Streeting sagður munu skora Starmer á hólm í vikunni Hólmfríður Gísladóttir skrifar 13. maí 2026 12:24 Streeting er sagður vilja Starmer frá sem fyrst. Getty/Jack Taylor Bandamenn Wes Streeting, heilbrigðisráðherra Bretlands, segja hann hyggjast segja af sér í vikunni og skora forsætisráðherrann Keir Starmer á hólm. Pólitísk framtíð Starmer hangir á bláþræði eftir afhroð Verkamannaflokksins í kosningum á dögunum, þar sem flokkurinn tapaði nærri 1.500 sætum og embættum út um allt land.
Nokkrir undirráðherrar hafa sagt af sér á síðustu dögum og þá hafa fregnir borist af því að yfir 70 þingmenn Verkamannaflokksins séu reiðubúnir til að setja nafn sitt við vantraust á Starmer. Einn ráðherra í ríkisstjórninni, innanríkisráðherrann Shabana Mahmood, hefur kallað eftir því að forsætisráðherrann leggi það upp hvenær hann hyggst draga sig í hlé. Sjálfur hefur Starmer sagst munu sitja sem fastast. Um 100 þingmenn hafa lýst yfir stuðningi við hann en andstæðingar hans þurfa atkvæði 20 prósent þingmanna Verkamannaflokksins til að knýja fram formannskjör. Þar sem þingmenn flokksins eru 403 jafngildir þetta 81 þingmanni. Samkvæmt breskum miðlum neitaði Starmer að ræða við Streeting eftir ríkisstjórnarfund í gær. Fregnir höfðu þá borist af því að Streeting hygðist fara gegn Starmer. Þeir áttu hins vegar fund í morgun, sem stóð í undir 20 mínútur. Þeir eru nú báðir staddir á þinginu, þar sem Karl III flytur stefnuræðu stjórnvalda. Komi til formannskjörs verður Starmer sjálfkrafa á kjörseðlinum en aðrir frambjóðendur þurfa að tryggja sér stuðning 81 þingmanns til að koma til greina. Aðrir sem hafa verið nefndir til sögunnar sem mögulegir arftakar Starmer eru til að mynda Andy Burnham, borgarstjóri Manchester, og Angela Rayner, fyrrverandi aðstoðarforsætisráðherra. Segja má að Verkamannaflokkurinn sé klofinn í afstöðu sinni til Starmer og mögulegs formannskjörs, ekki síst vegna stöðu efnahagsmála og ástandsins í alþjóðamálum. Þá hafa Bretar nú þegar haft sex forsætisráðherra á síðustu tíu árum.
Bretland Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Innlent Fleiri fréttir Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Sjá meira