Uppgjörið: Fram - Valur 3-2 | Byström kom inná og skoraði sigurmark í þriðja sigri Fram í röð Hjörvar Ólafsson skrifar 8. maí 2026 21:11 vísir/Diego Flautumark frá Jakob Byström tryggði Fram 3-2 sigur gegn Val í leik sem bauð upp á allt það sem gott er við fótboltann. Fyrri hálfleikur var frábær skemmtun en leikurinn var einungis tveggja mínútna gamall þegar Tryggvi Hrafn Haraldsson var búinn að koma gestunum frá Hlíðarenda yfir. Trygggi Hrafn komst inn í sendingu Simons Tibbling við miðlínuna og var einn á auðum sjó. Framherjinn kláraði færið sitt af stakri prýði með snyrtilegri vippu yfir Viktor Frey Sigurðsson. Skömmu síðar var Kennie Chopart búinn að jafna metin með fjórða marki sínu í deildinni í sumar. Atli Þór Jónasson vann þá boltann af Samúel Kára Friðjónssyni á hættulegum stað. Atli Þór renndi boltanum fyrir fætur Kennie sem skoraði með föstu og hnitmiuðuðu skoti. Þegar tæpur stundarfjórðungur var liðinn af leiknum var Adam Ægir Pálsson búinn að endurheimta forystuna fyrir Valsmeann. Tryggvi Hrafn átti þá hárnákvæma fyrirgjöf á fjærsvæðið þar sem Adam Ægir lúrði og skoraði einkar snoturt mark. Fram jafnaði síðan metin á nýjan leik í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Ólafur Flóki Stephensen sparkaði þá undir iljarnar á Atla Þór og Helgi Mikael Jónasson dæmdi réttilega vítaspyrnu. Simon Tibbling fór á vítapunktinn og skoraði af feykilegu öryggi úr spyrnunni. Staðan var 2-2 þegar liðin röltu til búningsklefa í hálfleik. Fram að gera sig gildandi í toppbaráttunni Það var svo Jakob Byström, sem kom inná sem varamaður þegar rúmar tíu mínútur voru eftir af leiknum sem skoraði sigurmark Fram í leiknum á lokamínútunni í uppbótartíma seinni hálfleiks. Niðurstaðan 3-2 sigur Fram sem hefur þar af leiðandi haft betur í síðustu þremur deildarleikjum sínum á meðan Valur laut í lægra haldi í öðrum leiknum í röð. Fram hefur eftir þennan sigur 13 stig og situr í þriðja sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir Víkingi sem er sæti ofar og sex stigum á eftir forystusauðnum, KR, sem er með fullt hús stiga á toppnum. Valur situr aftur á móti í fimmta sæti deildarinnar en Hlíðarendaliðið er með níu stig. Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram.Vísir/Guðmundur Rúnar Kristinsson: Flottur sigur í frábærum fótboltaleik „Fyrri hálfleikur var eflaust mikil skemmtun fyrir þá sem voru að horfa á leikinn en mér fannst við gera helst til of mikið af mistökum. Við vorum ánægðir með að vera í jafnri stöðu þrátt fyrir þau mistök sem við vorum að gera og við núllstilltum okkur í hálfleik,“ sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, eftir þá rússíbanareið sem þessi leikur var. „Við náðum að loka betur á skyndisóknirnar þeirra í seinni hálfleik en Tryggvi Hrafn Haraldsson er einn af bestu skyndisókarleikönnum þessarar deildar þannig að auðvitað fengu þeir sín færi áfram. Við náðum hins vegar að setja þá undir meiri pressu og skapa fleiri færi og innbyrtum flottan sigur í frábærum fótboltaleik,“ sagði Rúnar enn fremur. „Það er til marks um breiddina í leikmannahópnum að við fáum mikla orku og gæði með þeim varamönnum sem koma inná í þessum leik líkt og áður í upphafi tímabilsins. Jakob Byström skorar svo markið sem gerði gæfumuninn sem var mjög gaman að sjá,“ sagði hann hreykinn um lið sitt. „Ég held að þetta sér í fyrsta skipti sem við tengjum saman þrjá sigurleik í deild síðan ég tók við Framliðinu. Það er skref í átt að því að búa til lið sem getur barist í toppbaráttu og að vinna þá titla sem í boði eru. Við erum búnir að skora 18 mörk í fimm leikjum sem er gleðilegt og næst er að ná jafnvægi í varnarleikinn,“ sagði Rúnar léttur. Hermann Hreiðarsson: Þreytt að þurfa að tala aftur um dómarana „Það svíður gríðarlega að fá ekkert úr úr þessum leik þar sem frammistaðan var mjög góð. Við náðum að ógna þeim trekk í trekk með vel útfærðum skyndisóknum en því miður bara dugði það ekki til að þessu sinni,“ sagði Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, svekktur. „Dagur Orri fær til að mynda frábært færi til þess að koma okkur í 3-1 eftir mjög góða skyndisókn en skot hans er bara frábærlega varið. Við áttum meira skilið en það er svo sem ekki spurt að því,“ sagði Hermann þar að auki. „Það er þreytt að þurfa svo aftur að tala um dómarana en okkur fannst vera brotið á Samúel Kára þegar þeir skora fyrsta markið og svo er hendi og líklega þá víti á Kennie áður en þeir koma með rýtinginn og skora sigurmarkið,“ sagði hann um dómara leiksins. „Við tökum hins vegar bara það jákvæða með okkur úr frammistöðunni og förum núna að einbeita okkur að næsta verkefni. Það er ekkert annað að gera. Það var ákefð, barátta og kraftur í sóknarleiknum okkar og raunar öllu sem við vorum að gera,“ sagði Hermann um framhaldið. Hermann Hreiðarsson sáttur við spilamennsku Vals en súr með niðurstöðuna. Vísir/Diego Atvik leiksins Frammarar töldu sig hafa skorað sigurmark um það bil korteri fyrir leikslok þegar Kennie Chopart setti boltann í netið af stuttu færi. Helgi Mikael taldi að brotið hafi verið á Frederik Schram áður en Kennie skoraði og markið stóð af þeim sökum ekki. Það er ekki hægt að segja að heimamenn hafi verið sammála Helga Mikaeli. Erfitt er að segja fyrir mann með unglingadómarapróf hvort rétta hafi verið eður ei að dæma aukaspyrnu. Að sama skapi gerðu Valsmenn kraftmikið tilkall til vítaspyrnu þegar boltinn fór í hönd Kennie Chopart innan vítateigs í uppbótartíma leiksins. Aftur ætlar blaðamaður að vísa til þess að tveggja áratuga gamalt unglingadómarapróf aðstoðar hann ekki nóg til þess að meta hvort dæmi hafi átt víti eða ekki í þessu atviki. Stjörnur og skúrkar Viktor Freyr varði stórkostlega þegar Dagur Orri hefði getað komið Val í 3-1 og átti heilt yfir góðan leik og það sama má segja um kollega hans í marki Vals, Frederik Schram. Kennie Chopart heldur áfram að raða inn mörkum og það er unun að horfa á hann spila sem framliggjandi hægri bakvörður með frjálsa rullu í sóknarleik Fram. Fred var iðinn við að koma samherjum sínum í góðar stöður bæði í opnu spili og í föstum leikatriðum. Atli Þór Jónasson lagði upp eitt mark og nældi í vítaspyrnu sem er bara fínasta kvöldverk. Hólmar Örn var öflugur í hjarta varnarinnar hjá Val. Adam Ægir skoraði flott mark og var ógnandi á hægri kantinum þann tíma sem hann spilaði. Tryggvi Hrafn bar hins vegar af hjá Val og var sífellt að koma varnarmönnum Fram í vandræði með kraftmiklum hlaupum sínum. Stoðsending Tryggva Hrafns í marki Adams Ægis var svo augnakonekt. Dómarar leiksins Dómarar leiksins, þeir Helgi Mikael Jónasson, Tomasz Piotr Zietal, Þórður Arnar Árnason og Róbert Þór Guðmundsson, gerðu sitt allra besta til þess að þessi skemmtilegi leikur fengi að flæða jafn vel og raun bar vitni. Bæði lið voru ósátt með stóra dóma í leiknum en að mínu viti dæmdu þeir leikinn bara mjög vel. Þeir fá því átta í einkunn fyrir vel unnin störf. Stemming og umgjörð Milt og gott veður í Dal draumanna og í raun frábært fótboltaveður. Frammarar fengu dyggan stuðning en heimamenn fengu góða orku úr lamb og bernes sem var á boðstólunum fyrir leik. Valsmenn risu úr rekkju eftir að hafa fangað Íslandsmeistaratitili karlaliðs félagsins í handbolta í gærkvöldi og studdu lið sitt með ráðum og dáðum. Hamborgarinn sem boðið var upp á var ansi ljúffengur. Besta deild karla Fram Valur