X við óbreytt ástand og sóun almannafjár Gunnar Salvarsson skrifar 11. maí 2026 17:01 Stæði ég niður á Tjörn og sæi með berum augum seðlabúntin fjúka út úr Ráðhúsinu myndi ég örugglega ekki loka augunum og halda áfram að dást að öndunum. Í orði kveðnu fagnar enginn sóun á almannafé. En í reynd viðurkennum við slíka meðferð fjármuna með því að halda úti rándýrri óskilvirkri stjórnsýslu. Heilmiklu moldviðri hefur verið þyrlað upp á síðustu dögum vegna útgjalda borgarstjóra af tilteknu korti. En smáaurarnir í málinu eru ekkert á við milljarðana sem fjúka út úr ráðhúsum á öllu höfuðborgarsvæðinu ár hvert. Fagnaðarefni að sjá grein eftir rit- og pistlahöfundinn Halldór Armands í Sunnudagsmogganum þar sem hann gerir að umtalsefni óhóflega stjórnsýslu hér á landi. Hann bendir meðal annars á þá 79 bæjar- og borgarfulltrúa á höfuðborgarsvæðinu sem ég hef ítrekað bent á hér á Vísi síðustu mánuðum að fækka mætti um meira en helming með sameiningu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Það hefði vitaskuld farið vel á því að íbúar á þessu samfellda borgarsvæði sem skipt er upp í sjö aðskildar stjórnsýslueiningar hefðu fengið að segja álit sitt á því hvort þeir telji skynsamlegt að sameina sveitarfélögin. En það er aðeins hægt að setja x við óbreytt ástand. Kerfið sjálft hefur hvorki vilja né löngun til breytinga, jafnvel þótt milljarðar séu í húfi árlega og þrálátur skortur á fjármagni til mikilvægra verkefna. Þetta er gömul umræða og ný sem hefur komið upp með reglulegu millibili síðustu áratugi, en jafnharðan fjarað út áður en fyrsta skrefið er tekið: að láta framkvæma óháða og heildstæða hagkvæmnisathugun. Varfærnar áætlanir benda til þess að meira en milljaður króna fari árlega í að viðhalda þessari rándýru stjórnsýslu. Þegar yfirstjórn, stoðþjónusta og samhæfing eru tekin með inn í dæmið er ekki óraunhæft að kostnaðurinn hlaupi á nokkrum milljörðum. Samt er þetta ekki rætt í aðdraganda kosninga. Rökin skortir ekki. Viljann vantar. Í grein Halldórs Armands um ofvöxt stjórnsýslu á Íslandi veltir hann fyrir sér hvort í kenningum lærðra manna úti í heimi, sem greint hafa Íslendinga með svonefndan póst-kólónískan kvíða, sé ekki að finna svarið. Hann vitnar í fræðimann sem taldi að þann kvíða mætti rekja til nýlendusögu okkar. „Þess vegna hafa Íslendingar verið uppteknir af því að staðfesta og sanna stöðu sína sem fyrsta heims þjóð með því að stilla sér upp sem algjörri andstæðu þriðja heimsins eða vanþróaðra ríkja.” Vel má vera að eitthvað sé til í sjálfsupphafningu Íslendinga en samlíkingin við fátækustu ríki heims er bæði óþörf og villandi. Vísun til úreltra hugtaka eins og „fyrsta“ og „þriðja“ heiminn gerir ekkert fyrir þessa mikilvægu umræðu og heldur ekki vísun í vanþróuð ríki. Raunin er nefnilega sú að umfangsmikil og flókin stjórnsýsla er ekki sérkenni auðugra þjóða. Í afrískum samstarfsríkjum okkar Íslendinga í alþjóðlegri þróunarsamvinnu, Malaví, Úganda og Sierra Leone, sem öll eru meðal fátækustu ríkja heims, er stjórnsýslan mikil að vöxtum og ráðuneytin milli tuttugu og þrjátíu í hverju ríki. Í grunninn snýst umfang stjórnsýslunnar ekki um sjálfsmynd eða stöðu þjóða í heiminum, heldur skipulag og ákvarðanir sem yfirvöld í landinu kæra sig ekki um að taka. Það hentar sjaldnast þeim sem sitja við stjórnvölinn að fækka eigin embættum, áhrifasvæðum eða pólitískum stöðum. Við, óbreyttir kjósendur, höldum því áfram að gefa öndunum á Tjörninni brauð meðan skrilljónir halda áfram að fjúka út í veður og vind úr Ráðhúsinu. Höfundur er fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Gunnar Salvarsson Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar