„Stríðshetjur“ Íran lagðar af stað á HM Ágúst Orri Arnarson skrifar 15. maí 2026 12:30 Þúsundir fólks kvöddu stríðshetjurnar sem munu (mögulega ekki) spila á HM í Bandaríkjunum. Fatemeh Bahrami/Anadolu via Getty Images Fótboltalandslið Íran var kvatt með mikilli viðhöfn í höfuðborginni Tehran þegar liðið lagði af stað á heimsmeistaramótið.
Íran er á leið í æfingabúðir í Tyrklandi áður en leiðin liggur til Bandaríkjanna á HM. Þar er Íran með þátttökurétt en mikið hefur verið fjallað um hvort Íran muni taka þátt á mótinu vegna núverandi stríðs- og stjórnmálaástands í landinu eftir innrás Bandaríkjanna og Ísraels. Í Bandaríkjunum er meðal annars óttast að þátttaka Írans myndi gera mótið pólitískt, í slæmri merkingu orðsins. Varla hefur kveðjuathöfnin slegið á þær áhyggjur en þar var lítið talað um boltann. Landsliðið var kvatt burt og hvatt áfram að siði hersins. Á Enghelab byltingartorginu í Tehran sagði forseti knattspyrnusambandsins, Mehdi Taj: „Á heimsmeistaramótinu verðið þið fulltrúar Íran sem hluti af byltingarverðinum og sem stríðshetjur æðsta leiðtogans.“ Ungur stuðningsmaður stóð á háum hesti til að líta hetjurnar augum. Fatemeh Bahrami/Anadolu via Getty Images Nýlega lenti Mehdi Taj í vandræðum við vegabréfsáritun á landamærum Kanada fyrir ársþing FIFA. Honum var snúið burt af landamæraeftirlitinu og Íran var því eina þjóðin sem átti engan fulltrúa á ársþingi FIFA. Ólíklegt þykir að honum verði hleypt inn til Bandaríkjanna á HM, sökum tengsla við íranska byltingarvörðinn sem er á skrá Bandaríkjastjórnar yfir hryðjuverkasamtök. Leikmenn og starfsmenn landsliðsins gætu lent í vandræðum við að komast inn í landið af sömu ástæðum. Íranska landsliðið hefur líka ekki fengið góðan undirbúning fyrir HM því liðið hefur ekki spilað vináttuleik síðan stríðið hófst í lok febrúar. Liðið hefur nýtt landsleikjahléin til að spila innbyrðis með A og B liði. Íran mun þó spila einn æfingaleik fyrir HM, gegn Gambíu í Tyrklandi, áður en liðið fer til Bandaríkjanna.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Sjá meira