Handbolti

Arnar Freyr öflugur í evrópskum Ís­lendinga­slag

Sindri Sverrisson skrifar
Arnar Freyr Arnarsson skoraði fjögur úr fjórum skotum í kvöld.
Arnar Freyr Arnarsson skoraði fjögur úr fjórum skotum í kvöld. Getty/Sanjin Strukic

Arnar Freyr Arnarsson og Reynir Þór Stefánsson fögnuðu fimm marka sigri í Íslendingaslag í kvöld, þegar þýska liðið Melsungen tók á móti Porto í Evrópudeildinni í handbolta.

Melsungen vann 28-23 en liðin mætast að nýju í Portúgal eftir viku.

Arnar Freyr var á meðal markahæstu manna Melsungen og skoraði úr öllum fjórum skotum sínum í kvöld en Reynir var ekki á meðal markaskorara að þessu sinni.

Hjá Porto var Þorsteinn Leó Gunnarsson ekki heldur á meðal markaskorara en skráður með tvö skot, á vef EHF.

Melsungen komst mest sex mörkum yfir í leiknum í kvöld, 17-11, en þá tók Porto góða rispu og minnkaði muninn í 19-18. Melsungen var hins vegar sterkara á lokakaflanum og fer með ágætt forskot í seinni leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×