Hvar slær hjarta kjósenda? Ragnar Sigurður Kristjánsson skrifar 14. maí 2026 07:11 Viðskiptaráð lagði í aðdraganda kosninga spurningakönnun fyrir framboðin í Reykjavík, sem varpar ljósi á stefnu þeirra út frá efnahagslegu frelsi og skýrleika stefnu. Í framhaldi af því bauð ráðið almenningi spreyta sig á könnuninni í formi kosningaprófs og þannig máta sig við framboðin í Reykjavík. Yfir 7300 manns hafa tekið prófið, sem er enn aðgengilegt á vefsíðu ráðsins. Út frá niðurstöðunum má sjá hvaða mál eru vinsælustu og óvinsælust meðal kjósenda. Áherslubreytingar í menntamálum og stjórnsýslu vinsælar Ljóst er að þátttakendur eru ekki spenntir fyrir skatta- og gjaldahækkunum í borginni, en tvö vinsælustu málin sneru að því að hækka ekki gjaldskrár umfram verðbólgumarkmið og að hækka ekki fasteignagjöld umfram verðlagsþróun. Mikill samhljómur er meðal þátttakenda og framboðanna í afstöðu til þessara tveggja mála, en öll framboð eru sammála því að stilla gjaldskrár- og fasteignagjaldahækkunum í hóf, að Pírötum frátöldum sem eru hlutlausir gagnvart fullyrðingunum. Þátttakendur eru jafnframt fylgjandi breytingum í menntamálum, þar sem að þrjú af vinsælustu málum kosningaprófsins snúa að breyttum áherslum í menntakerfinu. Mikill meirihluti þátttakenda voru fylgjandi því að auka áherslur á grunnfög á borð við lestur, stærðfræði og íslensku, taka upp tölustafaeinkunnir á ný og innleiða aftur samræmd próf við lok grunnskólagöngu. Nokkur samhljómur er meðal þátttakenda og framboðanna í afstöðu til þessara mála, þó með einhverjum undantekningum. Píratar eru andvígir því að innleiða samræmd próf við lok grunnskólagöngu, en öll hin framboðin fylgjandi. Þá er Vinstrið andvígt því að auka áherslu á grunnfögin og Viðreisn hlutlaus gagnvart þeirri fullyrðingu, en öll hin framboðin fylgjandi. Upptaka tölustafaeinkunna er umdeildari, þar sem Vinstrið, Sósíalistar og Píratar eru andvígir, Samfylkingin og Viðreisn eru hlutlaus, en önnur framboð eru fylgjandi. Þá eru breytingar á stjórnsýslu borgarinnar vinsælar meðal kjósenda. Þannig er mikill meirihluti fylgjandi því að fækka borgarfulltrúum, afnema 70% laun fyrstu varaborgarfulltrúa, fækka starfsfólki í stjórnsýslu umtalsvert og að taka upp eina greiðslu fyrir hvern borgarfulltrúa, í stað álags fyrir setu í nefndum. Nokkur munur er á afstöðu framboðanna til þessara mála, sem gefur til kynna að þau séu umdeildari meðal frambjóðenda en kjósenda. Umferðagjöld og sala á hlut í Orkuveitunni óvinsælust Andstaða við mál var ekki jafn afgerandi, þar sem að aðeins var meirihluti þátttakenda andsnúinn fjórum málum. Tvö þeirra snúa að áherslum í samgöngumálum, en samkvæmt niðurstöðum kosningaprófsins er mest andstaða við upptöku umferðagjalda á háannatímum til að fjármagna samgönguframkvæmdir. Þá voru þáttakendur jafnframt á móti því að minnka vægi einkabílsins í samgöngukerfinu. Aðeins Viðreisn og Samfylking voru fylgjandi því að leggja á umferðargjöld á háannatímum. Píratar voru hlutlausir gagnvart álagningu gjaldanna, en önnur framboð á móti. Hvað varðar vægi einkabílsins, þá voru Vinstrið, Viðreisn og Samfylking fylgjandi því að minnka vægi hans, Píratar, Sósíalistar og Góðan Daginn framboðið voru hlutlaus, en aðrir á móti. Mál sem snúa að sölu á hlut í Orkuveitunni og að kanna hvort bjóða ætti út rekstur hluta sundlauga Reykjavíkur voru einnig óvinsæl meðal þátttakenda. Þar eru þátttakendur í takti við framboðin, en öll framboðin eru á móti sölu á hlut í Orkuveitunni og aðeins Miðflokkurinn og Góðan daginn framboðið eru fylgjandi því að kanna útboð á rekstri sundlauga. Sjálfstæðisflokkurinn var hlutlaus gagnvart þeirri fullyrðingu. Tökum framfaraskref í takt við vilja kjósenda Af svörum þátttakenda að dæma er augljóst ákall um aðhald í skatta- og gjaldahækkunum, áherslubreytingar í menntamálum og niðurskurð í efstu lögum stjórnsýslu Reykjavíkurborgar. Þátttakendur virðast jafnframt hafa lítinn áhuga á frekari gjaldtöku í umferðinni og mótfallnir því að minnka vægi einkabílsins. Afstaða til þessara þrjátíu mála sem kosningaprófið mælir er nokkuð afgerandi í flestum tilfellum. Verðandi borgarfulltrúum væri því í lófa lagið að horfa til þess hvaða áherslum er eftirspurn eftir og hverjum ekki. Þannig mætti innleiða breyttar áherslur í lykilmálaflokkum, sem eru í takt við vilja kjósenda. Höfundur er hagfræðingur Viðskiptaráðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ragnar Sigurður Kristjánsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir Skoðun Ísland og ESB: Horft af brúnni Þorvaldur Gylfason Skoðun Já til að sjá er tálsýn Guðmundur Edgarsson Skoðun Vextir á villigötum Agnar Tómas Möller Skoðun Það sem mamma og pabbi kenndu mér Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson Skoðun Tafla á villigötum Gauti Eggertsson Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson Skoðun Umræða um dánaraðstoð krefst mannúðar og varfærni Ingrid Kuhlman Skoðun Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Birgir Orri Ásgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Jákvæða hliðin á minkamálinu Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Viðvörunarljós í evrópsku atvinnulífi Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna erum við enn að reyna að binda hendur fólks? María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir kjósendur eða evrópskir embættismenn? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Tafla á villigötum Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá er tálsýn Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það sem mamma og pabbi kenndu mér Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í – eflum forvarnir í raun! Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ísland og ESB: Horft af brúnni Þorvaldur Gylfason skrifar Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar Skoðun Umræða um dánaraðstoð krefst mannúðar og varfærni Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Vextir á villigötum Agnar Tómas Möller skrifar Skoðun Rangfærslurnar standa enn og ekkert að þeim vikið Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hver lygi skapar skuld við sannleikann Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Herskylduhrakspár Haraldar skekkja raunhæfa sýn á varnarmál Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Sigmar Guðmundsson, Bandaríkin og öryggi Íslands Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í – eflum forvarnir í raun! Fanný Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar
Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar
Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason skrifar