Rangárþing eystra í atvinnusóknarsvæði höfuðborgarsvæðisins Inger Erla Thomsen skrifar 27. apríl 2026 11:48 Í Rangárþingi eystra er sterkt atvinnulíf og hér erum við öflug í mikilvægum atvinnugreinum. Íbúar sveitarfélagsins eru með þeim fremstu á landsvísu í ferðaþjónustu, landbúnaði og matvælaframleiðslu, og þær atvinnugreinar þarf að hlúa að og efla. Atvinnulífið gæti þó vel verið fjölbreyttara þrátt fyrir að tækifærin hafi aukist undanfarið, m.a. með flutningi Náttúruverndarstofnunar í sveitarfélagið. Við þurfum að vinna markvisst að því að auka hér tækifæri fólks til atvinnu og náms. Fyrst og fremst svo að ungt fjölskyldufólk sjái raunverulega fram á að geta sest hér að. Grunnurinn að því er að byggja hér upp aðstöðu til fjarvinnu en það er nauðsynleg framtíðarsýn til að halda hér sjálfbærri byggð sem er ekki háð fáum atvinnugreinum og sveiflunum sem þeim kann að fylgja. Raunhæfur möguleiki Í Rangárþingi eystra er yndislegt að búa og sveitarfélagið er mörgum eftirsóknarverðum kostum gætt. Hér höfum við glæsilegan nýja leikskóla, frábæran grunnskóla, öflugt íþróttastarf og tónlistarlíf sem er engu líkt, svo eitthvað sé nefnt. Það sem er þó eftirsóknarverðast er kyrrðin og nándin við náttúruna. Við flýtum okkur hægar hér en á höfuðborgarsvæðinu, ysið og þysið er minna, og svo er alltaf ótrúlega gaman alls staðar þar sem Rangæingar koma saman. Við erum líka aðeins um 100 km frá Reykjavík, sem er fullkomin fjarlægð og nógu stutt til að skreppa reglulega í bæinn. Það liggur því auðvitað beinast við að fólk flytjist hingað, vinni fjarvinnu frá höfuðborgarsvæðinu og leggi leið sína í bæinn ef þörf er á. En raunin er því miður önnur og við missum allt of mikið af góðu fólki héðan. Undirrituð fluttist í sveitarfélagið fyrir nokkrum árum, hefur sest hér að og ætlar sér ekki að fara neitt. Ég gæti þó hins vegar neyðst til þess að flytja héðan ef tækifæri til atvinnu skerðast með takmarkaðri fjarvinnuaðstöðu, og upp kæmi sú staða að ég geti ekki nýtt mér þá menntun sem ég hef héðan. Sjálf skrifaði ég tvær lokaritgerðir í háskóla héðan frá Hvolsvelli og starfa í fjarvinnu frá höfuðborgarsvæðinu, ég þekki það því af eigin raun hvaða fjölmörgu möguleikar hér eru. En ég var líka heppin að fá hér góða skrifstofuaðstöðu, sem ég er þakklát fyrir enda var ég orðin gríðarlega einangruð á tímabili. Það var því mikil björg fyrir mig að fá að leigja aðstöðu og fá tækifæri til að hitta og kynnast því góða fólki sem er þar. En aðstaðan sem er til staðar í Ráðhúsi Rangárþings eystra, þangað sem Náttúruverndarstofnun fluttist, er takmörkuð og býður ekki upp á m.a. skammtímaleigu eða samskonar leigu og er víða í vinnustaðaklösum. Ef við viljum fjölga tækifærunum og gera fjarvinnu að raunverulegum möguleika þá þarf að opna sérstaka aðstöðu, með fjölda borða og fjölbreyttum leigumöguleikum. Sameiginlegt markmið ríkis og sveitarfélaga Markmið aðgerðaráætlunar byggðaáætlunar er að auka búsetufrelsi með fjölgun atvinnutækifæra og auknum fjölbreytileika starfa á landsbyggðinni, til að stuðla að því úthlutaði innviðaráðherra 50 milljónum núna í mars í styrki til uppbyggingar á vinnustaðaklösum á landsbyggðinni. Við viljum ekki að Rangárþing eystra sofni á verðinum í þessum málum en það eru gríðarleg tækifæri fólgin í því fyrir sveitarfélagið að stuðla að opnun slíks vinnustaðaklasa eða fjarvinnu- og námsseturs, jafnvel í samstarfi við aðrar stofnanir og fyrirtæki. Vinnustaðaklasar á borð við Stéttina á Húsavík og Múlann samvinnuhús í Neskaupstað eru góð dæmi sem Rangárþing eystra gæti tekið sér til fyrirmyndar. Í félagsheimilinu á Borgarfirði eystri hefur Múlaþing opnað glæsilega vinnuaðstöðu, Setrið, sem er frábært lausn. Rangárþing eystra gæti gert sambærilega vinnustofu og slegið tvær flugur í einu höggi með því að nýta félagsheimilin betur. Bæði nútíminn og langtíma framtíðarsýn Hér í Rangárþingi eystra er ofboðslega gott að búa, stofna til fjölskyldu, ala upp börn og eldast en við þurfum að gefa í á mörgum sviðum til að vera framúrskarandi. Glæsileg fjarvinnuaðstaða væri meðal annars feiknastórt skref í rétta átt og myndi færa sveitarfélagið allt nær atvinnusóknarsvæði höfuðborgarsvæðisins. Aðstaða sem þessi myndi auka tækifæri til atvinnu fyrir fólkið sem býr núþegar í Rangárþingi eystra, og laða hingað fólk sem sækist í rólegt líf og vill starfa í nánd við náttúruna og í hæfilegri fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Fólk vill í auknum mæli vinna óstaðbundið en það eykur ekki aðeins vellíðan heldur er það líka umhverfisvænt og minnkar álag á innviði. Þetta er langtíma framtíðarsýn sem við verðum að láta verða af sem fyrst. Þannig fáum við hingað ungt fjölskyldufólk með alls konar færni og þekkingu, og aukum tækifærin um allt okkar víðfema og fallega sveitarfélag. Höfundur er stjórnmálafræðingur og frambjóðandi N-listans í Rangárþingi eystra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar