„Ef Örvar hefði látið sig detta hefði þetta verið víti“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. maí 2026 23:15 Atvikið þar sem Stjörnumenn vildu fá vítaspyrnu gegn KR-ingum. sýn sport Sérfræðingar Stúkunnar telja að KR-ingurinn Finnur Tómas Pálmason hafi sloppið vel þegar hann togaði í Stjörnumanninn Örvar Eggertsson innan vítateigs í uppbótartíma í leik liðanna í Bestu deild karla á föstudaginn.
Stjarnan var 2-0 yfir í hálfleik í leiknum á Samsung-vellinum en KR kom til baka, skoraði þrjú mörk í seinni hálfleik og er áfram með fullt hús stiga í Bestu deildinni. Stjörnumenn vildu fá vítaspyrnu í uppbótartíma leiksins þegar Finnur og Örvar áttust við. „Ef Örvar hefði látið sig detta hér og ekki skotið hefði þetta verið víti. Hrós á hann fyrir að halda áfram og ná skotinu en ég held að hann [Sigurður Hjörtur Þrastarson, dómari leiksins] hefði pottþétt þurft að dæma víti ef hann hefði farið niður þegar hann togaði,“ sagði Halldór Árnason í Stúkunni í gær. Klippa: Stúkan - umræða um vítið sem Stjarnan vildi fá Að mati Baldurs Sigurðssonar átti Örvar ekki að þurfa að falla til jarðar til að fá vítaspyrnu í þessu tilfelli. „Erum við samt ekki sammála um það að þetta eigi bara að vera víti? Hann á ekki að þurfa að láta sig detta,“ sagði Baldur. „Það er samt raunin, því miður,“ skaut Halldór inn í áður en Baldur hélt áfram. „Þetta er nóg til að trufla hann. Í hundrað skipti af hundrað úti á velli, þegar dómari sér svona peysutog, dæmir hann um leið. Þetta er klárt víti. Ekki spurning.“ Stjarnan og KR mætast aftur í Garðabænum, í sextán liða úrslitum Mjólkurbikarsins, klukkan 20:00 á miðvikudagskvöldið. Stjarnan hefur tapað fjórum leikjum í Bestu deildinni í röð og er í 8. sæti hennar með sex stig eftir sex umferðir. Innslagið úr Stúkunni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Besta deild karla Stjarnan KR Stúkan Tengdar fréttir Fylgist ekki með umræðunni um starf sitt: „Maður er samt ekkert vitlaus“ Jökull Elísabetarson þjálfari Stjörnunnar var svekktur í leikslok eftir 3-2 tap gegn KR í Bestu deildinni í kvöld en Stjarnan komst tveimur mörkum yfir í leiknum. Jökull fylgist ekki með umræðunni um starfsöryggi sitt en segist heldur ekki vitlaust. Það fylgi því pressa og kröfur að starfa hjá Stjörnunni. 8. maí 2026 22:47 Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - KR 2-3: Halda áfram að kremja mótherjana eins og skordýr KR er enn með fullt hús stiga í Bestu deildinni eftir ótrúlegan endurkomusigur gegn Stjörnunni í Garðabæ þar sem liðin öttu kappi í sjöttu umferð Bestu deildarinnar í fótbolta. KR lenti 2-0 undir en sneri leiknum sér í vil og tylla sér aftur í toppsæti deildarinnar. 8. maí 2026 22:49 Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira
Fylgist ekki með umræðunni um starf sitt: „Maður er samt ekkert vitlaus“ Jökull Elísabetarson þjálfari Stjörnunnar var svekktur í leikslok eftir 3-2 tap gegn KR í Bestu deildinni í kvöld en Stjarnan komst tveimur mörkum yfir í leiknum. Jökull fylgist ekki með umræðunni um starfsöryggi sitt en segist heldur ekki vitlaust. Það fylgi því pressa og kröfur að starfa hjá Stjörnunni. 8. maí 2026 22:47
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - KR 2-3: Halda áfram að kremja mótherjana eins og skordýr KR er enn með fullt hús stiga í Bestu deildinni eftir ótrúlegan endurkomusigur gegn Stjörnunni í Garðabæ þar sem liðin öttu kappi í sjöttu umferð Bestu deildarinnar í fótbolta. KR lenti 2-0 undir en sneri leiknum sér í vil og tylla sér aftur í toppsæti deildarinnar. 8. maí 2026 22:49