Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Rakel Sveinsdóttir skrifar 12. maí 2026 07:02 Það er eðlilegt í litlu samfélagi að vinnustaðir verði fyrir áhrifum af því sem er í gangi í umhverfinu. Eins og kosningum. Sem bæði geta kallað fram skemmtilega stemningu en eins líka kvíða eða streituviðbrögð hjá sumum. Vísir/Getty Nú þegar líður að kosningum er eins og spennan í andrúmsloftinu magnist. Ekki aðeins gefa frambjóðendur og kosningastjórar hressilega í, heldur virðist eins og samfélagið allt færist upp á næsta stig í ósýnilegri adrenalíngjöf.
Það skemmtilega við stress er nefnilega það að ekki er öll tegund streitu neikvæð. Ein tegundin kallast á ensku eustress, en það er jákvæð streita sem hvetur okkur áfram, gefur orku og fókus og hjálpar okkur oft til að standa okkur vel. Margir upplifa þessa tegund af streitu þegar það er einhver sérstök törn í gangi í vinnunni. Eða kosningar. Það eru hins vegar hinar tegundirnar af streitu sem eru ekki eins vænlegar. Sér í lagi þær tegundir sem verða langvarandi, eru endurteknar eða skella á okkur eins og stór alda eða áfall. Á vinnustöðum þessa vikuna má ætla að þrennt sé ríkjandi: Jákvæð spenna eða jákvæð streita. Fréttastofur elska til dæmis þennan tíma; eru á útopnu að undirbúa skemmtilega og fjölbreytta dagskrá fyrir komandi kjördag og kvöld. Hið sama er eflaust upp á teningnum hjá mörgum kosningaskrifstofum. Sem hringja út eins og enginn verði morgundagurinn og selja atkvæði af meiri ástríðu en nokkru sinni fyrr. Á sumum stöðum er eflaust rólegra yfirbragð. Svona „þetta skiptir ekki máli“ andrúmsloft; kosningarnar ná einfaldlega ekki að vekja upp nægilega mikla ástríðu eða áhuga til að breyta nokkru. Meira er verið að tala um veðrið eða hvort það náist að grilla um helgina. Að gera vel við sig í mat og drykk gæti reyndar verið ljúf tilhlökkun og óbein tenging við kosningar. Það þriðja sem gæti átt við er hins vegar kvíði eða einhvers konar skammtímastreita. Sem þarf ekkert endilega að tengjast kosningunum beint, heldur frekar því hvernig fólk upplifir andrúmsloftið í kringum sig; þegar allir aðrir eru svona uppteknir af því að tala um kosningar og önnur hver frétt í fjölmiðlum snýst um kosningarnar. Hjá sumum getur þetta stigmagnandi andrúmsloft valdið ákveðnum streituviðbrögðum sem fólki líður ekki vel með. Jafnvel þeim, sem þó upplifa sig í jákvæðu streitunni eða stemningunni. Í ágætri grein á Very Well Mind er fjallað ítarlega um ólík afbrigði streitu, helstu einkenni og afleiðingar. Þar eru líka ágætis góð ráð sem sumir gætu nýtt sér einmitt þessa síðustu daga fyrir kosningar. Þessi ráð eru til dæmis: Staldraðu við og andaðu. Því djúp öndun róar taugakerfið strax. Að róa okkur með því að setja hlutina í samhengi og spyrja: Hvers vegna er ég svo sem að stressa mig? Því oft fer heilinn einfaldlega í „allt er að fara til fjandans“ ham, án þess að nokkur ástæða sé til. Að vera vakandi fyrir því að orkan okkar fari ekki í hluti eða aðstæður sem við höfum enga stjórn á. Reyna frekar að setja fókusinn okkar á það sem að okkur snýr og við getum stjórnað. Göngutúr, hreyfing, að standa upp eða teygja aðeins úr okkur getur róað og slökkt á spennu. Stutt hlé hjálpa oft. Að tala rólega við okkur sjálf. Vera vakandi fyrir því hvað innri röddin okkar er að segja og passa að hún tali fallega til okkar. Muna að innri ró er færni en ekki eðli. Því oftar sem við æfum okkur í ró, því auðveldara verður að sækja hana.
Góðu ráðin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Tengdar fréttir „Við getum fengið Boga Ágústs til að gera og segja hvað sem er“ Við höfum ákveðna ímynd af hökkurum úr sjónvarpinu. Sem reyndar á ekki að skrifa sem hakkari, heldur hjakkari að sögn Gyðu Bjarkardóttur hjakkara og hugbúnaðarprófara. 19. maí 2025 07:00 Systkinin öll verið forsetar: „Tvö félög, tvöfalt stuð!“ „Erum við hér að tala við verðandi forseta Íslands eða ráðherra?“ er fyrsta spurningin til þeirra systkina Valtýs Örn, Elínar Höllu og Ólafs Helga Kjartansbarna. Því öll hafa þau sinnt hlutverki forseta málfundafélagsins Framtíðar í MR. 17. apríl 2025 08:02 Áhrif kosninga á starfsfólk og vinnustaði í næstu viku Stóri dagurinn á morgun og það eru ekki bara pólitíkusarnir sjálfir sem nú eru að keyra á adrenilíntönkunum, heldur margt fólk líka 29. nóvember 2024 07:00 „Erfitt fyrir marga að hætta í fréttum“ „Það er erfitt fyrir marga að hætta í fréttum. Því þessu starfi fylgir spenna sem er kannski erfitt að finna annars staðar," segir Heiðar Örn Sigurfinnsson, nýráðinn fréttastjóri RÚV. 21. mars 2022 06:57 Mest lesið Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Neytendur Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Viðskipti innlent Kalla inn súkkulaðbitakökur Neytendur Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segðu Já í vinnunni og það strax! Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Nýr 40/40 listi: Yngri stjórnendur hógværir og gamli leiðtogastíllinn að víkja „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Uppsagnir fram undan og óttinn vex Munu opnu vinnurýmin hverfa eins og hornskrifstofurnar? Eins og James Bond: Huggulegur, ferðast, leysir vandamál og drekkur martini Verðmæta samtalið er oft við kaffivélina eða á ganginum Sumarfrísdagur númer átta mesta sælan Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Meiri árangur í líkamsrækt og íþróttum með nýrri íslenskri tækni Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Sjá meira
„Við getum fengið Boga Ágústs til að gera og segja hvað sem er“ Við höfum ákveðna ímynd af hökkurum úr sjónvarpinu. Sem reyndar á ekki að skrifa sem hakkari, heldur hjakkari að sögn Gyðu Bjarkardóttur hjakkara og hugbúnaðarprófara. 19. maí 2025 07:00
Systkinin öll verið forsetar: „Tvö félög, tvöfalt stuð!“ „Erum við hér að tala við verðandi forseta Íslands eða ráðherra?“ er fyrsta spurningin til þeirra systkina Valtýs Örn, Elínar Höllu og Ólafs Helga Kjartansbarna. Því öll hafa þau sinnt hlutverki forseta málfundafélagsins Framtíðar í MR. 17. apríl 2025 08:02
Áhrif kosninga á starfsfólk og vinnustaði í næstu viku Stóri dagurinn á morgun og það eru ekki bara pólitíkusarnir sjálfir sem nú eru að keyra á adrenilíntönkunum, heldur margt fólk líka 29. nóvember 2024 07:00
„Erfitt fyrir marga að hætta í fréttum“ „Það er erfitt fyrir marga að hætta í fréttum. Því þessu starfi fylgir spenna sem er kannski erfitt að finna annars staðar," segir Heiðar Örn Sigurfinnsson, nýráðinn fréttastjóri RÚV. 21. mars 2022 06:57