Golf

„Svo lærir maður á þetta og byrjar að blómstra í lífinu og golfinu“

Sindri Sverrisson skrifar
Tómas Eiríksson Hjaltested er stigameistari síðasta árs.
Tómas Eiríksson Hjaltested er stigameistari síðasta árs. vísir/Anton

Tómas Eiríksson Hjaltested hefur keppni á GSÍ-mótaröðinni í golfi á morgun sem ríkjandi stigameistari, nýútskrifaður úr háskóla á Flórída og spenntur fyrir komandi tímum.

Tómas útskrifaðist á dögunum úr viðskiptum og bókfærslu frá Jacksonville-háskólanum en hefur samhliða náminu vaxið og dafnað sem kylfingur.

Klippa: Tómas klár í golfsumarið

„Þetta er mjög gott tækifæri fyrir alla sem geta farið. Skemmtileg fjögur ár og ég myndi alltaf mæla með þessu. Maður lærir að búa einn og bætir ofan í það að spila golf allan ársins hring, sem breytir lífinu fyrir golfara frá Íslandi. Þetta er búið núna en það koma aðrir hlutir í staðinn og það er spennandi tími framundan,“ sagði Tómas á kynningarfundi GSÍ í vikunni.

Hann tekur undir að því fylgi vissulega áskoranir að fara út til Bandaríkjanna en hvetur alla til að nýta slíkt tækifæri:

„Maður fer ungur og ekki alveg tilbúinn í þetta fyrst. Fyrsta árið er erfitt fyrir flesta. En svo lærir maður á þetta og byrjar að blómstra, bæði í lífinu og náttúrulega í golfinu,“ sagði Tómas.

Hann á fyrir höndum í sumar meðal annars Opna breska áhugamannamótið, Evrópumót með landsliðinu og svo taka við úrtökumót fyrir Evrópumótaröðina í haust. Hér heima á Tómas svo titil að verja sem stigameistari og byrjar á Reykjanesmótinu nú um helgina.

„Það væri mjög gaman að vinna [GSÍ-mótaröðina] tvö ár í röð og vonandi þá að vinna líka fleiri mót á mótaröðinni. Ég náði ekki að vinna neitt mót í fyrra en sýndi mjög gott jafnvægi og endaði þrisvar í 2. sæti og einu sinni í 3. sæti. Vonandi rúllar maður þessu yfir línuna í ár og það væri geðveikt aukalega að ná öðru Íslandsmótinu líka en við sjáum bara hvað gerist.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×