Hvað ertu hræddur við, Jón Pétur Zimsen? Óðinn Freyr Baldursson skrifar 1. júní 2026 09:32 Þegar rök eru á þrotum þá grípur maður í þvælu. Þetta er augljóst í grein Jóns Péturs Zimsen þar sem hann hálfpartinn svarar grein minni um evrópskan her. Eitt verð ég þó að hrósa honum fyrir, titillinn “Hermenn Viðreisnar" er bæði fyndinn og sniðugur. Byrjum á því að gera upp mistök mín. Í minni grein kallaði ég Andrius Kubilius “þingmann" en ekki varnarmálastjóra. Mín mistök og ég biðst velvirðingar á þeim. En eftir situr fremur innihaldslaus grein frá háttvirtum þingmann, sem í raun og veru sannar mitt mál frekar en hans. Jón Pétur eyðir stórum hluta greinar sinnar í að telja upp forystumenn sem hafa lýst yfir stuðningi við evrópskan her: von der Leyen, Juncker, Merkel, Macron, Sánchez, Strack Zimmermann, Verhofstadt. Hér liggur samt vandinn, það var aldrei deiluefnið. Ég sagði sjálfur að hugmyndin eigi sér áhrifamikla talsmenn en að hún sé ekki samþykkt stefna sambandsins. Það er einmitt aðgreiningin sem öll grein mín snerist um. Háttvirtur þingmaður hefur því eytt heilli grein í að lengja lista yfir stuðningsmenn hugmyndar. Hann hefur samt ekki fært fram eina einustu samþykkt, eina einustu bindandi ákvörðun né einn einasta sáttmála sem segir að ESB her sé á dagskrá. Það er einföld ástæða fyrir því: það er ekki til nein samþykkt, ákvörðun né sáttmáli. Listi yfir fólk sem vill eitthvað er ekki það sama og ákvörðun um að gera það. Þennan greinarmun þekkjum við vel úr íslenskum stjórnmálum. Sterkasta dæmið um þetta er reyndar að finna í hans eigin grein. Jón Pétur bendir á að ESB hafi þegar viðbragðssveitir undir eigin fána, eins og það sé sönnun þess að sambandsher sé í smíðum. En þessar sveitir hafa verið til frá árinu 2007. Á þeim tæpu tuttugu árum, nánast alla mína ævi, hafa þær aldrei, ekki einu sinni, verið sendar í hernaðaraðgerð. Þrátt fyrir að aðstæður hafi ítrekað kallað eftir hraðri evrópskri viðbragðsaðgerð: Kongó 2006 & 2008, Chad 2007 og í Líbýu 2011, náðist ekki samstaða aðildarríkja, eða þau völdu að setja saman aðrar sérsmíðaðar herdeildir frekar en að nota sveitirnar sem byggðar voru upp einmitt í þessum tilgangi. Þetta er ekki sönnun þess að sambandsher sé á leiðinni, heldur fyrir nákvæmlega þeirri reglu sem ég lýsti: fullveldi ríkjanna stöðvar þetta í reynd, sama hversu mikið einstakir forystumenn vilja annað. Eftir stendur svo það sem Jón Pétur hefur enn ekki svarað. Ég benti á að hann reiðir sig á varnartryggingu Bandaríkjanna sem hann viðurkennir sjálfur í sömu grein að sé að breytast. Hann svarar því til að lega Íslands geri stöðu okkar aðra en annarra Evrópuríkja. Það má vel vera þegar kemur að hernaðarlegum vörnum. En það var aldrei kjarni minn. Kjarni minn var efnahagslegt öryggi og um það þegir hann enn. Í heimi þar sem tollar og viðskiptaþvinganir eru orðin eitt beittasta þvingunartæki samtímans snýst öryggi smáþjóðar ekki bara um hermenn og herskip. Það snýst líka um hvort hægt sé að loka á markaði hennar á einni nóttu. Hér eru svo staðreyndirnar, ekki einungis mín skoðun heldur niðurstöður nýrrar skýrslu sem fjármála- og efnahagsráðuneytið lét gera fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Skýrslan sýnir svart á hvítu hve berskjaldað íslenska hagkerfið er gagnvart erlendum áföllum: 77% af vöruútflutningi okkar fer til EES ríkja, fjármagnsflæði Íslands hefur síðasta aldarfjórðung verið þrisvar til fjórum sinnum sveiflukenndara en hjá öðrum samanburðarríkjum, og við þurfum að liggja með gjaldeyrisforða upp á 20% af landsframleiðslu, um 10 prósentustigum hærra en evrusvæðisríki að meðaltali. Þetta er verðið sem 400 þúsund manna ríki greiðir fyrir að standa eitt utan stærstu efnahagsblokkar álfunnar. Hér er svarið við spurningu Jóns Péturs, “hverju ætti ESB að bæta við varnir?" - fullur aðgangur að 450 milljóna manna innri markaði, samningsstyrkur sem örríki getur ekki skapað eitt og sér, og vörn gegn því að lenda á milli stórvelda í tollastríði. Það er spurningin sem skiptir Ísland máli, og ég bíð enn eftir svari háttvirts þingmanns við henni. Því spyr ég þingmanninn: hvað er það sem þú ert svona hræddur við í samningaviðræðunum? Íslendingar eiga betra skilið frá forsvarsmönnum okkar á Alþingi, tölum út frá staðreyndum, ekki reyna búa til ótta til að fá þitt á framfæri. Höfundur er formaður Ungra Evrópusinna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar