðu í starfsemisskýrslu Endurmenntunar HÍ (EHÍ) 2025 og HA birtir á vef Símenntunar HA tveggja blaðsíðna ársreikning fyrir árið 2025. Óhætt er að segja að hvort tveggja valdi miklum vonbrigðum og uppfylli engan veginn kröfur leiðbeininga SKE og fjármálaráðuneytisins. HÍ: Enginn efnahagsreikningur, lítið gagnsæi Enginn efnahagsreikningur Endurmenntunar HÍ er birtur og er því engin leið að sannreyna raunverulega eiginfjárstöðu EHÍ, eignir eða skuldir gagnvart móðurstofnuninni. Án efnahagsreiknings er ekki hægt að útiloka að eignir eða tæki, sem nýtt eru í samkeppnisrekstri, séu eignfærð og afskrifuð í aðalbókhaldi HÍ á kostnað ríkissjóðs, eða að EHÍ njóti óbeinnar fjármögnunar eða vaxtalausra lánsreikninga frá háskólanum. Þessi framsetning kemur því í veg fyrir það gagnsæi sem lögum er ætlað að tryggja og Samkeppniseftirlitið hefur ítrekað að sé forsenda þess að kvaðir um fjárhagslegan aðskilnað teljist uppfylltar. FA hefur bent HÍ á að sameiginlegum kostnaði móðurstofnunar og samkeppnisdeildar, t.d. vegna húsnæðis, tölvukerfa, stjórnsýslu og stoðþjónustu, verði að skipta á grundvelli fulls kostnaðar og öll innri viðskipti skuli verðlögð á markaðskjörum samkvæmt leiðbeiningum fjármálaráðuneytisins. Í hinu birta rekstraryfirliti EHÍ 2025 er ekkert gagnsæi um þessa skiptingu. Engir kostnaðarskiptingarlyklar eru birtir eða skýringar um hvernig greitt er fyrir afnot EHÍ af fasteignum HÍ, kerfum eða stjórnunarþjónustu. Sömuleiðis liggur ekki fyrir hvort vinna við kennslu fastráðinna kennara HÍ sé að fullu gjaldfærð á markaðsvirði hjá EHÍ. Þá er bent á óútskýrða ,,uppsafnaða stöðu“ gagnvart Háskóla Íslands upp á 171 milljón króna og mikið bókfært tap vegna tekjufrestunar, sem sýnir að fjárhagur EHÍ og HÍ er enn samofinn. Þetta vekur allt ríkar grunsemdir um að krossniðurgreiðslur eigi sér stað úr ríkissjóði. HA: Engar skýringar og óljósar reikningsskilaaðferðir Í tilviki Háskólans á Akureyri er birting fjárhagsupplýsinga í betra horfi en hjá HÍ að því leyti að birtur er ársreikningur fyrir Símenntun HA árið 2025 á vef stofnunarinnar, með bæði rekstrar- og efnahagsreikningi. Engar skýringar eru hins vegar með reikningnum. FA bendir í erindi til HA m.a. á að allar eignir Símenntunar felist í „viðskiptareikningi við HA“, rúmlega 23 milljóna króna óútskýrðri kröfu á móðurstofnunina. Þegar bókstaflega 100% af öllum skráðum eignum Símenntunar HA (23,2 milljónir króna) eru bundnar á einum ótilgreindum viðskiptareikningi við háskólann sjálfan, er ljóst að fjárhagur deildarinnar er í reynd að verulegu leyti samrunninn háskólanum. Án nokkurra skriflegra skýringa í ársreikningnum ermeð öllu ómögulegt að sannreyna á hvaða kjörum háskólinn heldur þessum fjármunum Símenntunar HA og hvort greiddir séu eðlilegir markaðsvextir af þeirri stöðu. Þetta ógagnsæi kemur í veg fyrir að hægt sé að útiloka ólögmætar krossniðurgreiðslur og stendur beinlínis í vegi fyrir þeim fjárhagslega aðskilnaði sem lögum er ætlað að tryggja. Félagið hefur sömuleiðis bent HA á að samkvæmt leiðbeiningum fjármálaráðuneytisins verði reikningsskil samkeppnisdeildar að innihalda skýrar lýsingar á reikningsskilaaðferðum og þeim lyklum sem notaðir eru til að deila sameiginlegum kostnaði. Ársreikninginn skortir slíkt. Án þessara upplýsinga er utanaðkomandi aðilum ókleift að meta hvort verðlagning Símenntunar á námskeiðum standi undir raunverulegum fullum kostnaði við reksturinn, eða hvort reksturinn sé niðurgreiddur með ríkisframlögum sem háskólanum eru ætluð til lögboðinna verkefna samkvæmt þjónustusamningi við ráðuneyti háskólamála. Skilar þekking lögfræðideildanna sér ekki til yfirstjórnarinnar? Það hlýtur að vera mikið umhugsunarefni að háskólarnir okkar, sem eiga að vera miðstöðvar þekkingar og vera til fyrirmyndar, meðal annars í umgengni við lög og fyrirmæli stjórnvalda, skuli standa sig jafnilla í þessu verkefni og raun ber vitni. Nú reka HÍ, HR og HA allir bæði lögfræði- og viðskiptafræðideildir og hafa á að skipa færustu sérfræðingum á sviði samkeppnisréttar og reikningsskila. Allir skólarnir ættu að geta nýtt þá ríku innanhússþekkingu, sem þeir búa yfir, til að tryggja að samkeppnisstarfsemi þeirra uppfylli lögbundnar kröfur og skaði ekki keppinauta þeirra á frjálsum markaði, fræðslufyrirtæki sem ekki fá nein framlög úr ríkissjóði. Höfundur er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Háskólar Ólafur Stephensen Mest lesið Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már V. Skoðun Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun Ofveiðin í ESB fyrir 500 árum Sigurjón Þórðarson Skoðun Pílagrímaganga fyrir líkama og sál Sr. Arna Grétarsdóttir Skoðun Getum við gert betur fyrir íslensk heimili? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Lögreglan auglýsir eftir vilja löggjafans Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Að þýða texta er ekki það sama og að búa til námsefni Bogi Ragnarsson Skoðun Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson Skoðun Hatursorðræða á ekki heima í íþrótta- og æskulýðsstarfi Þóra Sigfríður Einarsdóttir,Kristín Skjaldardóttir,Eygló Ósk Gústafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már V. skrifar Skoðun Að þýða texta er ekki það sama og að búa til námsefni Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Ólafur Ragnar Grímsson og Cherry-picking Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Pílagrímaganga fyrir líkama og sál Sr. Arna Grétarsdóttir skrifar Skoðun Hatursorðræða á ekki heima í íþrótta- og æskulýðsstarfi Þóra Sigfríður Einarsdóttir,Kristín Skjaldardóttir,Eygló Ósk Gústafsdóttir skrifar Skoðun Lögreglan auglýsir eftir vilja löggjafans Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson skrifar Skoðun Kveðum niður gyðingahatur Guðmundur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson skrifar Skoðun Hvalfjarðarsveit kallar eftir samtali við Vegagerðina um umferðaröryggi Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Tæknin kemur hratt - en ávinningurinn ekki sjálfkrafa Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Óafsakanlegt, en ekki óleysanlegt Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ofveiðin í ESB fyrir 500 árum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Getum við gert betur fyrir íslensk heimili? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun FIFA skapar nýja skúrka Bragi V. Bergmann skrifar Skoðun Vangaveltur Hörður Torfason skrifar Skoðun Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur Eiríkur Ragnarsson skrifar Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Temu-pakkar JP Zimsen eða alvöru hagsmunir Íslands Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Bless tollfrjálsu Temu, Shein og Alibaba Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun En stelirðu miklu... Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Menntun fyrir mennsku Fanney Dóróthe Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ekki má draga víðtækar ályktanir af veikum gögnum Helga Rósa Másdóttir,Steinunn Þórðadóttir skrifar Skoðun Krónuskatturinn á kynslóðirnar: mesti skattur Íslandssögunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir Daníel Ágúst Gautason skrifar Skoðun Minnir á kafla úr bók Franz Kafka Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Kannski erum við að spyrja rangra spurninga Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun „Að deila og drottna“ - hugleiðingar miðaldra konu að kvöldlagi Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Þegar maður gengur gegn eigin gildum Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun
Hatursorðræða á ekki heima í íþrótta- og æskulýðsstarfi Þóra Sigfríður Einarsdóttir,Kristín Skjaldardóttir,Eygló Ósk Gústafsdóttir Skoðun
Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már V. skrifar
Skoðun Hatursorðræða á ekki heima í íþrótta- og æskulýðsstarfi Þóra Sigfríður Einarsdóttir,Kristín Skjaldardóttir,Eygló Ósk Gústafsdóttir skrifar
Skoðun Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson skrifar
Skoðun Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson skrifar
Skoðun Hvalfjarðarsveit kallar eftir samtali við Vegagerðina um umferðaröryggi Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar
Skoðun Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur Eiríkur Ragnarsson skrifar
Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson skrifar
Skoðun Ekki má draga víðtækar ályktanir af veikum gögnum Helga Rósa Másdóttir,Steinunn Þórðadóttir skrifar
Skoðun „Að deila og drottna“ - hugleiðingar miðaldra konu að kvöldlagi Ingibjörg Einarsdóttir skrifar
Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun
Hatursorðræða á ekki heima í íþrótta- og æskulýðsstarfi Þóra Sigfríður Einarsdóttir,Kristín Skjaldardóttir,Eygló Ósk Gústafsdóttir Skoðun