Tækifæri á vinnumarkaði Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar 1. maí 2026 08:12 Þann 1. maí fögnum við baráttu launafólks fyrir réttindum, jöfnum tækifærum og mannsæmandi lífskjörum. Það er dagur samstöðu og réttlætis. En fyrir stóran hóp fatlaðs fólks er þessi dagur líka áminning um það sem enn vantar upp á. Við viljum vinna.Við viljum taka þátt.Við viljum leggja okkar af mörkum. Þetta er einföld krafa og hún er sanngjörn. En raunveruleikinn er sá að fyrir mörg okkar eru tækifærin á vinnumarkaði takmörkuð, ekki vegna skorts á vilja, heldur vegna kerfa og viðhorfa sem setja hindranir í stað tækifæra. Tækifæri í stað hindrana Í umræðunni er stundum talað um „ranga hvata“, eins og fatlað fólk kjósi að vera utan vinnumarkaðar. Sú mynd stenst ekki. Flest viljum við vinna, að því marki sem aðstæður leyfa. Þegar fólk reynir að taka skref út á vinnumarkaðinn er því oft mætt með kerfi sem gerir þátttöku fjárhagslega áhættusama. Fyrir fólk með fullt örorkumat er almennt frítekjumark aðeins 105.200 krónur á mánuði. Fyrir marga dugar það vart fyrir lífeyrissjóðstekjum, hvað þá launatekjum. Þegar tekjur fara yfir þetta lága mark taka við skerðingar upp á 45 prósent. Nær helmingur af hverri krónu sem fólk vinnur sér inn hverfur. Ofan á það sem eftir stendur leggst skattur. Fyrir suma þýðir það að vinna skilar litlum sem engum fjárhagslegum ávinningi. Í raun þarf fólk þannig að borga sig inn á vinnumarkaðinn. Þetta bitnar sérstaklega á fólki með sveiflukennda sjúkdóma, svo sem gigt, ME, MS og geðraskanir, þar sem starfsgeta getur verið breytileg frá degi til dags. Í núverandi útfærslu virðist að nokkru leyti gert ráð fyrir að þeir sem vilja sameina vinnu og örorku geri það frekar innan hlutaörorku. Sú nálgun tekur ekki nægt tillit til fólks sem þarf fulla örorku vegna breytilegrar starfsgetu en vill engu að síður geta tekið þátt í vinnu þegar aðstæður leyfa. Fyrir þann hóp getur lágt frítekjumark orðið sérstök hindrun fyrir raunverulega þátttöku. Þetta eru ekki hvatar til þátttöku.Þetta eru hindranir. Vinnumarkaður sem er ekki móttækilegur Hindranirnar eru ekki aðeins fjárhagslegar. Þær felast einnig í því hvernig vinnumarkaðurinn er skipulagður. Of oft er gert ráð fyrir fullri og stöðugri starfsgetu, án þess að tekið sé tillit til þess að starfsorka getur verið breytileg. Fyrir marga er þátttaka í vinnu ekki spurning um vilja, heldur hvort vinnumarkaðurinn geri raunverulega ráð fyrir því að fólk geti tekið þátt á sínum forsendum. Í mörgum tilvikum þyrfti í raun mjög lítið til að fólk gæti haldið áfram að vinna. Meiri sveigjanleiki, möguleiki á að byrja smátt eða stigvaxandi endurkoma eftir veikindi gæti skipt sköpum. En þegar slík úrræði eru ekki til staðar verður niðurstaðan of oft sú að fólk fellur út af vinnumarkaði, ekki vegna skorts á getu, heldur vegna skorts á tækifærum. Að auki verður að auka framboð af hlutastörfum, bæði innan hins opinbera og á almennum vinnumarkaði. Skortur á slíkum störfum er ein af helstu hindrunum fyrir þátttöku. Aðgengi að menntun skiptir máli Fyrir fólk sem missir starfsorku vegna veikinda eða slysa getur menntun verið lykill að nýjum tækifærum. Hún getur opnað leiðir inn á störf sem reyna síður á líkamlega getu og aukið möguleika á þátttöku á vinnumarkaði. En einnig þar mæta margir hindrunum. Hækkun innritunargjalda í Háskóla Íslands úr 75.000 krónum í 100.000 krónur leggst þungt á hóp sem þegar býr við lága framfærslu. Þótt fatlað fólk fái 25 prósenta afslátt er hann takmarkaður þegar horft er til aðstæðna þessa hóps. Margir stunda nám með skerta starfsorku og eru því í hlutanámi yfir lengri tíma. Þeir greiða því gjöld oftar og lengur en þeir sem geta lokið námi á hefðbundnum tíma. Í reynd þýðir þetta að þessi hópur sem hefur lakari fjárhagsstöðu og færri tækifæri greiðir hlutfallslega meira fyrir menntun. Á sama tíma er menntun ein helsta leiðin til að auka möguleika til atvinnuþátttöku. Enginn veit að morgni dags hvernig dagurinn endar. Sum fatlað fólk er með meðfæddar skerðingar, en langflest missa starfsorku síðar á lífsleiðinni vegna veikinda eða slysa. Talið er að um þrjú prósent fæðist með skerðingar. Fatlað fólk er því fjölbreyttur hópur með ólíkan bakgrunn, menntun og starfsreynslu. Margir fara á örorku eftir að hafa aflað sér mikillar menntunnar og starfsreynslu, þar á meðal fjöldi háskólamenntaðra einstaklinga. Að útiloka þetta fólk frá vinnu er ekki aðeins ósanngjarnt, heldur einnig sóun á mannauð. Ef við viljum að hæfileikar þessa fólks nýtist þarf vinnumarkaðurinn að gera raunverulega ráð fyrir því, meðal annars með fjölbreyttum hlutastörfum og störfum við hæfi. Samstaða sem nær til allra Fatlað fólk stendur oft utan þeirra kerfa sem eiga að verja réttindi launafólks. Örorkulífeyristakar standa oft utan þeirra réttinda og stuðnings sem stéttarfélagsaðild getur veitt, meðal annars hvað varðar námsstyrki og önnur félagsleg réttindi. Það veikir stöðu hóps sem þegar stendur höllum fæti. Þá situr fólk sem missir starfsorku vegna veikinda eða slysa oft áfram uppi með námslán þrátt fyrir að hafa ekki lengur raunhæfa möguleika á að nýta menntun sína til atvinnu. Slík staða er ekki aðeins ósanngjörn heldur vinnur gegn markmiðum um þátttöku. 1. maí snýst um samstöðu. En hún er ekki sjálfgefin. Fatlað fólk er hluti af samfélaginu og verkalýðnum. Réttur til vinnu snýst ekki aðeins um tekjur, heldur einnig um þátttöku, sjálfstæði og mannlega reisn. Ef hópur fólks stendur frammi fyrir kerfislægum hindrunum á meðan aðrir njóta tækifæra, þá er samstaðan ekki fullkomin. Ef við ætlum að tala um réttlæti verðum við að tryggja að enginn sé skilinn eftir. Ef samstaða á að vera raunveruleg þarf hún að ná til allra. Tækifæri – JÁ TAKK! Þótt nóg sé af störfum skortir verulega á hlutastörf og sveigjanleg störf við hæfi sem gera fólki með skerta eða breytilega starfsgetu kleift að taka þátt í vinnumarkaði þar sem menntun og reynsla fái að njóta sín. Krafa okkar er einföld. Við viljum raunveruleg tækifæri til þátttöku á vinnumarkaði.Við viljum fleiri hlutastörf og sveigjanlegri vinnumarkað.Við viljum að vinna sé möguleg án þess að henni fylgi fjárhagsleg áhætta.Við viljum að kerfið styðji við þátttöku. Við biðjum ekki um ölmusu.Við krefjumst tækifæra. Tækifæri á vinnumarkaði – JÁ TAKK! Höfundur er meistaranemi í fötlunarfræði við Háskóla Íslands og starfandi formaður kjarahóps ÖBÍ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vinnumarkaður Mest lesið Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun