„Mourinho er númer eitt“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 16. maí 2026 11:01 Alvaro Arbeloa býr sig undir kveðjustund. Dennis Agyeman/Europa Press via Getty Images Þjálfarinn Álvaro Arbeloa ræddi við blaðamenn fyrir leik Real Madrid gegn Sevilla en aðeins tvö nöfn bar á góma á blaðamannafundinum, José Mourinho og Kylian Mbappé.
Arbeloa veit manna best að hann verður ekki þjálfari Real Madrid á næsta tímabili eftir að hafa mistekist að stýra liðinu að titli sem bráðabirgðastjóri. Líklegast þykir að José Mourinho snúi aftur í stjórastólinn og viðræður við Portúgalann eru nú þegar hafnar. „Ég hef alltaf verið skýr varðandi José. Sem Real Madrid stuðningsmaður er Mourinho númer eitt. Ég sagði það sama í Meistaradeildinni [þegar Real Madrid mætti Benfica, liði Mourinho]. Ég hef hugsað um þetta síðastliðinn mánuð og held áfram að hugsa það: Hann verður alltaf einn af okkur. Ef hann kemur aftur verð ég ánægður að bjóða hann velkominn heim.“ Sér ekki eftir neinu Arbeloa segist annars ekki sjá eftir því að hafa tekið við Real Madrid þegar blaðamaður Marca spurði hvort hann hefði tapað á því. „Ég var þjálfari í fyrstu deildinni og fer héðan með reynslu af því að þjálfa Real Madrid í Meistaradeildinni. Fyrir mér hafa þessir fjórir mánuðir verið frábærir, mikið lærdómsferli. Ég hef líka lært heilmikið af því að sitja hér fyrir framan ykkur. Ég fer héðan með hreina samvisku.“ „Ég talaði við hann og sagði honum að slaka á“ Kylian Mbappé hnaut aðeins í þjálfarann eftir síðasta leik Real Madrid. Mbappé hafði þá misst af tveimur leikjum vegna meiðsla en var ósáttur við að vera settur á varamannabekkinn í endurkomunni. Hann sagði Arbeloa líta á sig sem fjórða besta framherja liðsins. „Ég talaði við hann og sagði honum að slaka á, ég myndi sjá um þetta. Ég veit að fyrir ykkur eru þetta fréttir en allt sem hann sagði höfðum við rætt nú þegar. Ég tek ábyrgð á því. Ég veit hvernig það er að vera vanur því að byrja alla leiki en vera síðan á bekknum. Ég skil það. Ég veit að hann var óánægður, og það er fínt. Ég myndi ekki skilja það ef Kylian væri ekki óánægður. Þetta er fullkomnlega eðlilegt en í ljósi aðstæðna fannst mér best að hann spilaði bara í seinni hálfleik.“
Spænski boltinn Real Madrid CF Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Sjá meira