Fótbolti

Ronaldo skoraði tvennu og varð meistari í lokaumferðinni

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Cristiano Ronaldo er sádiarabískur meistari.
Cristiano Ronaldo er sádiarabískur meistari. Abdullah Ahmed/Getty Images

Cristiano Ronaldo og félagar í Al-Nassr eru sádiarabískir meistarar eftir 4-1 sigur gegn Damac í lokaumferð deildarinnar.

Ronaldo skoraði tvennu í öruggum sigri Al-Nassr en Kingsley Coman og Sadio Mane skoruðu hin mörkin.

Al-Nassr þurfti á sigrinum að halda í kvöld því Al-Hilal vann sinn leik og endaði tveimur stigum frá meisturunum.

Þetta voru 972. og 973. mörkin á ferli Ronaldo og hann hefur nú loks unnið bikar í Mið-Austurlöndum.

Ronaldo hafði hlotið gagnrýni fyrir að vinna ekki bikar með Al-Nassr á fyrstu tveimur tímabilunum í Sádi-Arabíu og núna nýlegast missti liðið af Asíudeildinni eftir tap í úrslitaleik.

Ronaldo getur nú loks bæti sádiarabíska meistaratitlinum við safn sitt, sem telur þrjá Englandsmeistaratitla með Manchester United, tvo Spánarmeistaratitla með Real Madrid og tvo Ítalíumeistaratitla með Juventus.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×