Fylkir - FH 5-0 | Heimir pakkaði gömlum læri­sveinum saman með Mána fremstan í flokki

Kolbeinn Kristinsson skrifar
Máni Austmann skoraði tvennu.
Máni Austmann skoraði tvennu. vísir / hulda margrét

Fylkir er komið áfram í 8-liða úrslit Mjólkurbikars karla eftir öruggan 5-0 sigur á FH á tekk VELLINUM í Árbæ í dag. Heimamenn gerðu út um leikinn strax í fyrri hálfleik með þremur mörkum á fyrstu 23 mínútum leiksins. Heimir Guðjónsson þjálfari Fylkis hafði þar með betur gegn sínum gömlu lærisveinum í FH en Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH sneri sömuleiðis aftur á gamlar slóðir í Árbænum.

Kári lagði línurnar og Fylkir refsaði grimmilega

Fylkismenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust yfir strax á 6. mínútu. Kári Sigfússon átti þá fyrirgjöf frá hægri sem fór í Baldur Kára Helgason, leikmann FH, og þaðan yfir Jökul í marki FH. Þetta var sjálfsmark og staðan orðin 1-0 fyrir Fylki.

Fylkismenn óðu í færum.  Vísir / Hulda Margrét

Heimamenn létu ekki þar við sitja. Á 19. mínútu sendi Kári aðra frábæra fyrirgjöf frá hægri inn á teiginn þar sem Hlynur Sævar Jónsson reis hæst og skallaði boltann í netið.

Hlynur Sævar fagnar marki. Vísir / Hulda Margrét

Aðeins fjórum mínútum síðar bætti Máni Austmann Hilmarsson þriðja marki Fylkis við með góðu skoti úr teignum. Fylkir var þá komið í 3-0 þarna eftir 23 mínútur og FH í miklum vanda.

Fylkir gekk frá leiknum strax eftir hlé

Seinni hálfleikur hófst á sömu nótum og sá fyrri. Á 47. mínútu bætti Dagur Traustason við fjórða marki heimamanna eftir hraða sókn Fylkis. Hann fylgdi vel inn í vítateig FH af miðjunni, náði frákastinu og skoraði.

Dagur fagnar marki. Vísir / Hulda Margrét

Á 54. mínútu skoraði Máni Austmann sitt annað mark í leiknum og fimmta mark Fylkis. Þar með var sigurinn endanlega negldur niður og ljóst að Árbæingar væru á leið í næstu umferð.

Vísir / Hulda Margrét

Fylkir vann að lokum afar sannfærandi 5-0 sigur á FH og tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars karla.

Jökull Andrésson þurfti fimm sinnum að hirða boltann úr netinu. Vísir / Hulda Margrét

Atvik leiksins 

Ef og hefði. Í stöðunni 2-0 fyrir Fylki þá kemst Gils leikmaður FH inn í sendingu við miðlínu, geysist fram einn á móti markmanni og lyftir boltanum en fram hjá stönginni fór hann. Fylkismenn fara svo upp hinum megin strax í næstu sókn, skora þriðja markið og klára leikinn.

Skot Gils fór framhjá. Vísir / Hulda Margrét

Stjörnur og skúrkar

Heimir Guðjónsson er stjarna leiksins, Fylkir gjörsamlega pökkuðu þessum leik saman. Kári Sigfússon var mjög skapandi í leiknum og með hættulegar fyrirgjafir og spyrnur fyrir heimamenn. Máni Austmann skorar góð mörk sömuleiðis. FH-liðið var hins vegar svakalega dapurt í dag, litlir í sér og koðnuðu niður við hvert mark sem þeir fengu á sig. Úrslit þessa leiks voru í raun ráðin eftir 23 mínútur.

Vísir / Hulda Margrét

Dómarinn

Gunnar Freyr og hans teymi stóðu sína plikt vel í dag. Leikurinn fékk að flæða vel og engin umdeild atvik sem heitið getur. Einkunn 8,5.

Stemning og umgjörð

Fín stemmning í Árbænum í dag og heimamenn fengu flottan leik. Það var bjart, kalt og fallegt úti um að litast og umgjörðin í efsta flokki hjá heimamönnum, má þar nefna tónlist, veitingar og gestrisni.

Vísir / Hulda Margrét

Viðtöl 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira