Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 29. apríl 2026 12:54 Árásin átti sér stað við Golders Green. AP Tveir karlmenn af gyðingaættum voru stungnir í árás í norðurhluta Lundúna. Einn var handtekinn grunaður um árásina. Lögreglan hefur skilgreint árásina sem hryðjuverkaárás.
Karlmennirnir, sem eru á áttræðisaldri og fertugsaldri, voru báðir stungnir í hverfi sem breska ríkisútvarpið segir vera hverfi gyðinga. Þeir voru báðir fluttir á sjúkrahús en eru ekki taldir vera í lífshættu. Á upptöku úr eftirlitsmyndavél sést hvernig árásarmaðurinn nálgast mann sem stendur við rútuskýli. Hann neyðir manninn inn í skýlið. Árásin átti sér stað klukkan tuttugu mínútur yfir tólf á íslenskum tíma. Einn var handtekinn af lögreglu, 45 ára karlmaður, og er hann grunaður um tilraun til manndráps. Er lögregluna bar að garði reyndi maðurinn einnig að stinga fulltrúa lögreglunnar. Að endingu var hann skotinn með rafbyssu. Sérfræðingar í hryðjuverkadeild lögreglunnar leiða rannsóknina og kanna öll tengsl við hryðjuverk. Tveimur tímum eftir árásina staðfesti Laurence Taylor, yfirmaður hryðjuverkjalögreglunnar, að hún væri skilgreind sem hryðjuverk. Sadiq Khan, borgarstjóri Lundúnaborgar, segir í færslu á samfélagsmiðlum að viðvera lögreglu verði aukin á svæðinu. Ekki er langt síðan kveikt var í tveimur sjúkrabílum Hatzolah-samtakanna, sem er sjálfboðaliðaþjónusta gyðinga í neyðartilvikum. Keir Starmer, forsætisráðherra Breta, sagði árásina mikið áhyggjuefni. Rannsókn væri þegar hafin. Fréttin var uppfærð eftir að árásin var skilgreind sem hryðjuverk.
Bretland England Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Enginn aðdáandi Harry og Meghan Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi Sjá meira