Borg sem er skemmtilegri en skjárinn Kristinn Jón Ólafsson skrifar 6. maí 2026 07:51 Við lifum á tímum þar sem hraðinn hefur tekið yfir. Börn alast upp í stafrænum heimi þar sem athygli þeirra er orðin verðmæt auðlind í samkeppni stórra tæknifyrirtækja. Foreldrar hlaupa hraðar á milli vinnu, heimilis og verkefna til að ná endum saman. Sífellt fleiri upplifa óöryggi um húsnæði sitt, afkomu og framtíð. Og þrátt fyrir að við séum tengd allan sólarhringinn upplifa margir meiri einmanaleika og meiri fjarlægð frá samfélaginu í kringum sig. Þetta er ekki náttúrulögmál. Við getum tekið aðra stefnu. Í þessum borgarstjórnarkosningum standa Píratar fyrir skýra framtíðarsýn um Reykjavík sem setur fólk í fyrsta sæti. Borg sem byggir á tengslum, trausti, lýðræði og mannlegri reisn. Borg sem nýtir tækni af ábyrgð til að einfalda líf fólks og búa til tíma fyrir allt það sem gerir lífið litríkara. Borg þar sem börn, fjölskyldur og samfélög fá að blómstra. Það sem færir okkur nær hvert öðru Við viljum Reykjavík þar sem fólk hefur tíma til að hægja aðeins á sér, staldra við og njóta. Við gerum það með hverfum sem styðja við streituminna líf, óvæntri veggjalist á förnum vegi, þar sem náttúran gleðjar, þjónusta er nálæg og börn geta gengið örugg í skóla og frístundir. Hverfi sem bjóða upp á fjölbreytt og nærandi almenningsrými þar sem fólk hittist, myndar tengsl og finnur að það tilheyrir samfélagi.Börn og ungmenni eiga rétt á bernsku utan skjásins. Þess vegna leggja Píratar áherslu á að efla frístundastarf barna og tryggja fjölbreytni í því starfi. Það skiptir máli að starfið sé aðlaðandi fyrir sem flest og að það sé byggt upp í samráði við ungmennin og fagfólkið sem er í bestri tengingu við þau.Sterk samfélög verða ekki til af sjálfu sér. Þau verða til þegar rödd íbúa fær áheyrn og vægi og skipulagið tekur þannig mið af raunverulegu lífi fólks og þörfum. Þess vegna vilja Píratar efla þátttöku borgarbúa í ákvörðunum um sitt nærumhverfi. Við viljum t.d. fara í borgarakönnun um opnunartíma sundlauga og Ylstrandar. Fólk á að fá að hafa bein áhrif á ákvarðanir sem eru teknar og snerta þeirra daglega líf. Börn eiga rétt á vernd í stafrænum heimi Píratar vilja að Reykjavík verði leiðandi í að vernda stafræna heilsu barna og ungmenna. Við vitum að samfélagsmiðlar og stafrænir miðlar hafa djúp áhrif á sjálfsmynd, einbeitingu og líðan barna. Þess vegna þarf skólakerfið að gera meira en að kenna tækninotkun. Börn þurfa að læra að skilja hvernig tæknin hefur áhrif á þau, hvernig athygli þeirra er mótuð og hvernig þau geta staðið vörð um réttindi sín og verndað eigin andlega heilsu í stafrænum heimi. Við viljum skóla sem skapa rými fyrir einbeitingu, sköpun og samskipti utan skjásins. Við viljum styðja foreldra með fræðslu og stuðningi í stað þess að láta þá standa eina frammi fyrir þessum áskorunum. Þörf er á átaki í þessum málum í víðtæku samstarfi við foreldra, börn og sérfræðinga. Menntun og sköpun á öld gervigreindar Gervigreind er þegar farin að breyta því hvernig við vinnum, lærum og skiljum heiminn. Á slíkum tímum verður mikilvægara en nokkru sinni að menntun efli gagnrýna hugsun, sköpunargáfu, félagsfærni, samkennd og getu til að greina upplýsingar. Þess vegna leggjum við líka áherslu á menningu og listir. Samfélag sem gefur fólki rými til að skapa verður frjálsara, lýðræðislegra og heilbrigðara samfélag. Menning er ekki aukahlutur. Hún er límið sem heldur samfélagi saman og neistinn sem lýsir leiðina að sameiginlegri framtíðarsýn. Andleg heilsa og öryggi eru samfélagsmál Of margir upplifa að stuðningur komi of seint, þegar vandinn er orðinn að krísu. Píratar vilja samfélag sem grípur börn og fjölskyldur fyrr. Stuðningur á að vera nálægur, inni í skólum og inni í hverfunum. Líkt og ,,Betri borg fyrir börn” verkefnið þar sem sérfræðiþjónustan er færð inn í skólana til barnanna og þau gripin með snemmtækri íhlutun innan nokkurra daga, eitthvað sem tók marga mánuði áður. En betur má ef duga skal. Við viljum líka horfast í augu við þá staðreynd að andleg vellíðan verður ekki aðskilin frá húsnæðisöryggi og afkomu. Það er erfitt að byggja upp fjölskyldulíf, tengsl og öryggi þegar fólk lifir við ótryggar aðstæður. Píratar vilja tryggja að félagskerfi borgarinnar séu mannúðleg, skilvirk og byggð á þörfum barna og fjölskyldna. Við viljum endurskoða barnaverndarkerfið heildstætt og tryggja að það grípi börn áður en áföll verða óviðráðanleg. Tækni á að þjóna fólki Tækni getur bætt líf fólks. Hún getur sparað tíma, aukið aðgengi og styrkt lýðræði. En það gerist ekki sjálfkrafa. Gervigreind og stafrænar lausnir geta líka aukið eftirlit, þrengt að frelsi fólks og gert borgarbúa háða kerfum sem enginn skilur. Píratar vilja að Reykjavíkurborg innleiði tækni með skýrum samfélagslegum markmiðum og lýðræðislegu aðhaldi. Við viljum gagnsæi í stafrænum kerfum borgarinnar, sterka persónuvernd og aukna notkun opinna hugbúnaðarlausna þar sem það er mögulegt. Á stafrænum tímum snýst frelsi líka um stjórn á eigin gögnum, eigin athygli og eigin valkostum. Reykjavík á að tilheyra öllum Reykjavík á að vera borg þar sem allir geta tekið þátt á eigin forsendum. Það skiptir máli hvernig borg er hönnuð. Þegar tekið er mið af ólíkum þörfum í skipulagi, samgöngum og þjónustu verður borgin betri fyrir alla. Við viljum borg þar sem fólk getur ferðast örugglega með þeim hætti sem hentar því, hvort sem það gengur, hjólar, notar hjólastól, tekur strætó, eða keyrir bíl. Við viljum líka samfélag þar sem enginn þarf að óttast mismunun, einelti eða ofbeldi vegna uppruna síns, kynvitundar, fötlunar eða þess hvernig það elskar. Örugg borg verður aðeins til þegar allir upplifa að þeir eigi raunverulega heima í henni. Tímamót fyrir Reykjavík Þessar kosningar snúast um meira en einstök verkefni eða skammtímalausnir. Þær snúast um hvers konar samfélag við viljum byggja á næstu árum. Píratar vilja Reykjavík sem verndar mannlega reisn á tímum hraðrar tækniþróunar og aukins óöryggis. Við viljum borg sem er örugg og skapar nærandi umhverfi fyrir börnin okkar, borg þar sem að fólk hefur raunverulegt frelsi til þess að ferðast áreiðanlega milli staða og til að taka þátt í samfélaginu. Borg sem er skemmtileg og færir okkur nær hvert öðru. Það er framtíðarsýn Pírata fyrir Reykjavík. Höfundur er oddviti Pírata í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kristinn Jón Ólafsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvað ertu hræddur við, Jón Pétur Zimsen? Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Leigufélög eignast fasteignamarkaðinn, fjárfestar eignast Garðabæ Baldur Jezorski Skoðun Borgum ekki skuldir óreiðuríkja Jón Pétur Zimsen Skoðun Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun Á hvaða vegferð erum við? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hugsum stærra Magnús Lyngdal Magnússon Skoðun Gervigreindarkapphlaup sem Norðurlöndin geta unnið Halldóra Mogensen,Kristinn R. Þórisson Skoðun Er virkilega ekki um neitt að semja? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Viðskiptaráð rýnir í skólakerfið á árunum 2016–2026 – var nokkuð í gangi þá? Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Liðbólgusjúkdómar – fræðsla skiptir máli Katrín Þórarinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Borgum ekki skuldir óreiðuríkja Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hvað ertu hræddur við, Jón Pétur Zimsen? Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hvað er hægt að semja um? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Á hvaða vegferð erum við? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Alþjóðlegi mjólkurdagurinn 2026 Sigurbjörg Ottesen skrifar Skoðun Gervigreindarkapphlaup sem Norðurlöndin geta unnið Halldóra Mogensen,Kristinn R. Þórisson skrifar Skoðun Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hugsum stærra Magnús Lyngdal Magnússon skrifar Skoðun Leigufélög eignast fasteignamarkaðinn, fjárfestar eignast Garðabæ Baldur Jezorski skrifar Skoðun Mannauðsvald stjórnar meiru en margir halda skrifar Skoðun Viðskiptaráð rýnir í skólakerfið á árunum 2016–2026 – var nokkuð í gangi þá? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Liðbólgusjúkdómar – fræðsla skiptir máli Katrín Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Í stormi reynir á leiðtogana Óskar Tryggvi Svavarsson skrifar Skoðun Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Er virkilega ekki um neitt að semja? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Um laun, arðgreiðslur og skatta Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Aftur til fortíðar: Tóbaks- og nikótínvarnir Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvers konar samfélag viljum við byggja með gervigreind? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Brennandi hús Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvaleyrarvatn - ekki byggja í Vatnshlíð Stefán Georgsson skrifar Skoðun Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir skrifar Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Að byggja brú til þeirra sem bíða Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Gerviskoðanakönnun — eða 9,44 prósent? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Enginn lærir í afneitun Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun It's complicated: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Stefanía K. Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson skrifar Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn er að grafa sína eigin gröf Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun
Viðskiptaráð rýnir í skólakerfið á árunum 2016–2026 – var nokkuð í gangi þá? Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindarkapphlaup sem Norðurlöndin geta unnið Halldóra Mogensen,Kristinn R. Þórisson skrifar
Skoðun Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Viðskiptaráð rýnir í skólakerfið á árunum 2016–2026 – var nokkuð í gangi þá? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Aftur til fortíðar: Tóbaks- og nikótínvarnir Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar
Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun
Viðskiptaráð rýnir í skólakerfið á árunum 2016–2026 – var nokkuð í gangi þá? Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun