Einföldum líf barnafjölskyldna Eydís Inga Valsdóttir skrifar 9. maí 2026 07:30 ASÍ og BSRB hafa birt samantekt sem sýnir glögglega að breytingar á leikskólakerfinu hafa flækt líf barnafjölskyldna þar sem greiðsluþátttaka þeirra þyngist verulega. Forsvarsmenn félaganna hafa einnig skrifað grein um þessa varhugaverðu þróun. Á síðasta kjörtímabili í Kópavogi hækkuðu leikskólagjöld um 62% fyrir átta tíma vistun. Samfylkingin hefur verið skýr í sínum málflutningi fyrir komandi kjörtímabil og vill létta daglega lífið og einfalda líf barnafjölskyldna með því að lækka álögur á barnafólk, án þess að gefa nokkurn afslátt af mikilvægi bættra starfsaðstæðna kennara og starfsfólks. Við höfnum 450 þúsund króna barnaskattinum í Kópavogi, eins og við Dagbjört Hákonardóttir sögðum skýrt í grein hér á Vísi í byrjun vikunnar. Formaður Eflingar tók sér tíma og svaraði grein okkar, en eyddi þó nokkru púðri í að halda því fram að gagnrýni okkar hafi fyrst og fremst snúist um að tekjuhátt fólk í Kópavogi þurfi nú að greiða fyrir leikskólaþjónustu. Í því ljósi er mér bæði ljúft og skylt að skýra betur, að gagnrýni okkar snýst alls ekki um það. Lágtekjufólk fær líka að finna fyrir barnaskattinum Kostnaðurinn leggst líka mjög þungt á venjulegar fjölskyldur, einstæða foreldra og verkafólk og þar á meðal félagsfólk Eflingar sem býr í Kópavogi. Þessar gjaldskrárhækkanir eru þvert á gefin loforð sveitarfélaga sem gefin voru í tengslum við kjarasamningagerð 2024 um að halda kostnaði í lágmarki fyrir barnafjölskyldur og viðkvæma hópa. Vissulega eru tekjutengdir afslættir í boði í Kópavogi, en þeir eru mun lakari en í mörgum öðrum sveitarfélögum. Þar munar sérstaklega miklu um systkinaafslætti og hvernig gjaldskrárnar eru byggðar upp. Mynd 1: Sýnir leikskólagjöld eftir tekjum í Kópavogi annars vegar og Reykjavík hins vegar, bæði fyrir eitt barn og tvö. Til að sýna þetta tók ég saman dæmi um tvær einstæðar mæður. Önnur starfar við ræstingar og er með 500 þúsund krónur á mánuði í laun fyrir skatt. Hin starfar sem millistjórnandi hjá ríkinu með 1,5 milljónir króna í laun fyrir skatt. Tölurnar sýna skýrt hversu þung þessi gjöld geta orðið. Einstæð móðir á lægri launum, með um 400 þúsund krónur útborgaðar á mánuði, greiðir í Kópavogi 34.800 kr. fyrir eitt barn eða 58.241 kr. fyrir tvö börn. Þrátt fyrir tekjutengda afslætti eru það um 8,7% eða 14,6% af ráðstöfunartekjum hennar. Það er gríðarlegur kostnaður fyrir lágtekjukonu. Þetta þýðir að það eru ekki síst Eflingarkonur sem finna hvað mest fyrir þessum hækkunum. Krónutöluhækkanirnar á lægstu kjarasamningum landsins fara nú að stórum hluta að greiða fyrir hækkandi gjaldskrár leikskóla Kópavogs sem hafa verið fjórar á ári og miðast við þróun launavísitölu. Tenging við launavísitölu er innbyggð og dulin hækkun á leikskólagjöldum umfram verðlagsþróun. En auðvitað bara fyrir þau sem að búa í Kópavogi. En jafnvel einstæð móðir með 1,5 milljónir í mánaðarlaun greiðir 57.518 krónur fyrir eitt barn og 92.318 krónur fyrir tvö börn í Kópavogi. Það eru háar fjárhæðir fyrir grunnþjónustu sem á að gera foreldrum kleift að taka þátt á vinnumarkaði og halda heimilislífinu gangandi. Starfsaðstæður kennara og starfsfólks skipta máli Ég tek það líka fram að ég ber mikla virðingu fyrir störfum leikskólafólks. Ég hef sjálf starfað sem ófaglærður starfsmaður á leikskóla og veit vel hversu mikilvægt, erfitt og vanmetið það starf getur verið. Gagnrýni mín snýst því ekki um starfsfólkið eða mikilvægi leikskólanna, heldur þá pólitísku ákvörðun að færa sífellt stærri hluta kostnaðarins yfir á þá foreldra sem að ekki geta stytt eða hagað vinnutíma sínum eftir þörfum kerfisins. Umræðan snýst því ekki um að foreldrar vilji ekki greiða neitt. Hún snýst um hversu stóran hluta kostnaðarins eigi að færa yfir á barnafjölskyldur og hvort það sé eðlilegt að foreldrar í Kópavogi greiði svo mikið meira úr eigin vasa en víða annars staðar. Það er sú þróun sem að við í Samfylkingunni viljum bregðast við. Höfundur skipar 2. sæti á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar