Umdeilt víti gefur Celtic séns á titlinum en jafntefli dugir Tómasi og félögum Ágúst Orri Arnarson skrifar 13. maí 2026 21:50 Allt ætlaði um koll að keyra þegar Celtic skoraði sigurmarkið á níundu mínútu uppbótartímans. Robert Perry/PA Images via Getty Images Ljóst er að jafntefli mun duga Hearts gegn Celtic í lokaumferð skosku úrvalsdeildarinnar. Hearts gæti þar með orðið meistari, fyrsta liðið til að skáka Celtic og Rangers í rúm fjörutíu ár. Celtic er samt enn í séns, eftir umdeildan vítaspyrnudóm.
Hearts fagnaði sannfærandi 3-0 sigri gegn Falkirk í kvöld og situr því enn í toppsæti deildarinnar. Á sama tíma sótti Celtic 2-3 sigur gegn Mothervell eftir mikla dramatík. Celtic tryggði sigurinn með marki úr vítaspyrnu, sem var mjög umdeild, á níundu mínútu uppbótartíma. „Þetta er viðbjóðslegt. Við erum með allt á móti okkur. Mér finnst þetta ekki vera víti,“ sagði Derek McInnes, þjálfari Hearts, þegar hann sá dóminn sem féll í leik Celtic gegn Motherwell. Ef Celtic hefði gert jafntefli í þessum leik hefði Hearts mátt tapa með allt að fimm mörkum í lokaumferðinni en nú þarf Hearts jafntefli eða sigur. Atvikið má sjá hér fyrir neðan. Boltinn fór í hönd varnarmanns að mati dómarans en þetta var bara góður skalli að mati Hearts-manna. 🟢 Here's the incident that resulted in Celtic's winning penalty at Fir Park, following a VAR check!Motherwell vs Celtic & Hearts vs Falkirk reaction | Sky Sports Football now 📺 pic.twitter.com/kwFO6mOH7t— Sky Sports Scotland (@ScotlandSky) May 13, 2026 McInnes vildi sjálfur fá vítaspyrnu í 1-1 jafntefli Hearts gegn Motherwell á sunnudag. Dómararnir hafa því haft mikið að segja um titilbaráttuna í Skotlandi. „Þetta er mjög lélegt og það lítur út fyrir að [Celtic] þetta víti sé bara gefins. Þeir eru mjög heppnir. Þetta fer þá alla leið, í lokaumferðina. Við erum ánægðir að vera hluti af því. Við munum þurfa að sækja úrslit. Þetta verður svakalegt,“ sagði McInnes einnig. Celtic tekur á móti Hearts í lokaumferðinni á sunnudag. Einu stigi munar milli liðanna og því mun Hearts duga jafntefli en heimamenn Celtic verða að vinna leikinn til að verða meistarar. Tómas Bent Magnússon hefur ekki spilað með liði Hearts síðan þann 14. mars vegna meiðsla og miðjumaðurinn verður einnig utan vallar í lokaumferðinni.
Skoski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Sjá meira