Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. maí 2026 10:02 Fólk skolar niður bjór, reykir sígarettu og mögulega í leit að miðum við Heaton Park fyrir tónleikana síðasta sumar. Getty/Christopher Furlong Íslendingur sem skellti sér á tónleika Oasis í Manchester í pakkaferð Icelandair á ekki rétt á endurgreiðslu þrátt fyrir að afhending á tónleikamiðanum hafi farið fram síðar en boðað hafði verið. Flugfélagið bauð tónleikagestinum inneign í sárabætur en því boði var ekki svarað.
Uppi varð fótur og fit þegar bresku rokkhundarnir í Oasis tilkynntu um tónleikaferðalag sitt fyrir árið 2025. Icelandair bauð upp á pakkaferð til Manchester í júlí það ár í heimaborg sveitarinnar en troðið var upp á Heaton Park. Íslendingur sem greiddi 196 þúsund krónur fyrir flug og miða varð stressaður þegar tölvupóstur sem átti að innihalda miðann barst daginn fyrir tónleikana. Hann var þá mættur til Manchester og fylltist kvíða þegar ekkert viðhengi fylgdi tölvupóstinum. Hann var miðalaus og sólarhringur í tónleika. Aðdáendur Oasis mættir á Heaton Park þann 11. júlí í fyrra. Sól og blíða og spennan mikil enda þá liðin sextán ár síðan Oasis lagði upp laupana með dramatískum hætti. Getty/Christopher Furlong Hann lýsir því að hafa ekki náð sambandi við neinn hjá Icelandair fyrr en á tónleikadegi og barst miðinn honum 14:14 þann dag. Tónleikasvæðið var opnað klukkan 15, upphitunarsveit taldi í klukkan 18 og svo mætti Oasis á svið klukkan 20:15. Tónleikagesturinn sagði að vegna vesensins hefði hann misst af hluta tónleikanna. Ferlið hefði valdið honum verulegum óþægindum og haft neikvæð áhrif á upplifun hans af ferðinni og tónleikunum. Hann gerði því kröfu um fulla endurgreiðslu ferðarinnar. Icelandair viðurkenndi að miðinn hefði borist seint en þó ekki komið í veg fyrir að viðkomandi gæti sótt tónleikana. Hann hefði raunar getað nýtt sér alla þá þjónustu sem innifalin var í pakkaferðinni og hafnaði kröfu um sáttargreiðslu. Bent var á að manninum hefði verið boðin inneign sem sáttaboð en því boði hefði ekki verið svarað. Tónleikagesturinn leitaði réttar síns fyrir kærunefnd vöru- og þjónustukaupa. Nefndin benti á að Icelandair hefði lofað miðaafhendingu í síðasta lagi 24 klukkustundum fyrir tónleikana og óumdeilt væri að það hefði ekki staðist. Um leið væri ljóst að maðurinn gat mætt á tónleikana. Drátturinn hefði ekki verið þess eðlis að um verulega vanefnd hefði verið að ræða sem réttlætti endurgreiðslu. Raunar þótti drátturinn ekki vanefnd sem þýddi að maðurinn ætti rétt á afslætti frá Icelandair. Var kröfu hans því hafnað.
Icelandair Ferðalög Íslendingar erlendis Neytendur Úrskurðar- og kærunefndir Mest lesið Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Viðskipti innlent Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Bensínlítrinn hefur hækkað á ný „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Vara við skordýrum í chia-fræjum Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Ástandið minni á 2007 Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Kalla inn pylsur vegna prentvillu Breytingar á fyrsta farrými Innkalla te sem innihélt ál Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Sjá meira