Æfðu árás á Suður-Kóreu Samúel Karl Ólason skrifar 26. maí 2026 10:04 Fólk í Suður-Kóreu fylgist með fréttum af æfingum nágranna sinna í norðri. AP/Lee Jin-man Skammdrægrum skotflaugum og stórskotaliðsflaugum og öðrum vopnum var skotið á loft frá Norður-Kóreu í morgun. Forsvarsmenn herafla Suður-Kóreu segja að eldflauginni, og öðrum ótilgreindum vopnum, hafi verið skotið á haf út en Norður-Kóreumenn hafa ekki tjáð sig um æfingarnar. Ráðamenn í Rússlandi og Kína lýstu á dögunum yfir andstöðu gegn refsiaðgerðum og viðskiptaþvingunum sem beitt hefur verið gegn einræðisríkinu.
Yonhap-fréttaveitan frá Suður-Kóreu segir að einnig sé talið að nýir sjálfsprengidrónar hafi verið notaðir samhliða eldflaugunum. Aðrir fjölmiðlar í Suður-Kóreu hafa eftir heimildarmönnum sínum að líklega sé um að ræða æfingu á því að reyna að komast í gegnum loftvarnir Suður-Kóreu og Bandaríkjanna. Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hefur lagt mikið kapp á það að nútímavæða herafla sinn og vopn á undanförnum árum. Hann hefur bætt tengsl Norður-Kóreu og Rússlands verulega og hefur sent hermenn, verkafólk og mikið magn hergagna. Í staðinn er talið að Norður-Kórea hafi fengið aðgang að tækni og aðstoð við nútímavæðingu. Einræðisríkið hefur verið beitt umfangsmiklum aðgerðum vegna kjarnorkuvopnaþróunar og tilrauna með langdrægar eldflaugar sem eiga að geta borið kjarnorkuvopn. Eins og fram kemur í grein AP fréttaveitunnar hefur Kim einnig kallað eftir bættum tengslum við Kína, helsta viðskiptaríki Norður-Kóreu. Þegar Vladimír Pútín og Xi Jinping, forsetar Rússlands og Kína, funduðu í síðustu viku lýstu þeir yfir andstöðu gegn einangrunarstefnu Vesturlanda í garð Norður-Kóreu og öðrum aðferðum sem notaðar væru til að ógna öryggi einræðisríkisins. Bæði Rússar og Kínverjar hafa staðið í vegi þess að refsiaðgerðir gegn Norður-Kóreu séu hertar, þrátt fyrir ítrekuð brot á fyrri samþykktum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um tilraunir og þróun á eldflaugum og kjarnorkuvopnum. Samþykktir sem Rússar og Kínverjar samþykktu. Sjá einnig: Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Kim hefur að undanförnu verið gífurlega harðorður í garð Suður-Kóreu að undanförnu. Hann hefur meðal annars lýst nágrönnum sínum sem helstu óvinum Norður-Kóreu og slitið á formlegt tengsl þar á milli. Á fundi með yfirmönnum herafla síns á dögunum kallaði Kim eftir því að viðbúnaður á landamærum Norður- og Suður-Kóreu yrði aukinn til muna. Svipaða sögu er að segja í Suður-Kóreu, þar sem Lee Jae Myung, forseti, kallaði nýverið eftir því að herinn yrði styrktur og að mögulega myndi Suður-Kórea smíða kjarnorkuknúna kafbáta. Vonast er til að sá fyrsti verði tekinn í notkun árið 2030. Lee er frjálslyndur forseti sem hefur kallað eftir bættum samskiptum við Norður-Kóreu. Hann segir samt mikilvægt að Suður-Kórea hafi burði til að verja sig.
Norður-Kórea Suður-Kórea Hernaður Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Bein útsending: Kynna þingmálaskrá vetrarins Innlent Allt að átján stiga hiti í dag Veður Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Erlent Fleiri fréttir Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Sjá meira