Sjálfstæðisflokkur ver ofurþéttingu við Birkimel Karólína Jónsdóttir skrifar 8. maí 2026 09:02 Lóðin Birkimelur 1, er ein þeirra bensínstöðvalóða sem olíufélögin fengu afhenta á silfurfati í þeirri viðleitni borgaryfirvalda að fækka bensínstöðvum. Umhverfis- og skipulagssvið borgarinnar hefur auglýst 42ja íbúða fjölbýlishús á þessum þrönga reit. Íbúar á Melum og víðar í Vesturbæ hafa gagnrýnt þessi áform harðlega og Háskólayfirvöld hafa bent á að lóðin tilheyri háskólasvæðinu og hefur, ásamt öðrum menningarstofnunum þar, óskað eftir því að svæðið verði skipulagt með tilliti til þess. Byggingaráform við Birkimel Bensínstöðvarlóðin er á stærra svæði sem takmarkast af Háskólabíói í suðri og Hringbraut í norðri, Birkimel í vestri og Suðurgötu í austri. Á því svæði er að finna ýmsar perlur íslenskrar byggingalistar sem hýsa stofnanir Háskóla Íslands og aðra starfsemi menningar og fræða. Tillagan að fjölbýlishúsinu sem hefur verið kynnt, endurspeglar hins vegar margnýttan flatan arkitektúr í anda þeirra íbúðaklasa sem reistir hafa verið á ofurþéttinargrreitum. Hann yrði eins og skrattinn úr sauðarleggnum, öllum til minnkunar sem styðja þessi áform. Auk þess mun byggingin taka sólarljós og birtu af nærliggjandi húsum. Þetta er enn eitt dæmið um það hvernig ofurþétting í eldri hverfum, raskar sérkennum eldri byggðar og hefur af íbúunum margs konar umhverfisgæði, sem þeim höfðu áður verið tryggð með upphaflegu skipulagi. Þá er hagsmunum íbúanna yfirleitt fórnað á altari skjótfengins hagnaðar byggingarverktaka. Framboðin spurð þriggja spurninga Vegna þessara umdeildu áforma sendu Íbúasamtök Vesturbæjar þrjár spurningar til þeirra stjórnmálaflokka sem bjóða fram lista í borgarstjórnarkosningunum. Fyrst er spurt hvort framboðið styðji skipulagsáformin. Síðan er spurt hvort framboðið styðji að fram fari heildarendurskoðun á skipulagi svæðisins og loks er spurt hvernig framboðið sjái fyrir sér að samráði við hagaðila verði hagað. Svörin liggja nú fyrir. Svör flokkanna Flokkur fólksins leggst „gegn þessum áformum og tekur undir þá gagnrýni sem íbúar á svæðinu og fleiri hafa sett fram“. Á móti þessari uppbyggingu á lóðinni eru flokkarnir Okkar Borg og Góðan daginn. Píratar segja í sínu svari að þeir telji „eðlilegt að þetta verði tekið til nánari skoðunar,“ en svar þeirra er að öðru leyti frekar óskýrt. Vinstrið telur að „annars konar uppbygging og skipulag á þessari lóð sé æskileg og þörf.“ Samfylkingin bendir á að fjölmargar athugasemdir hafi borist. „Við þurfum auðvitað að sjá hvaða sjónarmið hafa komið þar fram og hvort og hvernig sé rétt að gera breytingar á tillögunni í samræmi við þær athugasemdir.“ Viðreisn segir að „miðað við það sem hefur komið fram í þessu tilviki, sérstaklega varðandi Birkimel 1, þá finnst okkur alveg rétt að staldra aðeins við og fara betur yfir hvernig þetta á að líta út og passa inn“. Framsóknarflokkurinn telur „mikilvægt að taka málið upp að nýju og vinna nýja tillögu betur í samvinnu við nærumhverfi og uppbyggingaraðila“. Miðflokkurinn segist munu „eiga frumkvæði að því að fara yfir þessa samninga (um fækkun bensínstöðva) og hefja samráð við íbúa, Háskóla Íslands og þær mikilvægu mennta- og menningarstofnanir sem standa á svæðinu með það að markmiði að finna lausn sem sátt getur orðið um“. Sérstaða X-D Sjálfstæðisflokkurinn, einn allra flokka, sér enga ástæðu til þess að taka neitt tillit til mótmæla og athugasemda íbúanna. Í svari hans stendur: „Sjálfstæðisflokkurinn styður þessi áform“. Flokkurinn tekur sérstaklega fram að það sé mikilvægt að unnið sé náið með lóðarhafa, sem sagt, með Skel og Reyrverk. Alls hafa 850 manns skrifað undir mótmæli og 23 sent inn rökstuddar og ítarlegar athugasemdir. Skilaboð Sjálfstæðisflokksins eru þau að íbúunum komi málið ekkert við. Höfundur er grunnskólakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar