Ýtum undir sterkari tengsl í Hafnarfirði Svenný Kristins skrifar 13. maí 2026 13:50 Kaupmaðurinn á horninu Ég vil geta skroppið í búð að kaupa það sem vantar í uppskriftina án þess að þurfa að ræsa bílinn. Ný hverfi eru oft byggð með engri verslun í göngufæri og stundum er jafnvel langt að keyra. Kaupmaðurinn á horninu er meira en bara verslun, í kringum kaupmanninn getur myndast sterkara samfélag þar sem fólk þekkir nágranna sína með nafni. Frjáls markaður einn og sér er ekki svo frjáls þegar stóru matvörukeðjurnar eru með sérsamninga við heildsala eða reka sínar eigin heildsölur. Vinstrið í Hafnarfirði vill leita leiða til að tryggja að minni atvinnurekstur gangi upp, til dæmis með afsláttum af fasteignag jöldum á minni fyrirtæki eða nýsköpunarstyrkjum. Jólaþorpið allt árið Við viljum koma af stað markaðsmenningu í Hafnarfirði þar sem hægt er að kaupa vörur beint frá býli, handverk og notaðan fatnað. Við viljum aðstöðu þar sem sjómenn geta selt Hafnfirðingum fisk milliliðalaust og listamenn geta komið afrakstri vinnu sinnar á framfæri. Við elskum að heimsækja slíka markaði erlendis; af hverju getum við ekki verið með samskonar markaði hér? Það væri hægt að byrja á Thorsplani í sumar og finna markaðnum svo stað innanhúss. Við leggjum til mánaðarlegan markað sem vonandi er hægt að opna alla sunnudaga. Nokkurs konar jólaþorp allt árið. Samfélagshús Samfélagshús (e. third spaces) væru kjörin til að brúa bilið milli ólíkra hópa, minnka einmanaleika og sporna við sundrung. Þau væru samkomustaður utan vinnu/skóla og heimilis: þriðja rýmið. Áður fyrr var kirkjusókn ríkur hluti af lífi flestra en í kringum trúarbrögð myndast sterk samfélög. Í dag eru færri trúræknir og fjölbreyttari trú iðkuð, svo mörgum reynist erfitt að mynda slík tengsl og lítið er um tækifæri fyrir ólíka hópa til að kynnast. Mig dreymir um að í öllum hverfum sé starfrækt samfélagshús þar sem fólk getur komið saman óháð aldri, trú, kyni, fötlun, stjórnmálaskoðunum, uppruna eða stétt. Þar geta íbúar skipulagt viðburði, spilakvöld, litla tónleika eða hvað sem þeim dettur í hug. Aðgangur væri gjaldfrjáls og engin krafa um að kaupa veitingar, en veitingasala væri þó tilvalin til að auka aðdráttarafl. Vinstrið er með sterka sýn á hvernig samfélag við viljum í Hafnarfirði. Við erum með hugsjón og viljum leggja okkar af mörkum til að byggja sterkara samfélag. Höfundur er aðstoðarmaður iðjuþjálfa í öðru sæta á listi vinstrisins í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hafnarfjörður Mest lesið Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar