Meðvituð blekking um og upplýsingaóreiða um fullveldið Kristinn Karl Brynjarsson skrifar 27. apríl 2026 14:02 Það er ömurlegt að fylgjast með þeirri upplýsingaóreiðu sem nú er haldið á lofti um Evrópumál af forystufólki í stjórnmálum sem segist treysta þjóðinni. Í stað þess að ræða af hreinskilni um það mikla valdaafsal sem full aðild að Evrópusambandinu felur í sér, er gripið til áratugagamalla mýta og sögufölsunar til að gera aðildina nánast óumflýjanlega í augum almennings. Það hlýtur því að liggja beinast við að álykta sem svo að traustið til þjóðarinnar risti ekki dýpra en það, að henni sé ekki treyst fyrir réttum upplýsingum. Ein lífseigasta blekkingin er sú fullyrðing að Ísland hafi þegar innleitt „meirihluta“ eða allt að 80% af öllu regluverki ESB í gegnum EES-samninginn. Þessi tala á rætur sínar í yfir tuttugu ára gömlum misskilningi sem löngu hefur verið hrakinn. Raunveruleikinn er sá, samkvæmt skýrslu utanríkisráðuneytisins, Gengið til góðs frá árinu 2018, að hlutfall innleiddra gerða nam aðeins 13,4% af heildarfjölda ESB-gerða á tímabilinu. Það er því verið að blása hlutfallið upp um meira en sexfaldan raunverulegan fjölda til að blekkja kjósendur. Að halda þessari mýtu á lofti í dag eru ekki „mistök“. Það er meðvituð pólitísk blekking. Með því að telja fólki trú um að við séum þegar „nánast gengin inn“, er reynt að gera raunverulegt fullveldisafsal að formsatriði. Það er gert lítið úr þeirri staðreynd að við höfum enn fullt ákvörðunarvald yfir okkar dýrmætustu auðlindum; sjávarútvegi, landbúnaði og sjálfstæðri peningastefnu. Sömuleiðis er það algjör afvegaleiðing að bera stöðu okkar í dag saman við ferli Norðmanna fyrir rúmum þremur áratugum. Verklag ESB og skipulag aðildarviðræðna hefur tekið grundvallarbreytingum. Ólíkt því sem áður var, þá fer raunveruleg aðlögun að regluverki sambandsins nú fram jafnóðum í ferlinu. Þetta er ekki lengur spurning um að „kíkja í pakkann“ og ákveða sig svo; ferlið hreinlega stöðvast ef umsóknarríki dregur fæturna í að innleiða kröfur ESB á meðan viðræðum stendur. Þetta gerir ferlið miklu bindandi og dýpra en það var árið 1994. Það fólk sem talar fyrir aðild er hvorki ólæst né illa upplýst. Það veit nákvæmlega að leikreglurnar í Brussel hafa breyst og að tölfræðin um innleiðingarnar er fölsuð. Þegar það kýs samt sem áður að nota úrelta samanburði og rangfærslur, hlýtur maður að spyrja: Hvers vegna þarf að nota blekkingar til að selja þjóðinni eitthvað sem að hún á eftir að hagnast svo mikið á, að sögn þeirra er tala fyrir aðild? Höfundur er formaður Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kristinn Karl Brynjarsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar