Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar 13. maí 2026 12:02 Við afgreiðslu ársreiknings fyrir árið 2024 sagði oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði að það væri þriðja árið í röð sem meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks skilaði bænum í halla. Hann sagði einnig að uppsafnaður halli á kjörtímabilinu væri að lágmarki rúmir fimm milljarðar en þegar leiðrétt væri fyrir sölu á byggingarrétti þá væri uppsafnaður halli raunverulega tæpir 10 milljarðar. Sjálfstæðisflokkur og Framsókn beittu því töframætti skapandi reikningsskila af fullum þunga að hans mati. Svo mörg voru þau orð. Þess vegna kom það nokkuð á óvart að sami maður tilkynnti það í gær að hann hefði ákveðið að kjósa Sjálfstæðisflokkinn með sérstakri vísan til ábyrgrar fjármálastjórnunar. Hér birtist okkur alveg ný tegund af stefnufestu, sem jafnvel gleggstu menn gætu átt erfitt með að skilja til fulls. Það er hins vegar hægt að taka undir flest sem Oddviti Viðreisnar hefur sagt um fjármálastjórn meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks á kjörtímabilinu þar til tónninn breyttist nú undir lok kjörtímabilsins af einhverjum ástæðum. Fyrri orð oddvitans eiga nefnilega jafn vel við í dag og fyrir ári síðan. Rekstrarniðurstaðan dapurleg fyrir meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rekstur bæjarins er ekki sjálfbær og það staðfestir ársreikningur fyrir árið 2025. Bærinn er rekinn með umtalsverðum halla því sameiginlegar tekjur bæjarins standa ekki undir hefðbundnum rekstrarútgjöldum. A-hluti bæjarsjóðs er rekinn með tæplega 1,2 milljarða halla þrátt fyrir að tekjur af útsvari og fasteignaskatti séu tæpum 1,5 milljarði hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Fyrir meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks, sem hefur stært sig af traustri fjármálastjórn, er það dapurleg niðurstaða en staðfestir viðvörunarorð Samfylkingarinnar allt kjörtímabilið. Skuldir hækkað um 24 milljarða á fjórum árum Til þess að mæta þessari stöðu og brúa bilið eru ný lán tekin og skuldir bæjarins hækka verulega á milli ára, raunar hvergi meira á höfuðborgarsvæðinu. Heildarskuldir og skuldbindingar Hafnarfjarðarbæjar hafa hækkað úr rúmum 46 milljörðum króna í tæpa 68 milljarða á síðustu fjórum árum. Skuldir bæjarins hafa því hækkað um heila 24 milljarða króna á þeim tíma og skuldir á hvern íbúa vaxið úr rúmlega 1,5 milljón í rúmar 2 milljónir á kjörtímabilinu og eru þær hæstu á höfuðborgarsvæðinu. Það er áfellisdómur yfir fjármálastjórn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks. Veltufé frá rekstri langt undir viðmiðum og einskiptistekjur klikka Allar helstu lykiltölur ársreikningsins tala sínu máli. Veltufé frá rekstri á síðasta ári stendur ekki undir nema um 30% af afborgunum lána. Þessi staða hringir viðvörunarbjöllum og verður að taka föstum tökum.Skýringar fulltrúa Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks á versnandi stöðu valda einnig áhyggjum. Þeir segja eina meginástæðuna fyrir verri afkomu þá að ekki hafi tekist að selja nægilega margar lóðir á nógu háu verði eins og áformað var. Áætlanagerð sem byggir á einskiptistekjum er ekki skynsamleg og jafnaðarmenn hafa varað við henni. Stórar skuldbindingar utan efnahagsreiknings Meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks setur líka kíkinn fyrir blinda augað því hann kýs að líta algjörlega framhjá þeirri staðreynd að stórar skuldbindingar upp á milljarða króna standa utan efnahagsreiknings og hafa því ekki áhrif á niðurstöðu ársreiknings en munu sannarlega hafa fjárhagsleg áhrif á rekstur og framkvæmdagetu bæjarins til framtíðar. Hér er um að ræða skuldbindingar vegna nýbyggingar Tækniskóla Íslands í Hafnarfirði, en þar ber bærinn fjárhagslega ábyrgð á útvegun byggingarhæfrar lóðar og með stofnframlagi í verkefnið og aðeins lítill hluti þeirrar skuldbindingar upp á um 5 milljarða hefur verið inntur af hendi. Afleiðingar frjálshyggjuævintýris Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks bíða úrlausnar nýrrar bæjarstjórnar Þá verður ekki litið framhjá því að nýrrar bæjarstjórnar bíður að leysa úr stórkostlegum rekstrarmistökum Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks frá síðustu aldamótum. Þar er um að ræða frjálshyggjutilraun flokkanna sem fólst í því að fá einkaaðila til að byggja og eiga skólahúsnæði í bænum og leigja þau af þeim. Á leigutímanum hafa himinháar fjárhæðir verið greiddar í leigu til einkaaðila en nú er komið að skuldadögum þar sem leigutímanum er að ljúka í Áslandsskóla og leikskólunum Tjarnarási og Hörðuvöllum og samningaviðræður við eiganda mannvirkjanna hafa ekki leitt til niðurstöðu. Ljóst er að það bíður nýrrar bæjarstjórnar að leysa úr þessum erfiða hnút og greiða úr afleiðingum einkaframkvæmdarævintýris og frjálshyggjutilraunar Framsóknar- og Sjálfstæðisflokksins frá síðustu aldamótum. Raunsæi og hreinskilni í stað innihaldslausrar glansmyndar Fyrir liggur að ný bæjarstjórn mun fá í fangið mörg þung og erfið mál þar sem núverandi meirihluta hafa verið mislagðar hendur. Tryggja verður fjárhagslegan stöðugleika, skapa framtíðarsýn og festu í rekstrinum á sama tíma og farið er í nauðsynleg og aðkallandi uppbyggingarverkefni. Samfylkingin er tilbúin til þess að leiða það verkefni á næsta kjörtímabili. Kjósendur geta treyst því að við munum ekki beita töframætti skapandi reikningsskila í fjármálum bæjarins. Við munum ekki bera á borð glansmynd án innihalds þegar við ræðum fjárhagsuppgjör bæjarins. Við ætlum að nálgast þessi mál af raunsæi og hreinskilni gagnvart bæjarbúum um leið og við tökum á rekstrinum af festu og ábyrgð. Eina raunhæfa leiðin til þess að tryggja breytingar í rekstri Hafnarfjarðar á næsta kjörtímabili er að kjósa Samfylkinguna í kosningunum á laugardaginn. XS-Sterkari saman Höfundur er bæjarfulltrúi og skipar 3. sætið á lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Árni Rúnar Þorvaldsson Hafnarfjörður Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar