Framsókn vill vinna gegn einmanaleika Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar 12. maí 2026 10:12 Einmanaleiki er ein mesta meinsemd nútíma samfélags. Á undanförnum árum hafa rannsóknir ítrekað sýnt fram á hversu mikil áhrif félagsleg tengsl hafa á heilsu og vellíðan fólks. Sterk tengsl geta bætt líkamlega og andlega heilsu og aukið lífsgæði. Rannsóknir hafa jafnframt sýnt að sterk félagsleg tengsl geta minnkað líkur á ótímabærum dauða um allt að 50%. Þá hefur einnig verið bent á að góð félagsleg tengsl dragi úr líkum á hjarta- og æðasjúkdómum og bæti almenna líðan fólks. Þrátt fyrir að fólk hafi sjaldan haft jafn marga möguleika til samskipta í gegnum síma og samfélagsmiðla upplifa margir einmanaleika. Þetta á við um fólk á öllum aldri, ekki síst ungt fólk og eldra fólk, sem getur átt á hættu að verða útundan í samfélagi þar sem hraðinn er mikill og raunveruleg samvera er oft af skornum skammti. Einmanaleiki er því ekki aðeins einkamál einstaklinga heldur samfélagslegt verkefni sem borgaryfirvöld þurfa að taka alvarlega og sporna gegn. Í borgarsamfélagi myndast tengsl í hverfum, skólum, vinnustöðum, íþróttafélögum, félagsmiðstöðvum, menningarstarfi og almenningsrýmum. Borgin gegnir því mikilvægu hlutverki þegar kemur að því að skapa aðstæður þar sem fólk getur hist, tekið þátt og upplifað að það tilheyri. Framsókn vill byggja borg þar sem fólk á öllum aldri upplifir öryggi, virkni og tengsl við nærumhverfi sitt. Við viljum því efla félagslega innviði í hverfum, styðja við tómstundir, íþróttir, menningu og tryggja að fleiri hafi raunveruleg tækifæri til þátttöku óháð aldri eða efnahag. Þar skiptir máli að börn og ungmenni hafi aðgang að fjölbreyttu félags- og tómstundastarfi, enda er félagsleg þátttaka grunnur að góðri geðheilsu, sterkri sjálfsmynd og aukinni vellíðan. Framsókn vill að öll börn á aldrinum 5–18 ára standi til boða ein frí tómstund og vill fjölga öruggum samverurýmum fyrir ungt fólk með því að koma upp ungmennahúsum í öllum borgarhlutum. Sama gildir um eldra fólk. Reykjavík á að vera borg þar sem fólk getur tekið virkan þátt í samfélaginu alla ævi. Með öflugu starfi í samfélagshúsum, betra aðgengi að menningu, hreyfingu og félagsstarfi ásamt því að bjóða upp á frístundastyrk fyrir tekjulágt eldra fólk má draga úr félagslegri einangrun. Skipulag borgarinnar hefur einnig mikil áhrif á hvernig fólk lifir og tengist. Opin svæði, gönguleiðir, sundlaugar, almenningsgarðar, menningarhús og samkomustaðir eru ekki aðeins hluti af innviðum borgarinnar heldur mikilvægur vettvangur fyrir mannleg tengsl. Þess vegna skiptir máli að í hverfum borgarinnar sé fjölbreytt og aðgengileg aðstaða þar sem fólk getur hist, átt samskipti og tekið þátt í samfélaginu. Framtíðar uppbygging borgarinnar á því ekki aðeins að snúast um hús og götur heldur líka um mannlega þáttinn, samfélagið okkar. Með því að fjárfesta í félagslegum tengslum erum við að fjárfesta í lýðheilsu, vellíðan og sterkari samfélagi. Framsókn vill byggja borg þar sem fólk hefur tækifæri til að tengjast, taka þátt og finna að það skipti máli. Góð félagsleg tengsl skapa ekki aðeins betri líðan heldur einnig betri borg fyrir okkur öll. Þetta snýst um borgarbúa. Við óskum eftir þínum stuðningi þann 16. maí. Setjum X við B. Höfundur er í 2. sæti á lista Framsóknar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Sjá meira
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar