Flest mörk í 67 ár Valur Páll Eiríksson skrifar 24. apríl 2026 20:01 KR-ingar hafa byrjað tímabilið einkar vel, sérstaklega sóknarlega. Vísir/Guðmundur Segja má að KR hafi haldið uppi fjörinu í upphafi móts í Bestu deild karla í fótbolta. Liðið hefur skorað 14 mörk í fyrstu þremur umferðunum en lið hefur ekki skorað svo mörg í byrjun móts frá árinu 1959.
Margumtalað er að KR séu skemmtikraftar deildarinnar eftir fyrstu þrjár umferðirnar. Liðið er það eina sem hefur skorað mörk í tveggja stafa tölu hingað til. Allir þrír leikirnir hafa unnist; 3-2 gegn Keflavík, 5-2 gegn Þór og síðast 6-2 gegn ÍBV í Vestmannaeyjum. KR er eitt á toppnum með fullt hús. KR hefur skorað 14 mörk í fyrstu þremur leikjum deildarinnar og níu leikmenn liðsins eru komnir á blað. Þeir hafa á móti fengið á sig tvö mörk í hverjum leikjanna þriggja. Að meðaltali hafa því verið skoruð 6,7 mörk í leikjum KR í upphafi móts. Víðir Sigurðsson, fyrrverandi ritstjóri íþrótta hjá Morgunblaðinu, vekur athygli á því á Facebook-síðu sinni að ekkert lið hafi skorað svo mikið í upphafi móts síðan árið 1959. „Vesturbæingarnir hafa skorað 14 mörk og eru fyrsta liðið til að afreka það í fyrstu þremur umferðunum í 67 ár, eða frá árinu 1959,“ segir Víðir í stöðuuppfærslu á Facebook. „Þá voru það einmitt KR-ingar sem skoruðu 15 mörk í fyrstu þremur leikjunum, unnu Keflavík 3-2, Þrótt 5-0 og Fram 7-0, og urðu Íslandsmeistarar með fullu húsi stiga. Fimmtán mörkin eru met frá stofnun deildakeppninnar árið 1955.“ „Þetta er þó ekki met á Íslandsmótinu því Valsmenn skoruðu 21 mark í fyrstu þremur leikjum sínum á Íslandsmótinu árið 1934, unnu þá m.a. Víking 13-1, og það met verður væntanlega seint slegið,“ segir Víðir. KR-ingar verða næst í eldlínunni á mánudagskvöldið þegar FH kemur í heimsókn á Meistaravelli. FH er með eitt stig eftir fyrstu þrjá leiki liðsins í deildinni.
KR Besta deild karla Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira