„Sælla er að gefa en þiggja“ – Hvað getum við lagt til innan ESB? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar 26. apríl 2026 12:00 Við viljum og gerum kröfu til að við náum góðum samningum sem tryggja betur öryggi og viðskiptafrelsi Íslands, sem leiða þá einnig til sambærilegra vaxta og sterkari samkeppnishæfni. En við skulum líka staldra við og spyrja annarrar spurningar: Getum við, þótt smá séum, lagt eitthvað af mörkum sem skiptir máli? Reynslan bendir til þess. Íslendingar hafa á undanförnum áratugum haft áhrif í alþjóðlegri umræðu, hvort sem er í stjórnmálum, friðun fiskistofna, orkumálum eða friðarumleitunum. Þar má nefna menn eins og Ólafur Ragnar Grímsson og Jón Baldvin Hannibalsson, sem sýndu að rödd lítillar þjóðar getur haft mikið vægi. Samstarf snýst um meira en eigin stundarhag Skiljanlega spyrjum við: Hvað fáum við út úr þessu? En hvað segir máltækið: „Sælla er að gefa en þiggja.“Rannsóknir í sálfræði benda til þess að fólk upplifi meiri vellíðan og sterkari tengsl þegar það fær tækifæri til að gefa og leggja öðrum lið. Sama gildir um samfélög. Það er pláss fyrir okkur öll í heimi þar sem ríkir friður. Sterk tengsl, hvort sem er milli einstaklinga eða þjóða, byggjast á trausti, samvinnu og vilja til að aðstoða þegar á þarf að halda. Við vitum að við stöndum saman þegar á reynir og njótum þess að vinna og gleðjast saman þegar vel gengur. Hvað getur Ísland lagt til? Þótt Ísland sé lítið land höfum við margt fram að færa. Ekki aðeins auðlindir, heldur menningu, reynslu og þekkingu. Nefnum hér nokkur dæmi: Menning og tungumál Við höfum varðveitt lifandi tungumál og sterka menningu í gegnum aldir. Það er ekki sjálfgefið. Við viljum styðja góð gildi þjóða. Friður og samfélagslegt traust Ísland er eitt friðsælasta samfélag í heimi. Hér ríkir traust og skilningur á því hvað friðurinn er mikilvæg stoð til velsældar í öllum samfélögum. Það þarf að efla á heimsvísi hugarfar friðar. Jöfnuður og samstaða Við höfum lagt áherslu á jöfn tækifæri og félagslegt öryggi. Það eru gildi og menning sem þarf að halda á lofti með öðrum Norðurlöndum og treysta enn betur innan ESB. Menntun og þekking Við höfum byggt upp sterkt menntakerfi þar sem læsi og aðgengi að námi eru grunnstoðir. Lykill að því að allir hafi tækifæri til að öðlast góða menntun og tækifæri til fjölbreyttari atvinnu, sem við getum svo nýtt enn betur í samvinnu við ESB löndin. Listir og sköpunarkraftur Íslensk list og tónlist hafa náð langt út fyrir landsteinana. Sköpun er hluti af okkar sjálfsmynd og við getum opnað enn fleiri tækifæri. Sjómennska og sjálfbær nýting Við höfum þróað þekkingu á sjálfbærri nýtingu sjávarauðlinda sem hefur vakið athygli víða. Hvernig getum við nýtt þá þekkingu til að selja þjónustu á stærri markaði? Tækni og lausnir Íslendingar hafa skapað lausnir í krefjandi aðstæðum, m.a. í orkumálum, stafrænum innviðum og matvælaframleiðslu. Hvaða atvinnutækifæri eru þar? Björgunarsveitir og samhjálp Sjálfboðaliðastarf björgunarsveita er einstakt. Þar birtist vilji til að hjálpa án þess að spyrja hvað fæst í staðinn. Ef við lengdum í stærri náttúrulegum áföllum þurfum við víðtækan stuðning, en við getum strax miðlað okkar þekkingu og reynslu til að stuðla að öflugri björgunarsveitum innan ESB Styrkur felst í framlagi Það er ekki stórmannlegt að hugsa eingöngu um það hvað við fáum. Slík nálgun er ekki gefandi og skapar ekki betri heim. Styrkur felst í því að við séum stolt af því sem við höfum byggt upp og getum lagt til annarra þjóða. Öðlast vináttu þeirra og virðingu. Það mun til langrar framtíðar verða farsælt og gefa okkur margfalt til baka þegar við þurfum á stuðningi að halda. Spurningin sem skiptir máli Það er því ljóst að við eigum ekki aðeins að spyrja: Hvað fáum við? Heldur er ekki síður mikilvægt að hafa í huga í samningum: Hvað getum við gefið? Það er okkar styrkur og ef vel er að verki staði þá mun okkar menning og þekking hafa áhrif til friðar og meiri velsældar fyrir allan inna ESB. Munum að í dag eru Finnar innan ESB og þeir mælast hamingjusamari en við Íslendingar. Fáum að sjá samninginn. Höfundur er Qigong kennari og stjórnarmaður í öldungaráði Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar