Skjá- og samfélagsmiðlanotkun barna í Kópavogi Björn Þór Rögnvaldsson skrifar 12. maí 2026 07:29 Þegar börnin okkar vaxa úr grasi finna margir foreldrar fyrir miklum félagslegum þrýstingi til að láta þeim í té snjallsíma og aðgang að samfélagsmiðlum. Jafnvel þegar foreldrar reyna að fresta því er óttinn alltaf sá að börnin gætu fundið fyrir því að vera útundan eða jafnvel lögð í einelti ef þau hafa ekki það sem „allir aðrir“ hafa. Þetta setur fjölskyldur í erfiða stöðu, sérstaklega þegar rannsóknir sýna fram á að óhófleg notkun skjáa og snemmbúin notkun samfélagsmiðla getur haft neikvæð áhrif á þroska barna, þar á meðal aukið kvíða. Unglingar eru í sérstaklega viðkvæmri stöðu og geta auðveldlega orðið háð því umbunarkerfi sem felst í samfélagsmiðlum. Kópavogsbær lætur öllum grunnskólabörnum í té spjaldtölvu til notkunar í námi þeirra sem er orðið að miklu leyti stafrænt. Spjaldtölvurnar fylgja börnunum heim frá miðstigi og skapa þar ákveðna áhættu hvað varðar aðgang að efni, samfélagsmiðlum og samskiptaforritum. Þetta getur gert foreldrum erfitt fyrir að setja mörk og setja ramma um skjánotkun og samfélagsmiðlanotkun. Okkur foreldra skortir skýran ramma sem hjálpar okkur að fræða, leiðbeina og hafa eftirlit með börnum okkar, í stað þess að finna fyrir þrýstingi til að leyfa eitthvað einfaldlega vegna þess að „allir aðrir“ hafa það. Þrátt fyrir það eru engar skýrar samræmdar leiðbeiningar eða viðmið til að styðja foreldra í Kópavogi. Fyrir vikið finnst mörgum að þeir standi einir frammi fyrir þessari áskorun. Þessi skortur á sameiginlegum viðmiðum skapar það sem oft er kallað „race to the bottom“, þar sem aðgangsstigið er ákveðið af þeim sem hafa minnstu takmarkanirnar. Í þessu samhengi eru viðmiðin ekki mótuð af því sem er best fyrir börnin, heldur af markaðsöflum sem gagnast tæknirisunum. Samfélagsmiðlar eru hannaðir til að vera mjög aðlaðandi, jafnvel ávanabindandi, og það er lítill hvati fyrir þessi fyrirtæki að breyta því. Á sama tíma hafa önnur lönd byrjað að bregðast við. Til dæmis hefur Ástralía bannað samfélagsmiðla fyrir börn yngri en 16 ára. Portúgal og Frakkland eru einnig að innleiða aldursbundnar takmarkanir og lönd eins og Danmörk og Noregur eru að ræða svipaðar aðgerðir. Þessar aðgerðir endurspegla vaxandi viðurkenningu á því að þetta er ekki bara fjölskyldumál, heldur samfélagslegt vandamál. Jákvæð skref hafa verið stigin í Kópavogi þar sem nýlega var samþykktur sáttmáli um símafrí í skóla- og frístundastarfi bæjarins. En þó þetta sé jákvætt skref eru áhrif þess takmörkuð þar sem sáttmálinn fjallar ekki um notkun samfélagsmiðla og notkun barna á þeim spjaldtölvum sem bærinn lætur nemendur í té og notuð eru heima við. Sáttmálinn gildir aðeins innan veggja skólans og tekur ekki heildstætt á vandamálinu. Á Akureyri er nú verið að vinna að því að gera samfélagssáttmála um samfélagsmiðlanotkun og skjátíma barna. Hann á að fela í sér sameiginleg viðmið íbúa á Akureyri og verður hann unnin í samstarfi við heimilin í bænum. Þetta er betri og heildstæðari lausn heldur en í Kópavogi enda tekur slíkur samfélagssáttmáli ekki bara á skjánotkun í skólum heldur einnig samfélagsmiðlanotkun barna. Nauðsynlegt er að í Kópavogi verði unnið að heildstæðri nálgun á vandamálinu sem er ekki bara skjánotkun innan veggja skóla bæjarins heldur einnig samfélagsmiðlanotkun barna og notkun spjaldtölva í eigu bæjarins innan heimila bæjarins. Það væri hægt að gera með því að Kópavogsbær myndi hefja vinnu við gerð sáttmála um samfélagsmiðlanotkun og skjátíma barna, en nauðsynlegt er að slík viðmið yrðu unnin í nánu samstarfi við foreldra. Að mínu viti er þetta eitthvað sem ég tel að Kópavogsbær ætti að vinna að og væri til mikilla bóta í baráttu foreldra fyrir velferð barna sinna í bæjarfélaginu. Þetta kallar á samtal milli heimilis og skóla og mun aðstoða foreldra í Kópavogi við að takast á við vandamál sem að hluta til á rætur að rekja til stefnu sem hefur verið rekinn af núverandi meirihluta. Höfundur skipar 9. sæti á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Sjá meira
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar