Inga kemur Ingó til varnar Birgir Olgeirsson skrifar 27. apríl 2026 16:08 Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. Vísir/Vilhelm Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, kom tónlistarmanninum Ingó Veðurguð til varnar í Brotkasti, hlaðvarpi Frosta Logasonar. Hún gagnrýnir það sem hún kallar slaufunarmenningu og dómstól götunnar í garð hans. „
Þú þekkir þetta, hvernig þessi slaufunarmenning og hvernig þessi dómstóll götunnar og þessi viðbjóður getur farið með fólk,“ sagði Inga í þættinum. Hún nefndi Ingó sérstaklega í því samhengi. „Ingó Veðurguð, okkar yndislega flotta mann og tónlistarmann og bara í rauninni, hann er fjársjóður þessi maður,“ sagði Inga. Hún gagnrýndi framkomu fólks í garð hans, meðal annars vegna umræðu um góðgerðartónleika. „Hvernig er verið að haga sér gagnvart honum, jafnvel þegar hann er bara með góðgerðartónleika og annað slíkt. Ég kann ekki við svona, mér leiðist svona samfélag, mér leiðist svona illgjarnt fólk sem situr við tölvuna bara til þess að níða skóinn af öðrum,“ sagði Inga. Inga sagði að fólk ætti ekki að haga sér eins og Ingó væri sekur án dóms. „Var maðurinn dæmdur til dæmis? Var Ingó dæmdur fyrir eitthvað? Nei. Af hverju er þá verið að láta eins og hann sé sekur um ekkert?“ sagði Inga. Inga vísaði í framhaldinu til laga og sakleysisreglunnar. „Við erum með löggjöf. Og til dæmis í almennum hegningarlögum, fyrstu grein. Það eru allir saklausir uns sekt hefur verið sönnuð á viðkomandi fyrir óvilhöllum dómstólum,“ sagði Inga. Hún sagði samfélagið ekki eiga að byggjast á „dómstóli götunnar“. „Það er ekki verið að biðja um dómstól götunnar, við erum ekki hérna á Sturlungaöld, auga fyrir auga, tönn fyrir tönn,“ sagði Inga. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Inga kemur Ingólfi til varnar. Sumarið 2021 sagði hún á Alþingi að ekki væri hægt að taka fólk „úr umferð án dóms og laga“ í umræðu sem sneri að Ingó. RÚV greindi þá frá því að ummælin hefðu fallið í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi, daginn eftir að fjallað hafði verið um Ingólf.
Mál Ingólfs Þórarinssonar Flokkur fólksins Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Sjá meira