Borgin vill breyta Ingólfstorgi í sumarmarkað: „Eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Agnar Már Másson skrifar 14. maí 2026 13:53 „Ingólfstorg er heilagur staður fyrir okkur skaterana og það yrði í raun hræðilegt ef þetta yrði að einhverjum götumarkaði. Þá gætum við bara ekkert skate-að úti í sumar,“ segir læknaneminn og hjólabrettakappinn Ingi Hrafn í samtali við Vísi. Samsett Mynd/Aðsend/Instagram Hjólabrettakappar eru æfir yfir áformum Reykjavíkurborgar um að leggja Ingólfstorg undir sölubása og götumarkað í allt sumar. Torgið hefur verið allra helgasti reitur hjólabrettaiðkenda á Íslandi síðustu ár en fregnirnar koma þeim í galopna skjöldu.
Reykjavíkurborg birti síðdegis í gær myndskeið á samfélagsmiðlum sínum þar sem auglýst var eftir fólki sem hefur áhuga á að reka sölubás á Ingólfstorgi „í allt sumar“. Þessar fregnir komu hjólabrettaköppum höfuðborgarinnar í opna skjöldu enda er torgið orðið að eiginlegri þungamiðju hjólabrettamenningar í Reykjavík og gjarnan undirlagt hjólabrettaiðkendum á sólríkum sumardögum. View this post on Instagram A post shared by Borgin okkar (@borgin.okkar) „Þetta kom bara eins og þruma úr heiðskíru lofti,“ segir hjólabrettaiðkandinn og læknaneminn Ingi Hrafn Guðbrandsson í samtali við Vísi en hann er einn þeirra sem hafa kvatt sér hljóðs í kommentakerfinu og mótmælt áformum Reykjavíkurborgar. „Þeir bara hentu þessu upp án þess að tala við neinn.“ Ingi Hrafn, sem sést hér með derhúfu vinstra megin á mendinni, er ekki sáttur með áformin.Aðsend Borgin nýbúin að leggja nýja kannta fyrir hjólabretti „Þetta er náttúrulega bara miðstöð hjólabrettamenningar og hefur verið í þrjátíu eða fjörutíu ár,“ heldur Ingi Hrafn áfram. Þetta vekur einkum furðu meðal hjólabrettakappa þar sem borgin var nýbúin að setja nýja kanta á torgið sem voru einmitt hannaðir með hjólabrettabrellur í huga. 在 Instagram 查看这篇帖子 @siffi____ 分享的帖子 Ingólfstorg, eða „Ingó“ eins og Ingi Hrafn kallar svæðið, hefur að hans sögn verið eina almennilega hjólabrettaaðstaðan utandyra í Reykjavík, sérstaklega eftir að nýju kantarnir komu í maí í fyrra. Senan öll mætt í kommentakerfið Þegar færslan birtist í gær stóð ekki á viðbrögðum í kommentakerfinu og raunar hefur kommentakerfið undir færslunni logað síðan hún birtist. Rappararnir Floni, Emmsjé Gauti og Gross eru meðal þeirra sem mótmæla þessum áformum í athugasemdakerfinu, en einnig margar kanónur úr hjólabrettaheiminum. „Rosalega illa lesið í þarfir borgarinnar hér,“ skrifar Emmsjé Gauti sem tekur fram að hjólabrettamenning hafi veitt Ingólfstorgi líf gegnum árin. Hann hvetur borgaryfirvöld til að „owna þessi mistök“, hverfa frá áformunum og finna sumarmarkaðnum annan stað. Mynd úr safni. Hjólabrettakappinn hér tengist ekki fréttinni með beinum hætti. „Þvílíkur mislestur hjá [R]eykjavík að Ingólfstorg eigi að hýsa sölubása,“ skrifar tónlistarmaðurinn Aron Kristinn Jónasson undir færsluna og leggur til að sölubásarnir kynnu að eiga betur heima í „öllum þeim tómu rýmum á jarðhæðum borgarinnar sem voru settar reglur um að ættu að hýsa fyrirtæki.“ Heilagur staður Inga Hrafni finnst það hughreystandi hversu margir úr senunni hafi tekið sig til og komið jaðaríþrótt eins og hjólabrettaiðkun til varnar. „Ég er allavega glaður að það er verið að taka vel undir þetta.“ Hjólabrettakapparnir hyggjast leita svara hjá borginni. „Ingólfstorg er heilagur staður fyrir okkur skaterana og það yrði í raun hræðilegt ef þetta yrði að einhverjum götumarkaði. Þá gætum við bara ekkert skate-að úti í sumar.“
Hjólabretti Skipulagsmál Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Bíður þetta böl lands og þjóðar? Lífið Borgin vill breyta Ingólfstorgi í sumarmarkað: „Eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Menning Til Íslands fyrir náttúruna en fann ástina og nýja vinnu Lífið Einar kom öllum á óvart Lífið Hvað veistu um… Eurovision? Lífið Nennti ekki að meika það Tónlist Oddvitaáskorunin: Gleymdi að bera kaupin undir eiginkonuna Lífið Oddvitaáskorunin: Of margir Liverpool-aðdáendur á listanum Lífið Kosningavökur flokkanna: Hótel, veislusalir og einn leynistaður Lífið Oddvitaáskorunin: Ekki spenntur fyrir hvalveiðum Lífið Fleiri fréttir Borgin vill breyta Ingólfstorgi í sumarmarkað: „Eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Tíminn stóð í stað í bílveltunni Sjóðheitir listamenn í eina litríka sæng Benedict snýr aftur í Þjóðleikhúsið og Óresteia í útrás Heiðra Sigrúnu Eldjárn með sérstöku brunnloki í Lækjargötu Myndlistarkonan Rúna er látin Netflix setti leikárið í Borgó í uppnám Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Krefja Apple um íslensku Þakklát að þurfa ekki að hafa teppi á klósettinu Íbúar furða sig á horfnu listaverki Borgarleikhúsið sviptir hulunni af Trölla Villi vandræðaskáld valinn bæjarlistamaður Akureyrar Ævar Þór, Birna og Jón hlutu Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar „Hugur manns í þunglyndi er eineltishrotti“ Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Hafnfirðingar vinna að sýningu um Bó Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Settu tærnar upp í loft og fengu knús Sjá meira