„Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Stefán Árni Pálsson skrifar 21. maí 2026 11:22 Þættir sem hafa slegið í gegn á RÚV. Í Íslandi í dag í vikunni hitti Tómas Arnar fólkið á bak við þættina 20 og eitthvað sem hafa verið í sýningu á RÚV síðustu vikur. Í þáttunum er fjallað um ungmenni á þrítugsaldri.
Aldurshópurinn sem alla jafna fetar sín fyrstu skref á vinnumarkaði, fer í háskóla og upplifir það að vera fullorðinn í fyrsta skipti. Þættirnir hafa vakið upp kátínu og hrifningu hjá ungum sem öldnum og virðist fólk tengja að miklu leyti við raunir aðalpersónanna. Tómas ræddi við aðalleikarana þrjá í þættinum og fékk að skyggnast á bak við tjöldin. „Við höfum alltaf átt erfitt með að útskýra þessa þætti. Við getum loksins talað bara um það að okkur finnst mjög erfitt að tala um hvernig þættir þetta eru,“ segir Óli Gunnar Gunnarsson sem fer með hlutverk í þáttunum. „Þetta eru grínþættir um ungt fólk. Við vorum ekkert að ritskoða okkur. Ef eitthvað var verulega skrítið þá vildum við samt gera það,“ segir Vigdís Hafliðadóttir sem fer einnig með hlutverk í þáttunum. Blanda saman karakterum og sögum „Við vildum kannski reyna að blanda saman einhvers konar karakter, sögum og einhverju sketsaformatti saman. Hvernig getum við leyft okkur hugmyndaflugið sem er í sketsaþáttum en samt í grínseríu með karakterum og sögu,“ segir Óli. „Þetta er líka bara ógeðslega flókinn tími í lífi fólks, þrítugsaldurinn, eða getur verið. Þannig að það hefði verið ótrúlega óeðlilegt að gera einhverja seríu um þennan aldur og það væru engin vandamál eða allir væru bara geðveikt hamingjusamir alltaf,“ segir Vigdís. „Grín er smá eins og grænmetið. Því ferskara sem það er núna, því verr geymist það eftir nokkra mánuði,“ segir Arnór Björnsson sem fer einnig með hlutverk í 20 og eitthvað. Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.
Ísland í dag Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Taskmaster Ísland snýr aftur Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Ekkert offors hjá Fors Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Sjá meira