„Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 15. maí 2026 10:31 Alexandra Popp þurfti að horfa á eftir bikarnum í hendur Bayern og fékk heldur nærgætna spurningu í viðtali eftir leik. Ralf Ibing - firo sportphoto/Getty Images Alexandra Popp er á förum frá Wolfsburg og gekk tárvot af velli eftir tap í bikarúrslitaleiknum gegn Bayern Munchen í gær. Í viðtali eftir leik var hún spurð út í föður sinn sem lést árið 2022.
Popp er ein mesta goðsögn í sögu þýska boltans og hjá Wolfsburg hefur hún orðið Þýskalandsmeistari sjö sinnum og bikarmeistari ellefu sinnum. Hún hafði aldrei tapað bikarúrslitaleik fyrr en í gær þegar hún þurfti að líta í lægra haldi fyrir Glódísi Perlu Viggósdóttur og stöllum hennar í Bayern Munchen. „Við munum fagna þrátt fyrir allt saman og fagna vel,“ sagði Popp eftir leik. Eftir leik tóku tilfinningarnar völdin hjá Popp, hún grét þegar hún gekk af velli og átti erfitt með að horfa á eftir bikarnum. Þá kunni hún ekki að meta það að vera spurð út í föður sinn, sem lést árið 2022, en í gær var feðradagurinn og spyrli Sky Sports fannst það kjörið tilefni. „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ sagði Popp. „Ég held að faðir minn sé mjög stoltur. Því miður gat ég ekki gefið honum neina gjöf þennan feðradaginn en ég veit að hann er stoltur af hinum titlunum sem ég hef unnið,“ bætti hún við. Alexandra Popp gekk tárvot af velli, alls óvön því að tapa bikarúrslitaleik. EPA/RONALD WITTEK Hún er orðin 35 ára gömul og kveður Wolfsburg næstkomandi sunnudag eftir fjórtán ár hjá félaginu. Hún tekur skrefið niður í þriðju efstu deild þar sem hún mun spila með Borussia Dortmund. Popp kveðst stolt af sínu síðasta tímabili hjá Wolfsburg þó það hafi ekki endað með titli. „Allir afskrifuðu okkur en á endanum erum við í öðru sæti í bæði deild og bikar. Við verðum líka að viðurkenna, með mikilli öfund, að Bayern er búið að taka fram úr okkar,“ sagði Popp.
Þýski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Sjá meira