Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Árni Jóhannsson skrifar 29. maí 2026 21:41 Böðvar Böðvarsson fyrirliða ÍA fannst það steikt að spila á sínum gamla heimavelli í kvöld. Vísir / Anton Brink Fyrirliði ÍA, Böðvar Böðvarsson, fannst sigur sinna manna á sínum gömlu félögum gífurlega mikilvægur. ÍA lagði FH að velli 0-1 í leik þar sem marktækifærin létu ekki mikið á sér kræla. „
Virkilega góð tilfinning að koma hingað og ná í sigur í dag“, sagði Böðvar þegar hann var spurður út í líðan sína eftir að hafa náð í þennan sigur á sínum gömlu heimaslóðum. „Sigurinn er gífurlega mikilvægur fyrir okkur sem lið og með honum þá er talsvert styttra upp í efri hlutann og í rauninni var þetta úrslitaleikur fyrir okkur um það hvað við ætluðum okkur í sumar. Hvort við ætluðum alltaf að vera að líta niður fyrir okkur eða upp fyrir okkur. Virkilega sætt.“ Böðvar var til viðtals í dag við Vísi þar sem hann sagði að tilfinningarnar væru ekki eins sterkar og hann bjóst við komandi inn í leikinn. Hvernig voru þær þegar nær dró leiknum og þegar hann byrjaði? „Það var tilbreyting að sjá mömmu og pabba hinum megin í stúkunni. Pabbi náttúrlega gífurlega harður FH-ingur. Mjög steikt að sjá hann hinum megin og mömmu líka. Já það var pínu steikt að spila þennan leik og ég var pínu pirraður þegar ég las fyrirsögnina í dag. Að fyrirsögnin væri um andleysið, af öllu sem ég sagði þá var það kannski eitthvað sem gæti kveikt í FH-ingunum í dag og þeir voru alls ekki andlausir í þessum leik.. Ef eitthvað þá áttu þeir fyrri hálfleikinn. Við áttum samt fullt af færum og þessi sigur hefði getað verið mikið stærri í dag en þeir gerðu vel í að halda okkur í skefjum. Drullumikilvægur sigur.“ Eftir að hafa missti leikinn gegn ÍBV niður í jafntefli og svo ná í sigur í dag er það gott eða slæmt að fara inn í landsleikjahlé á þessum tímapunkti? „Þó að Lárus standi hérna fyrir framan mig þá ætla ég bara að segja það að við erum að fara í smá frí núna og það er bara algjör snilld. Geta aðeins kúplað sig út úr því að vera fótboltamaður og koma svo tvíefldur inn í næsta hluta mótsins.“ Hvernig metur Böðvar þá framtíð liðsins í sumar hafandi sagt það að þeir geti horft frekar upp fyrir sig en niður? „Ég tjái mig nú ekki um markmiðasetningu almennt eftir að ég gerði það í fyrra og það varð allt vitlaust. Við stefnum bara hátt, við erum með drullugott lið og það þarf rosalega lítið í þessari deild upp á hvort að þú lendir í 10. sæti eða verðir í efri hluta. Það er bara nokkra leikja sprettur. Við höfum fulla trú á liðinu og ég held að við getum gert drullu góða hluti með liðinu.
Besta deild karla FH Tengdar fréttir Leik lokið: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika FH-ingar eiga enn eftir að vinna leik eftir að hafa tapað gegn ÍA á heimavelli í níundu umferð Bestu deildar karla. Ómar Björn Stefánsson skoraði eina mark leiksins í seinni hálfleik og dugði það til sigurs í kvöld. 29. maí 2026 21:05 Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Fleiri fréttir Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Sjá meira
Leik lokið: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika FH-ingar eiga enn eftir að vinna leik eftir að hafa tapað gegn ÍA á heimavelli í níundu umferð Bestu deildar karla. Ómar Björn Stefánsson skoraði eina mark leiksins í seinni hálfleik og dugði það til sigurs í kvöld. 29. maí 2026 21:05