Freyr getur unnið sinn fyrsta titil með Brann í dag: „Yrði stórkostlegt“ Aron Guðmundsson skrifar 9. maí 2026 11:45 Freyr Alexandersson stýrir brann í úrslitaleik norska bikarsins í dag. Vísir/Getty Freyr Alexandersson gæti unnið sinn fyrsta titil sem þjálfari norska liðsins Brann í dag þegar liðið leikur til úrslita í norska bikarnum gegn Bodø/Glimt. Freyr segir að um draumaúrslitaleik sé að ræða, hann vill mest eiga þátt í því að skapa augnablik fyrir stuðningsmenn liðsins sem lifi um ókomna tíð.
Brann mætir Bodø/Glimt í úrslitaleiknum á Ulleval og getur þar unnið sinn áttunda bikarmeistaratitil í sögunni. Þann fyrsta undir stjórn Freys sem hefur verið þjálfari Brann í um átján mánuði. Það að standa uppi sem bikarmeistarar hefði mikla þýðingu. „Það yrði bara mikil gleði,“ segir Freyr í samtali við Vísi. „Skiptir mig máli að fólkið í kringum mig, hvort sem það eru leikmenn eða fjölskyldur þeirra og stuðningsmenn fái góðar upplifanir. Og líka ég sjálfur. Þetta snýst um að skapa augnablik og upplifanir. Það yrði mikil gleði og gaman. Væri líka bara stórkostlegt að vera kominn með það á ferilskránni hjá Brann að vinna titil eftir átján mánuði í starfi. Eftir að hafa komið liðinu í fyrsta skipti í Evrópukeppni í átján ár. Það yrði mjög góð byrjun á mínum ferli í Brann. En það sem lætur mig tikka núna er ekkert egóið í kringum það heldur bara gleði. Ég vil bara sjá framan í fólkið sem mun vera hamingjusamt með að vinna Bodø/Glimt í úrslitaleik á Ulleval.“ Þurfa að hitta á sinn besta dag Lærisveinar Freys að mæta þekktasta liðið Noregs um þessar mundir en Bodø/Glimt sló í gegn í Meistaradeild Evrópu og fór alla leið í sextán liða úrslit. Kristall Máni Ingason er sjóðheitur um þessar mundir með Brann en hefur verið að glíma við meiðsli. Hann ferðaðist þó með liðinu til Osló og náði að æfa í aðdraganda úrslitaleiksins.Mynd:Brann „Gríðarlega öflugt lið sem er búið að spila saman í langan tíma. Þeir hafa haldið í sína bestu leikmenn yfir langan tíma. Spilað sama fótboltann í að verða sjö ár með smá breytingum hér og þar. Annars halda þeir fast í sitt. Mjög öflugt lið, sér í lagi á heimavelli á gervigrasinu fyrir norðan og erfiðir við að eiga þar. En eins og þeir sýndu í Meistaradeildinni, þá eru þeir hrikalega öflugir. En við erum það líka. Brann tapaði þó báðum leikjum sínum gegn Bodø/Glimt á síðasta tímabili. „En það voru jafnir leikir og við vorum síst lakari aðilinn hér í Bergen. Töpuðum þeim leik en áttum aldrei að gera það. Það sýnir bara hversu öflugir þeir eru. Þeir eiga tvö skot í leiknum, skora úr þeim báðum og þó þeir nái ekki að hitta á daginn sinn þá eru þeir með það öfluga leikmenn að geta klárað leikinn. Við þurfum klárlega að hitta á okkar besta dag til að slá út Bodo/Glimt. Það er alveg klárt mál en þetta er drauma úrslitaleikur fyrir alla. Það lið sem nær sínu besta fram á deginum vinnur. Ef við náum því. Að slá út Bodo/Glimt í úrslitaleik. Þá yrði það risastórt og yrði hrikalega eftirminnilegt.“ Með fjörutíu þúsund manna samfélag á bakvið sig komst Bodo/Glimt í 16-liða úrslit MeistaradeildarinnarVísir/Getty Verður svaka veisla Það var uppselt á úrslitaleikinn leikinn á nokkrum mínútum og yfir tuttugu þúsund stuðningsmenn Brann leggja leið sína í höfuðborg Noregs. „Þetta verður svaka veisla. Liðið er á góðum stað. Vel undirbúið. Strákunum hlakkar til og reynsla okkar af stóru leikjunum í Evrópu á síðasta tímabili hjálpar okkur varðandi spennustigið. Mér finnst spennustigið hjá okkur vera nógu gott. Að spila á móti Bodo/Glimt í úrslitum er líka extra skemmtilegt. Þetta eru tvö af fjórum bestu fótboltaliðunum í Noregi að okkar mati. Mjög líklega verður þetta opinn og skemmtilegur leikur. Vonandi ná bæði lið að sýna sínar bestu hliðar. Þá eru gæðin í leiknum mjög há. Þetta gæti orðið skemmtilegt laugardagskvöld í Osló.“ Jón Dagur Þorsteinsson er einnig á mála hjá Brann, á láni frá þýska liðinu Hertha Berlinbrann Geta tryggt sér annan úrslitaleik með sigri Með því að enda í fjórða sæti norsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili fer Brann í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu en fari svo að liðið hafi betur gegn Bodø/Glimt í dag mun annar úrslitaleikur bíða liðsins gegn nú ríkjandi bikarmeisturum Lillestrøm þar sem í boði er sæti í umspili Evrópudeildarinnar fyrir sigurliðið. „Ef ég á að vera hreinskilinn þá er ég ekkert að pæla í því. Við erum inni í Evrópukeppni í gegnum Sambandsdeildina en auðvitað værum við til í að reyna komast inn í Evrópudeildina aftur. En fyrir mig skiptir það bara máli að vinna titil, slá út Glimt og skapa það augnablik fyrir fólkið sem elskar félagið. Það er aðal atriðið. Ef við náum því þá fáum við þennan leik á móti Lilleström. Það verður gaman líka en að taka augnablikið, njóta þess og ná að búa til partý fyrir fólkið okkar. Það er það sem drífur mig áfram. Evrópukeppnin kemur bara seinna.“
Norski boltinn Mest lesið Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Fótbolti Uppgjörið: FH - KR 1-1 | Ótrúlegt að KR hafi ekki unnið Íslenski boltinn Kokhraustur eftir neyðarfund Fótbolti Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Uppgjörið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú mörk á níu mínútum kláraði KA Íslenski boltinn Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti Fleiri fréttir Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Kjartan Kári á leiðinni í Víking Kokhraustur eftir neyðarfund Uppgjörið: FH - KR 1-1 | Ótrúlegt að KR hafi ekki unnið „Það er skellur“ Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Uppgjörið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú mörk á níu mínútum kláraði KA Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Brann tapaði en AGF vann liðið sem lenti í umferðteppu Tryggðu sigurinn eftir að Emelía kom inn á völlinn Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Como með mjög strangar miðareglur en hlífa börnunum Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Lukaku lætur ekki sjá sig Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Sjá meira