Enski HM-hópurinn: Tuchel skilur stórstjörnur eftir heima Sindri Sverrisson skrifar 22. maí 2026 09:01 Declan Rice er að sjálfsögðu í enska HM-hópnum og Ivan Toney fær einnig sæti. Getty/Stefan Matzke Þjóðverjinn Thomas Tuchel skildi nokkrar stórstjörnur eftir utan hóps og kom mörgum á óvart með vali sínu á HM-hópi Englands sem tilkynntur var formlega í morgun.
Velja má 26 leikmanna hóp fyrir HM og er enski hópurinn hér að neðan. Markmenn: Jordan Pickford (Everton), Dean Henderson (Crystal Palace), James Trafford (Manchester City). Varnarmenn: Reece James (Chelsea), Tino Livramento (Newcastle), Marc Guehi (Manchester City), Ezri Konsa (Aston Villa), John Stones (Manchester City), Jarell Quansah (Bayer Leverkusen), Nico O'Reilly (Manchester City), Dan Burn (Newcastle), Djed Spence (Tottenham). Miðjumenn: Declan Rice (Arsenal), Elliot Anderson (Nottingham Forest), Jude Bellingham (Real Madrid), Jordan Henderson (Brentford), Morgan Rogers (Aston Villa), Kobbie Mainoo (Manchester United). Sóknarmenn: Harry Kane (Bayern Munich), Ivan Toney (Al-Ahli), Ollie Watkins (Aston Villa), Bukayo Saka (Arsenal), Noni Madueke (Arsenal), Marcus Rashford (Barcelona að láni frá Manchester United), Anthony Gordon (Newcastle), Eberechi Eze (Arsenal). Harry Maguire, miðvörður Manchester United, sendi frá sér yfirlýsingu strax í gær þar sem hann kvaðst í algjöru áfalli yfir því að hafa ekki verið valinn. Liðsfélagi hans, Luke Shaw, var heldur ekki valinn. Á meðal annarra sem ekki fengu sæti eru miðjumennirnir Cole Palmer, Morgan Gibbs-White og Phil Foden, og bakvörðurinn Trent Alexander-Arnold. Gibbs-White hefur skorað 14 mörk í ensku úrvalsdeildinni í vetur fyrir Nottingham Forest og þeir Palmer og Foden voru fyrir örfáum misserum sannkallaðar vonarstjörnur Englands. Framherjarnir Ivan Toney, sem skorað hefur 32 mörk í 32 leikjum í sádiarabísku deildinni í vetur, og Ollie Watkins hjá Evrópudeildarmeisturum Aston Villa, voru hins vegar báðir valdir. Tuchel valdi einnig menn á borð við varnarmennina Dan Burn úr Newcastle og Djed Spence úr Tottenham, þrátt fyrir að Spence hafi reyndar kjálkabrotnað í tapinu gegn Chelsea á þriðjudag og verði væntanlega með hlífðargrímu á sunnudaginn þegar Tottenham freistar þess að bjarga sér frá falli í lokaumferð úrvalsdeildarinnar. Fyrsti leikur Englands á HM er við Króatíu 17. júní en liðin eru einnig í riðli með Gana og Panama.
Enski boltinn HM 2026 í fótbolta Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Ungur Mexíkói sló heimsmet Hafþórs sem vann samt mótið Sport Heiðruðu þjóðarmorðingja fyrir leik Sport Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Gaf hundinum sínum loforð og sló heimsmet Hafþórs Sport Daníel Tristan sáttur eftir að samkeppnin fór til Noregs Fótbolti Fer frá Hlíðarenda til Molde Fótbolti Fleiri fréttir Daníel Guðjohnsen fékk tækifæri eftir mikla óvissu Elche - Real Sociedad | Orri í eldlínunni Lið Elíasar bjargaði stigi Þróttur - Breiðablik | Endurheimta Blikar toppsætið? Stjarnan - Víkingur R. | Bæði lið þurfa á stigunum að halda Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Hafa ekki enn fengið útskýringu á því af hverju Balogun fékk að spila Fer frá Hlíðarenda til Molde Daníel Tristan sáttur eftir að samkeppnin fór til Noregs Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni Versti stjóri Bretlandseyja? Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Juventus bjargaði stigi í lokin Neitar að ræða við fjölmiðla en ætlar í framboð Júlíus öflugur í frábærum sigri Logi tapaði og Salah skoraði Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum „Sýndum karakter og vilja“ Sjá meira