Lengjum opnunartíma leikskóla Aron Ólafsson skrifar 29. apríl 2026 21:02 Ekki allir foreldrar vinna frá átta til fjögur. Ég skrifa þessa grein á meðan ég dvel á spítala með nýfædda dóttur mína og hugsa til þess að við sem samfélag ætlumst til þess að allskyns þjónusta sé í boði allan sólarhringinn en við gerum ekkert til að vinna með þeim sem vinna þessi störf. Það er kominn tími til að hugsa kerfið upp á nýtt. Lengjum opnunartíma leikskóla.Það er eitthvað bogið við borg sem segist styðja barnafjölskyldur en skipuleggur þjónustuna eins og allir foreldrar vinni sama vinnudaginn og festist aldrei í umferð til og frá vinnu. Foreldrar vinna ekki aðeins á hefðbundnum dagvinnutíma. Þeir vinna á vöktum, í heilbrigðisþjónustu, verslun, umönnun, þjónustu, ferðaþjónustu eða jafnvel bara frá níu til fimm. Sumir byrja snemma. Aðrir seinna. Margir vinna víða um borgina eða í nærliggjandi sveitarfélögum, með tilheyrandi ferðatíma til og frá vinnu. Líf margra foreldra passar því einfaldlega ekki við opnunartíma leikskóla, en samt er leikskólakerfið að miklu leyti byggt upp eins og allir vinni frá 8 til 16. Við þurfum ekki aðeins fleiri leikskólapláss. Við þurfum líka leikskóla sem virka fyrir venjulegt fólk. Þess vegna eigum við að ræða lengri opnunartíma af meiri alvöru. Í því samhengi er ástæða til að horfa til Svíþjóðar. Þar eiga sveitarfélög ekki aðeins að bjóða leikskólapláss innan tiltekins tíma, heldur einnig að leitast við að bjóða umönnun utan hefðbundins dagvinnutíma þegar þörf er á vegna vinnu foreldra og stöðu fjölskyldunnar. Í Svíþjóð er ekki nóg fyrir sveitarfélög að tryggja dagvistunarpláss heldur verður metnaðurinn að vera sá að fjölskyldur sem þurfa þjónustu á óhefðbundnum tímum fái hana. Sænska ríkið er meira að segja með sérstakt framlag til slíkrar umönnunar á kvöldin, næturnar og um helgar. Haustið 2024 voru 5.010 börn í Svíþjóð skráð í umönnun á óhefðbundnum tímum, það er á kvöldin, næturnar eða um helgar þegar hefðbundin leikskóla- eða frístundaþjónusta er ekki í boði. Slík þjónusta var þá til staðar í 155 af 290 sveitarfélögum landsins. Elsta dóttir mín byrjaði í sænskum leikskóla og Andreas uppáhalds kennarinn hennar sagði við mig að hann skildi ekki hvernig fólk sætti sig við íslenska leikskólakerfið, þar sem opnunartíminn og þar með vinnutíminn væri svo fastmótaður. Sjálfum þótti honum frábært að vinna ekki aðeins frá 8 til 16, heldur geta haft sveigjanlegri vinnudag á breytilegum vöktum og tekið sumarfrí þegar honum hentar eins og flest annað fólk á vinnumarkaðinum. Þannig byrjaði hann suma daga fyrr og aðra seinna, en átti morgun eða síðdegisvakt á nokkra vikna fresti. Við þurfum ekki að taka sænska kerfið upp óbreytt. En við getum lært af þeirri einföldu hugsun sem liggur þar að baki. Þjónustan á að laga sig að lífi fólks, ekki öfugt. Þegar opnunartími leikskóla mætir ekki þörfum fjölskyldna flækist púsluspilið sem þarf að ganga upp svo dagurinn gangi upp. Það hafa alls ekki allir bakland til að brúa bilið sem borgin fer fram á. Það er kannski ekki skrítið að streita fari vaxandi í samfélaginu okkar. Það er einfaldlega orðið of erfitt að púsla saman venjulegum degi. Umræðan um leikskóla má því ekki aðeins snúast um fjölgun plássa, eða koma börnum fyrr inn á leikskólann. Hún verður líka að snúast opnunartímann. Ef Reykjavík vill vera borg fyrir barnafjölskyldur þarf þjónustan að taka mið af lífi þeirra. Ekki bara lífi þeirra sem vinna frá 8 til 15:12. Höfundur er reykvískur þriggja barna faðir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar