Atkvæði er rödd Joanna Marcinkowska skrifar 13. maí 2026 19:30 Ég ólst upp í Póllandi á tímum kommúnisma. Þar var talað um kosningar, en merking þeirra var allt önnur en við þekkjum í lýðræðissamfélagi. Fólk fór á kjörstað, kjörseðlar voru til staðar. Það voru ræður, slagorð og áróður. Á yfirborðinu leit þetta út eins og lýðræði. En raunverulegt val var takmarkað og niðurstöðurnar ekki alltaf endurspeglun á vilja fólks. Í pólskri sögu er til dæmi sem margir þekkja: „3 x TAK“ — „þrisvar já“. Þjóðaratkvæðagreiðsla sem átti að sýna vilja þjóðarinnar, en síðar kom í ljós að niðurstöðunum hafði verið hagrætt. Þegar maður elst upp með slíkar sögur í kringum sig lærir maður að taka kosningaréttinum ekki sem sjálfsögðum hlut. Kannski er það þess vegna sem mér finnst svo mikilvægt að við nýtum réttinn sem við höfum hér á Íslandi. Við búum í samfélagi þar sem við getum haft skoðanir, gagnrýnt, boðið okkur fram, kosið, skrifað greinar, spurt spurninga og kallað eftir breytingum. Það er réttur sem fólk í mörgum löndum hefur barist fyrir og sum hafa greitt mjög hátt verð fyrir. Lýðræði er ekki fullkomið kerfi. Stundum er það hægt, ósanngjarnt og okkur finnst stjórnmálin fjarlæg, flókin eða þreytandi. Stundum hugsum við: „Mitt atkvæði breytir engu.“ En það er einmitt þannig sem lýðræði veikist — þegar fólk hættir að trúa því að rödd þess skipti máli. Winston Churchill sagði árið 1947 að lýðræði væri „versta stjórnarformið, fyrir utan öll hin sem hafa verið reynd“. Með því var hann ekki að segja að lýðræði væri fullkomið, heldur að þrátt fyrir alla galla þess væri það samt betra en önnur stjórnarform sem heimurinn hafði kynnst. Í sömu ræðu lagði hann áherslu á að fólkið ætti að ráða og að almenningsálitið ætti að hafa áhrif á þá sem fara með völdin. Mér finnst þetta góð áminning. Lýðræði virkar ekki vegna þess að það er gallalaust, heldur virkar það vegna þess að við tökum þátt og gefumst ekki upp á því. Við megum ekki gleyma að kosningar snúast ekki bara um flokka og frambjóðendur. Þær snúast um það hvernig samfélag við viljum búa í. Þær snúast um leikskóla, skóla, húsnæði, samgöngur, þjónustu við eldra fólk, inngildingu, umhverfi, menningu og það hvort fólk upplifi að það eigi raunverulega heima í samfélaginu sínu. Í sveitarstjórnarkosningum er þetta sérstaklega áþreifanlegt. Þá erum við ekki aðeins að kjósa um stór orð og fjarlægar hugmyndir. Við erum að kjósa um nærumhverfið okkar. Um göturnar sem börnin okkar ganga um, skólana sem þau sækja, þjónustuna sem fjölskyldur þurfa á að halda og það hvernig bærinn okkar tekur á móti fólki, hlustar á það og gefur því tækifæri til að taka þátt. En lýðræði má ekki bara birtast á fjögurra ára fresti, það þarf að lifa á milli kosninga. Það þarf að sjást í því hvernig bæjarfélag talar við íbúa, hvernig ákvarðanir eru teknar og hvort fólk upplifir að það geti haft áhrif áður en allt er þegar ákveðið. Garðabær hefur þegar ýmsar leiðir fyrir íbúa til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri, meðal annars íbúafundi, samráðsgátt og ábendingagátt. En við í Garðabæjarlistanum teljum að við getum gert betur. Við viljum efla lýðræði í Garðabæ þannig að þátttaka íbúa verði raunverulegri, aðgengilegri og nær daglegu lífi fólks. Við viljum auka gagnsæi, bæta aðgengi að upplýsingum og skapa vettvang þar sem fjölbreyttar raddir fá að heyrast. Við viljum meðal annars stofna íbúaráð í öllum hverfum Garðabæjar, tryggja fjölbreytta þátttöku í þeim, setja upp stafræna samráðsgátt, gera upplýsingar og samráð aðgengileg á fleiri tungumálum og tengja niðurstöður samráðs beint við ákvarðanatöku. Við viljum að fólk hafi ekki bara atkvæði á kjördag, heldur rödd í sínu nærumhverfi. Að ungmenni, foreldrar, eldra fólk, fatlað fólk, innflytjendur, leigjendur, eigendur, fólk í öllum hverfum og með ólíka reynslu geti sagt: „Þetta skiptir mig máli. Þetta þarf að laga. Þetta vil ég sjá breytast.“ Slík þátttaka byrjar alltaf á því að við nýtum þann grundvallarrétt sem við höfum: að kjósa. Atkvæðið á kjördag ræður því hver fær umboð til að taka ákvarðanir, hvaða áherslur verða ráðandi og hvort hugmyndir eins og hverfisráð, meira samráð og opnari stjórnsýsla komast í framkvæmd. Atkvæði sem er notað segir: Ég skipti máli. Mín rödd skiptir máli. Samfélagið mitt skiptir máli. Og við í Garðabæjarlistanum vitum að þetta er ekki bara falleg setning. Í síðustu sveitarstjórnarkosningum fengum við tvo fulltrúa í bæjarstjórn. Samkvæmt Kosningasögu vantaði Garðabæjarlistann aðeins 12 atkvæði til að ná þriðja fulltrúanum. Tólf atkvæði, nokkrir einstaklingar, nokkrar fjölskyldur, nokkrir sem ákveða að mæta — eða mæta ekki. Þess vegna skiptir hvert atkvæði máli. Við erum heppin að geta kosið, gagnrýnt og boðið fram aðra sýn og beðið fólk um umboð til að vinna fyrir henni. Við megum ekki gleyma að kosningaréttur hefur aðeins áhrif ef við notum hann. Þess vegna vil ég hvetja alla sem hafa kosningarétt: Mætið. Kjósið. Notið röddina ykkar. Ekki láta aðra ákveða fyrir ykkur og halda að atkvæðið ykkar breyti engu. Í Garðabæ vitum við að örfá atkvæði geta ráðið því hver situr við borðið, hvaða mál komast á dagskrá og hvaða raddir fá að heyrast. Lýðræði lifir ekki af sjálfu sér. Það lifir þegar við mætum og stundum byrjar breytingin ekki með háværri byltingu, heldur með einum litlu krossi á kjörseðli. Höfundur skipar 3. sæti á lista Garðabæjarlistans í Garðabæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar