Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Rakel Sveinsdóttir skrifar 30. apríl 2026 07:00 Á næstu árum megum við búast við því að ýmsir stjórnendur, stjórnmálamenn og fleiri verði klónaðir af gervigreind til þess að sjá um ýmiss störf og verkefni, samskipti, greinaskrif, samninga og fleira. Vísir/Vilhelm Það er ólíklegt að gervigreindin leysi stjórnendur af hólmi. En nú þegar eru stjórnendur víðast hvar farnir að nýta sér gervigreindina í margvíslegum tilgangi.
Stundum til að besta verkefni en stundum einfaldlega til að geta sinnt betur meira áríðandi störfum. Sem þýðir þá að gervigreindin sér um rútínuverkefnin eða þau leiðinlegri, á meðan stjórnandinn sjálfur getur einbeitt sér að verkefnum sem teljast stærri, skemmtilegri eða mikilvægari. Þetta er þó að hafa bein áhrif á starfsmenn og ekki ólíklegt að þau áhrif eigi eftir að sýna sig á mörgum vinnustöðum næstu árin. Því samkvæmt rannsókn vísindamanna við tölvunarfræðideild Carnegie Mellon-háskólans mun atvinnulífið líklegast fara að klóna yfirmenn með gervigreind. Það sem þetta þýðir er að stjórnendur munu nýta sér stafræna staðgengla. Þessir stafrænu staðgenglar eru þá gervigreind sem er þjálfuð í samskiptum og ákvarðanatöku tengt viðkomandi stjórnanda. Klónaði yfirmaðurinn yfirtekur þá markvissar þessi leiðinlegu, minni eða ópersónulegu verkefni, svo stjórnandinn sjálfur geti einbeitt sér að hinum verkefnunum sem áður voru nefnd. Fyrir starfsfólk getur þetta þýtt svakalega breytingu. Sömuleiðis fyrir þróun vinnustaðamenningar. Eða hvar fólk velur að starfa. Því niðurstöður í fyrrnefndri rannsókn sýna að starfsfólk metur stjórnendur oft meira fyrir tilfinningagreind þeirra og persónulegan skilning, frekar en hæfni þeirra til að leysa verkefni eða sérfræðiþekkingu. Það sem vekur samt athygli í þessu er ekki aðeins sú staðreynd að stjórnun er á endanum mjög mannleg þegar á reynir, heldur það að mjög líklega eru klónaðir gervigreindaryfirmenn líklegir til að breyta verulega því hlutverki sem eftir stendur hjá stjórnendum. Um niðurstöðu rannsóknarinnar segir einn forsvarsmanna hennar til dæmis: „Ég tel að það sem við munum sjá sé ekki að yfirmenn hverfi, heldur að hlutverk þeirra breytist.“ Dæmi: Yfirmannsklóni getur séð um verkefni eins og að greina tölvupósta, skilaboð og fundargögn og lært hvernig stjórnandinn beitir sér í samskiptum eða tekur ákvarðanir. Yfirmannsklóni getur líka tekið þátt í fundum, svarað spurningum starfsmanna, samið skýrslur, greint fjárhagsáætlanir og sinnt ýmsum öðrum verkefnum. Ef stjórnandi kemst ekki á fund getur klóninn mætt í hans stað. Til að setja ofangreinda lýsingu í samhengi við önnur mál í umræðunni má til dæmis nefna gervigreindina sem þátttakanda í skrifum frambjóðenda eða fræðimanna. Eitthvað sem nokkuð hefur verið fjallað um þar sem sitt sýnist hverjum. Breytingin miðað við þessa klónun þýðir þá að aðkoma gervigreindarinnar eykst ef eitthvað er, til dæmis í skrifum frambjóðenda. En þá sem viðurkenndur klóni stjórnmálamannsins; sumsé, gervigreind sem hefur verið þjálfuð sérstaklega til að skrifa og beita sér í samskiptum eins og viðkomandi stjórnmálamaður. Fyrir atvinnulíf snýst þetta þó um mun meira þegar betur er að gáð. Því klónun yfirmanna mun mjög líklega hafa mikil áhrif á samskipti og menningu fólks almennt á vinnustöðum. Niðurstöður rannsóknarinnar voru kynntar sérstaklega á CHI 2026-ráðstefnunni sem haldin var í Barcelona í apríl, en CHI-ráðstefnan (Conference on Human Factors in Computing Systems) er árleg vísindaráðstefna sem telst ein sú virtasta í heimi samskipta tækni og manna. Lesa má nánar um niðurstöður hennar hér , en þar kemur meðal annars fram sú tilgáta vísindamanna að án efa verði sú þróun sýnileg á næstu árum að vinnumarkaðurinn muni skiptast svolítið í tvennt; Annars vegar vinnustaði sem munu taka þeirri þróun og tækifærum sem klónunin felur í sér fagnandi. Á meðan munu aðrir vinnustaðir sporna við þróuninni og leggja áherslu á mannlega nálgun í hvívetna. Spurningin sem aðeins framtíðin getur á endanum svarað er hins vegar: Hvor leiðin er betri?
Gervigreind Stjórnun Tengdar fréttir Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Sitt sýndist hverjum um stóra apa-sjálfumálið hér um árið. Sem endaði sem margra ára mál fyrir dómstólum. 24. apríl 2026 07:04 Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Við elskum flest velgengnissögur. Eins og til dæmis það að Marel hafi hér um árið keypt hátæknifyrirtækið Völku; nýsköpunarfyrirtæki sem framleiðir fiskvinnslulausnir fyrir alþjóðamarkað. 23. apríl 2026 07:01 Satt eða logið: Nýjar áskoranir fyrir neytendur og auglýsendur Ef það er hægt að tala um eitthvað smá trend í fjölmiðlum erlendis um þessar mundir, þá tengist það tilraunum tengdum gervigreindinni og jafnvel djúpfölsunum. Þar sem fjölmiðlarnir sjálfir, eða blaðamenn og ritstjórar, eru að prófa hversu raunverulegar djúpfalsanirnar eru. 31. mars 2026 07:00 Réttu tækifærin opnuðust þegar sumarstarfsmaður var ráðinn sem sendill „Ég hef svo oft farið á fyrirlestra um eitthvað spennandi efni og verið fullur tilhlökkunar. En síðan eru þetta svo fræðilegar umræður að eftir á situr alltaf eftir þessi hugsun: Og hvað á ég eiginlega að gera við þetta?“ nefnir Ingþór Ásgeirsson framkvæmdastjóri Hyundai. 20. mars 2026 07:02 Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? Stemningin í kringum gervigreindina fer vaxandi. Enda bætist sífellt í hóp notenda. Sem nú nýta hana fyrir flest; að gúggla er orðið gamaldags! 16. mars 2026 07:00 Mest lesið Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Húsnæði Kjötborgar til sölu Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Húsið sem næstum gleymdist: „Eins og kýlt í hjartað á mér“ Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Satt eða logið: Nýjar áskoranir fyrir neytendur og auglýsendur „Ég var geggjuð skvísa, en það er ekki mér að þakka“ „Svona samtöl snúast ekki um að skamma fólk fyrir fjarvistir“ „Mér er drull um vinnustað sem er drull um mig“ Það er enginn aumingjaskapur að halda ekki fókus Er sjálf besti leikmaðurinn: „Ég þurfti að gúggla mörkin hans“ Það getur allt gerst ef forstjórinn vakir fram yfir klukkan tíu Réttu tækifærin opnuðust þegar sumarstarfsmaður var ráðinn sem sendill „Við erum meira að segja hætt að hlusta í tölvupóstum“ Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? „Annar er létt geggjaður og skemmtilegur og hinn alveg grjótharður“ Þegar óvissa vegna breytinga vofir yfir í langan tíma Atvinnumennskan í útlöndum: Tekjur, tækifæri og margir hattar á höfði Í meistaranámi án stúdentsprófs: Kennarar til í breytingar en tröllið segir Nei Forstjóri Nova: Ekkert betra en brakandi hrein rúmföt eftir gufuna Sjá meira
Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Sitt sýndist hverjum um stóra apa-sjálfumálið hér um árið. Sem endaði sem margra ára mál fyrir dómstólum. 24. apríl 2026 07:04
Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Við elskum flest velgengnissögur. Eins og til dæmis það að Marel hafi hér um árið keypt hátæknifyrirtækið Völku; nýsköpunarfyrirtæki sem framleiðir fiskvinnslulausnir fyrir alþjóðamarkað. 23. apríl 2026 07:01
Satt eða logið: Nýjar áskoranir fyrir neytendur og auglýsendur Ef það er hægt að tala um eitthvað smá trend í fjölmiðlum erlendis um þessar mundir, þá tengist það tilraunum tengdum gervigreindinni og jafnvel djúpfölsunum. Þar sem fjölmiðlarnir sjálfir, eða blaðamenn og ritstjórar, eru að prófa hversu raunverulegar djúpfalsanirnar eru. 31. mars 2026 07:00
Réttu tækifærin opnuðust þegar sumarstarfsmaður var ráðinn sem sendill „Ég hef svo oft farið á fyrirlestra um eitthvað spennandi efni og verið fullur tilhlökkunar. En síðan eru þetta svo fræðilegar umræður að eftir á situr alltaf eftir þessi hugsun: Og hvað á ég eiginlega að gera við þetta?“ nefnir Ingþór Ásgeirsson framkvæmdastjóri Hyundai. 20. mars 2026 07:02
Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? Stemningin í kringum gervigreindina fer vaxandi. Enda bætist sífellt í hóp notenda. Sem nú nýta hana fyrir flest; að gúggla er orðið gamaldags! 16. mars 2026 07:00