Hræðileg en sanngjörn úrslit: „Við þurfum að vera aðeins stærri“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 8. maí 2026 20:17 Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs Akureyri í Víkinni í dag. Vísir/Pawel „Hræðileg úrslit og bara alls ekki það sem við ætluðum okkur í dag,“ sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, eftir stórtap gegn Víkingi í Víkinni. Lokatölur 6-0 fyrir Íslandsmeisturunum sem eru taplausir í Bestu deildinni eftir sex umferðir.
Víkingar léku á als oddi gegn slökum varnarleik Þórs í kvöld. Staðan 3-0 í hálfleik og önnur þrjú bættust við í þeim síðari. Sigurður Heiðar vill kenna varnarleiknum um og einbeitingarleysi þegar kemur að varnarleik hjá sínu liði. „Fókusinn hjá okkur er búinn að vera drepa okkur í varnarleiknum. Fókus-levelið okkar er ekki nægilega hátt, það er of auðvelt að refsa okkur fyrir þegar við stígum aðeins upp og það er spilað á milli varnar og sóknar hjá okkur. Okkur er refsað gríðarlega illa fyrir þau augnablik,“ sagði Sigurður Heiðar, en fyrstu þrjú mörk leiksins má segja að hafi verið full auðveld fyrir heimamenn að skora. Sigurður Heiðar sneri sér þó næst að því jákvæða. „Mér fannst sóknarleikurinn okkar í fyrri hálfleik góður. Mér fannst við leysa það virkilega vel og ég var ánægður með það. Við komumst í fullt af stöðum, við komumst í dauðafæri í stöðunni 1-0 og fleiri mjög góða sénsa í fyrri hálfleiknum til þess að gera þetta að einhverjum leik, en gerum það ekki.“ Úr leik dagsinsVísir/Pawel Hins vegar gerði einbeitingarleysi aftur strax vart við sig í upphafi síðari hálfleiks. „Svo komum við inn í seinni hálfleikinn og eigum þrusu start en missum svo fókusinn og þeir komast upp og fá horn og skora strax úr horni og staðan 4-0. Þannig að við náum aldrei mómenti til að gera eitthvað, skora mark og breyta gangi leiksins. En svo fer seinni hálfleikurinn frá okkur.“ Hann var þó sáttur með hugarfar sinna leikmanna þrátt fyrir að leikurinn hafi í raun aldrei verið spennandi né jafn. „Ég var ánægður með hugarfarið í seinni hálfleiknum. Mér fannst við vera að reyna og vera með hjarta í þessu og menn að hvetja hvorn annan, en á heildina litið þá fjarar seinni hálfleikurinn frá okkur. 6-0 bara sanngjörn úrslit.“ Ágúst Hlynsson fer í tæklinguVísir/Pawel Varnarleikurinn slátraði Þórsurum Sigurður Heiðar óskar eftir því að sínir menn séu aðeins stærri og harðari af sér, en hægt er að segja að það séu einkennismerki Þórs sem félags. „Við þurfum að vera aðeins stærri. Mér fannst við svolítið litlir í dag. Við brjótum ekki af okkur fyrr en þeir fá fyrstu aukaspyrnuna sína í stöðunni 3-0 og það er gjörsamlega óboðlegt í okkar liði. Um leið og við spilum upp þá bara brjóta þeir á okkur, við gerum það aldrei við þá fyrr en ég bara veit ekki hvenær. Við þorðum að spila og gera hlutina en varnarleikurinn bara gjörsamlega slátraði okkur í dag.“
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Þór Akureyri Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira