Hver borgar brúsann? Ásmundur E. Þorkelsson, Hörður Þorsteinsson og Sigrún Guðmundsdóttir skrifa 21. maí 2026 10:03 Okkur er sagt að markmiðið með fyrirhuguðum breytingum á heilbrigðiseftirliti sé einföldun, samræming og aukin skilvirkni. Það eru góð markmið. En áður en Alþingi samþykkir svo umfangsmikla kerfisbreytingu þarf að liggja skýrt fyrir hvað hún kostar og hver á að borga. Það liggur ekki fyrir í dag. Ekki hefur verið lagt fram heildstætt kostnaðarmat sem svarar því hvað það kostar að koma nýju kerfi á fót, reka það, færa gögn milli kerfa, byggja upp upplýsingakerfi, koma upp starfsstöðvum, kaupa búnað, breyta reglugerðum og sinna þeim verkefnum sem verða áfram hjá sveitarfélögum. Ef heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga verður lagt niður í núverandi mynd og verkefni færð til ríkisstofnana þarf að tryggja að nýja kerfið virki frá fyrsta degi. Það þarf að flytja eftirlitssögu, starfsleyfi, gögn, verkferla, ábyrgð og mannauð. Það þarf að tryggja að upplýsingakerfi séu tilbúin. Það þarf að tryggja að eftirlit haldi áfram án þjónusturofs. En hver á að borga? Hættan er sú að kostnaðurinn lækki ekki, heldur færist til sveitarfélaga, rekstraraðila og að lokum almennings, í formi hærra vöruverðs eða þjónustugjalda. Við þurfum líka að hafa í huga að ef eftirlit skiptist milli fleiri aðila getur það þýtt fleiri úttektir, lengri leyfisferla og gjaldtöku hjá fleiri en einum aðila. Skólar, leikskólar, veitingastaðir, verslanir, gististaðir, landbúnaður og önnur starfsemi sem í dag hefur samskipti við einn staðbundinn eftirlitsaðila geta þurft að eiga samskipti við fleiri stofnanir en áður. Þá er sannarlega ekki verið að einfalda kerfið fyrir þá sem eiga að nota það. Í dag getur einn heilbrigðisfulltrúi horft á starfsemi og haft heildaryfirsýn með matvælaöryggi, hollustuháttum, húsnæði, umhverfi, vatni og staðbundnum aðstæðum. Ef verkefnin eru færð til fleiri en einnar stofnunar eykst hætta á tvíverknaði, lengri boðleiðum og óskýrri ábyrgð. Hætta skapast á að verkefni falli milli stofnana og almannahagsmunum sé þannig ógnað. Sveitarfélögin standa líka frammi fyrir verulegri óvissu. Hluti verkefna á að sitja eftir hjá þeim, eins og til dæmis verkefni sem tengjast kvörtunum, umhirðu lóða, hávaða, ólykt, fráveitum, vatnsvernd og loftgæðum. Ef tekjur flytjast annað en ábyrgð situr eftir skapast nýr vandi. Þá sitja sveitarfélögin eftir með ófjármögnuð verkefni. Samtök heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi hafa lagt áherslu á að hægt sé að ná markmiðum um samræmingu og skilvirkni með annarri leið. Með skýrara samræmingarhlutverki fagstofnana, betri upplýsingakerfum, einu umsóknar- og eftirlitsferli, samræmdri gjaldtöku og aukinni fræðslu er hægt að bæta kerfið án þess að ráðast í óundirbúna kerfisbreytingu. Það er ekki hægt að samþykkja breytingar af þessari stærðargráðu án þess að vita hvað þær kosta, hver borgar og hvernig tryggt verður að þjónustan haldist samfelld og traust. Áður en Alþingi afgreiðir málið þarf því að liggja fyrir heildstætt kostnaðarmat, raunhæf innleiðingaráætlun og skýr trygging fyrir samfellu í þjónustu. Að mati Samtaka heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga (SHÍ) er kostnaður við tilflutning verkefna frá heilbrigðiseftirlitunum til ríkisstofnanna ekki undir 800 milljónum og þá er eftir að gera grein fyrir hvernig ófjármögnuðum halla Matvælastofnunar, sem var í ársbyrjun 2026 um 1.2 milljarðar verður mætt, þ.e. ríkisvaldið þarf að leggja til um 2 milljarða til að þessi leið gangi upp. Veruleg hætta er á að þessi leið reynist dýrari, flóknari og áhættumeiri fyrir sveitarfélög, atvinnulíf og almenning. Og þá er það almenningur sem endar á að borga brúsann. Höfundar eru stjórnarmenn í Samtökum heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi. Ásmundur er framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, Hörður er framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness og Sigrún er framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðiseftirlit Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar