Geta söfn bjargað heiminum? Dagrún Ósk Jónsdóttir skrifar 11. maí 2026 07:42 Að heimsækja safn er eins og að lesa góða bók. Þó söfn taki vissulega stundum á erfiðum umræðuefnum, geta þau líka veitt kærkomið skjól frá hörmungum heimsins. Þar getum við gleymt okkur í list, lært að veita náttúrunni athygli, skoðað muni sem hafa gildi fyrir samfélagið eða fundið gripi sem vekja hjá okkur persónulegar minningar. Eins og þegar maður les bók flyst maður einhvern veginn út úr raunveruleikanum rétt á meðan maður er á safninu. Er staddur í öðrum heimi, þar sem gilda aðrar reglur. Sögusviðið er sett og persónur kynntar. Söfn eru líka fróðleg og skemmtileg og eftir heimsóknina situr margvísleg upplifun eftir. Það er mikilvægt að dæma þau ekki af kápunni og mér finnst skemmtilegast þegar þau koma á óvart. Ég horfi aðeins öðruvísi á heiminn þegar ég hef gleymt mér á safni, einmitt eins og þegar ég hef lesið góða bók. Safnaheimsóknir geta líka bjargað fólki tímabundið frá endalausu símaskrolli, en það er kannski efni í aðra grein. Sameiningarafl í sundruðum heimi Söfn eru sameiningarafl, þau efla samkennd og miðla upplýsingum sem byggja á rannsóknum á aðgengilegan hátt. Allt er þetta hluti að því að gera heiminn að betri stað. Ég er að mestu hætt að heimsækja klúbba í merkingunni skemmtistaði, en er þess í stað gengin í allskonar hópa. Ég er í saumaklúbb og er nýbúin að stofna bókaklúbb. Þegar ég var að skrifa þennan pistil datt mér í hug hvort ég ætti ekki að stofna safnaklúbb. Safnaklúbburinn myndi hittast einu sinni í mánuði og heimsækja safn og svo myndum við ræða upplifunina, það væri gaman. Alþjóðlegi safnadagurinn Nú er vika í Alþjóðlega safnadaginn sem er haldinn þann 18. maí ár hvert. Á hverju ári velur ICOM, alþjóðaráð safna, nýja yfirskrift eða þema fyrir daginn. Í ár er það „Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi“. Þetta er vissulega stór yfirskrift og óhætt að segja að markið er sett hátt. Geta söfn bjargað heiminum? Það er erfitt að neita því að það hefur verið ákveðinn órói víða um heim að undanförnu. Bakslag í ýmsum málum er varða mannréttindi eru greinileg. Fólk virðist skipast í fylkingar, skautun er að verða meira áberandi í allri umræðu. Hluti af því á rætur í upplýsingaóreiðunni sem einkennir okkar tíma. En hvert er hlutverk safna í því samhengi? Söfn fræða Söfn eru stofnanir sem njóta jafnan trausts í samfélaginu, réttilega. Hlutverk safna samkvæmt safnalögum er að safna, varðveita, rannsaka, miðla og fræða. Mikið af safnastarfi fer vissulega fram á bak við tjöldin, en verður sýnilegt í safnfræðslu, viðburðum og sýningum. Miðlun og fræðsla á söfnum byggir á rannsóknum, sem er mikilvægt til að söfnin haldi sessi sínum sem traustar og trúverðugar stofnanir. Söfn leggja sig fram við að miðla menningu, sögu og list á aðgengilegan hátt og af virðingu til að auka skilning okkar á okkur sjálfum, öðrum hópum, samfélaginu og umhverfi okkar. Þau fjalla bæði um stóru málin, sögulega viðburði, og hversdaginn. Þau setja hluti í samhengi og velta upp spurningum um framtíðina. Hvert stefnum við og af hverju? Þannig hjálpa þau okkur að taka upplýstar ákvarðanir sem byggja á staðreyndum. Söfn sameina Söfn eru staðir þar sem fólk hittist. Þau stuðla að samtali milli einstaklinga, kynslóða og ólíkra hópa. Þannig brúa þau bilið og auka skilning og samkennd milli ólíkra menningarheima, samfélagshópa og landsvæða. Markmið safna á að vera að skapa rými þar sem ólíkar raddir fá að heyrast og virðing er í hávegum höfð. Söfn vinna líka gegn einmannaleika og mörg söfn hafa verið öflug í að stuðla að inngildingu. Það er mikilvægt, þau eiga að endurspegla samfélagið sem er sannarlega fjölbreytt. Á Íslandi er fjölbreytt safnaflóra og hér er stundað öflugt safnastarf. Ég hlakka til að fagna safnadeginum 18. maí. Látið mig svo bara vita ef ykkur langar að ganga í safnaklúbbinn. Höfundur er verkefnastjóri FÍSOS (Félags íslenskra safna). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Söfn Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi Egill Almar Ágústsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Slaufun, skautun, skömmun Örn Bárður Jónsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun