Milt, bjart og hlýtt á Suðvesturlandi í dag Lovísa Arnardóttir skrifar 20. maí 2026 07:10 Það mun viðra vel til allskonar útivistar á Suðvesturlandi í dag. Vísir/Vilhelm Á Suðvesturlandi verður nokkuð milt og bjart í dag og hiti víðast yfir fimmtán stigum. Á Austurlandi verður víða rigning og þokubakkar við norðurströnd.
Lægð fyrir suðaustan land beinir til okkar norðan- og norðaustanátt í dag, víða gola eða kaldi en strekkingur allra austast samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings. Súld eða rigning um landið austanvert og þokubakkar við norðurströndina með hita frá þremur til níu stigum. Í öðrum landshlutum verður bjart að mestu og mildara, sérstaklega suðvestanlands þar sem hiti gæti allvíða farið yfir 15 stig og upp í sautján samkvæmt veðurspá. Á morgun er spáð norðaustlægri eða breytilegri átt 3-10 á morgun. Þokusúld eða lítilsháttar rigning norðaustanlands, annars þurrt að mestu, en líkur á stöku skúrum á Suðurlandi. Hiti breytist lítið. Á föstudag er svo útlit fyrir austlæga átt með súld eða dálítilli rigningu, en norðanlands verður lengst af úrkomulítið. Víðast hvar er greiðfært um landið en þó eru víða holur sem þarf að varast. Einnig eru víða viðgerðir og framkvæmdir og eru vegfarendur beðnir að fara með gát. Sem dæmi eru framkvæmdir á milli klukkan 09:00 og 21:00 á um 1.400 m kafla á Suðurlandsvegi við Þingborg, í austurátt frá Selfossi. Umferðarstýring er á svæðinu. Nánari upplýsingar um færð er að finna á vef Vegagerðarinnar og veður á vef Veðurstofunnar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Norðaustlæg eða breytileg átt 3-10 m/s. Súld eða dálítil rigning norðaustanlands og við norðurströndina með hita 3 til 9 stig. Þurrt að mestu annars staðar og hiti 8 til 15 stig að deginum, en lítilsháttar væta á Suðurlandi síðdegis. Á föstudag: Austlæg átt 5-13 og súld eða rigning með köflum, en úrkomulítið á Norðurlandi fram eftir degi. Hiti 4 til 12 stig, mildast vestanlands. Á laugardag: Suðaustan og sunnan 5-13 og rigning með köflum, hiti 7 til 12 stig. Lengst af þurrt norðaustanlands með hita að 17 stigum. Á sunnudag (hvítasunnudagur): Suðvestan- og sunnanátt og skúrir, en bjart að mestu á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 7 til 13 stig. Á mánudag (annar í hvítasunnu): Suðvestanátt og rigning eða skúrir, en úrkomulítið norðaustantil. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag: Suðvestlæg eða breytileg átt og væta með köflum sunnan- og vestantil.
Veður Færð á vegum Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Fleiri fréttir Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Sjá meira