Að þora ekki að ræða við nágranna sína Ragnar Sverrisson skrifar 26. maí 2026 15:32 Vandséð er að ég hefði náð nokkrum árangri í verslun og viðskiptum ef ég hefði forðast að ræða við erlenda heildsala sem ég átti farsæl viðskipti við um árabil. Þá lét ég mig hafa það að setjast niður með þessu ágæta fólki til að ræða við það um kaup á ýmiss konar fatnaði og leita leiða til að þau viðskipti yrðu sem farsælust fyrir báða aðila. Þetta gerði ég meira að segja án þess að hafa fengið svör við öllum þeim álitamálum sem voru á milli okkar áður en viðtölin hófust. Datt ekki einu sinni í hug að spyrja þau spjörunum úr áður en ég vogaði mér að ræða við þau um væntanleg viðskipti. Slík var nú dirfskan og frekjugangurinn af minni hálfu – hóf bara samræður án þess að vera búinn að fá svör við mörgum álitamálum og án nokkurra skuldbindinga fyrir fram. Vonaði síðan það besta enda urðu niðurstöðurnar yfirleitt ágætar fyrir báða aðila. Nú þykir ekki einu sinni óhætt að setjast niður með okkar nánustu bandalagsþjóðum til að kanna kosti og galla við fulla aðild að ESB. Þess í stað er varað við að ræða við slíkt fólk því það hafi einlægt illt í huga og ætli greinilega að nota tækifærið til að plata okkur og flækja í neti sínu og gleypa síðan með húð og hári án þess að við gerðum okkur nokkra grein fyrir örlögum okkar og hroðalegri meðferð. Yrðum bara komin að fullu inn í ESB án þess að vita af vegna eigin vanmáttar og barnaskapar. Lögð áhersla á að við séum svo fá og smá að ekki sé vogandi að setjast niður með ESB-fólkinu og skoða málið. Svona er nú minnimáttarkenndin farin að þjaka hið vænsta fólk sem sér hættur í hverju horni og þess vegna farsælast að grafa sig niður í holur og vona að enginn taki eftir okkur hér við ysta haf. Í mínum huga er þetta í hrópandi andstöðu við viðbrögð fullvalda þjóðar sem gengur knarreist til samninga við nágranna sína og samstarfsþjóðir. Sjálfur hef ég góða reynslu af slíkum samningum og því ætti stjórnmálaelítan að geta náð góðum árangri og lagt niðurstöðurnar fyrir þjóðina sem tekur endanlega afstöðu í málinu þegar þar að kemur. Það yrði því ekki bara klaufaskapur á háu stigi að hafna nú þegar slíkum viðræðum heldur væri jafnframt verið að útiloka aukna samkeppni hér á landi, fjölbreyttari bankastarfsemi með mun lægri vöxtum, tryggingum þar sem samkeppni kæmi við sögu, lægra matvöruverði, alvöru gjaldmiðli og fullu aðgengi að digrum sjóðum sambandsins til ýmissa framkvæmda í samgöngum, stuðningi við brothættar byggðir og fjölbreytta nýsköpun. Ef þjóðinni finnst ekki einu sinni taka því að ræða þessa hluti er ljóst að hún yrði sjálfri sér verst og þarf enga óvini til að kljást við. Af viðtölum við vini mína á meginlandinu er ljóst að þeir hafa margir áhyggjur af því að við Íslendingar viljum hreinlega hafa það miklu verra en þörf er á; þetta skilja þeir ekki og vorkenna okkur ef eitthvað er. Eftir að hafa skoðað ítarlegt og vandað nefndarálit meirihluta utanríkismálanefndar, þar sem skilgreind eru samningsmarkmið sem stefnt yrði að ná við ESB, er ég ekki í nokkrum vafa um að það er tilraunarinnar virði rétt eins og við gerðum fyrir 30 árum þegar EES-samningurinn var staðfestur á Alþingi til mikilla heilla fyrir Ísland. Þá vantaði ekki bölsýnina hjá mörgum og fullyrt að ef við gerðum þennan samning myndu skella á móðuharðindi af mannavöldum, við myndum missa alla stjórn á fiskveiðum við landið og auðn blasa við á flestum sviðum. Þessi málflutningur þótti mjög til þess fallinn að efla fullveldi þjóðarinnar og tryggja sjálfstæði hennar frá vondum útlendingum sem ástæða væri til að gjalda varhug við. Því minna samband við slíka aðila þeim mun meira sjálfstæði þjóðarinnar og farsæld okkar íbúa byggðist á einangrun og vantrausti okkar sjálfra að umgangast aðra með fullri reisn. Sorglegast af öllu er þó sú staðreynd að þessir spámenn í eigin föðurlandi telja sér og öðrum trú um að þetta sé þjóðinni fyrir bestu; ef við svo mikið sem ræðum fulla aðild að ESB sé verið að fórna sjálfstæði þjóðarinnar enda þótt þjóðir innan ESB telji sig áfram fullvalda og skilja ekkert í áhyggjum okkar Íslendinga. Á sama hátt og ég, strákur af Oddeyrinni, þótti ekkert tiltökumál að ræða við kollega mína í öðrum löndum um verslun og viðskipti ætti fulltrúum íslensku þjóðarinnar ekki að verða skotaskuld úr því að eiga samtöl við vini okkar og samstarfsfólk á meginlandinu um fulla aðild að ESB með öllum þeim réttindum og skyldum sem því fylgir. EES-samningur okkar við ESB er til marks um farsæla niðurstöður slíkra viðræðna fyrir Ísland enda þótt samningamenn okkar hafi aldrei af því tilefni skreytt sig á föðurlandinu einni bróka. Höfundur er kaupmaður á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar