Formúla 1

Betur fór en á horfðist er faðir Ver­stappen lenti í ó­happi

Aron Guðmundsson skrifar
Jos Verstappen með syni sínum, Formúlu 1 ökuþórnum Max Verstappen
Jos Verstappen með syni sínum, Formúlu 1 ökuþórnum Max Verstappen Vísir/Getty

Jos Verstappen, faðir fjórfalda Formúlu 1 heimsmeistarans Max Verstaððen, slapp ómeiddur frá óhappi sem átti sér stað en hann tók þátt í rallýkeppni í Belgíu mu helgina. 

Jos þurfti að hætta keppni í Rallye de Wallione eftir að hafa misst stjórn á bíl sínum og ekið á tré á einni sérleið rallsins. 

Jos sem á yfir að skipa ferli sem atvinnuökumaður, meðal annars í Formúlu 1, slapp ómeiddur frá óhappinu og það sama má segja um aðstoðarökumann hans Jasper Vermeulen. 

Myndir af vettvangi sína gjörónýtan bíl Verstappen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×