„Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ Valur Páll Eiríksson skrifar 24. apríl 2026 23:15 Albert Brynjar segir metnaðarlaust ef Blikar sækja ekki sóknarmann fyrir gluggalok. Sóknarþenkjandi leikmenn liðsins skuldi betri frammistöðu. Vísir/Sýn Sport Albert Brynjar Ingason segir Óla Val Ómarsson skulda Breiðabliki betri frammistöðu í Bestu deild karla. Hann fer hörðum orðum um sóknarleik Blikanna.
Breiðablik hefur skorað tvö mörk í Bestu deildinni í fyrstu þremur leikjunum. Liðið gerði 1-1 jafntefli við Víking, vann ÍA 1-0 og gerði svo markalaust jafntefli við Keflavík í þungum leik á þungum grasvelli í Reykjanesbæ á miðvikudagskvöldið var. „Þetta var mjög þungur leikur. Það var eiginlega bara tvennt sem gladdi mig í þessum leik. Það var þegar Sigurður Hjörtur flautar til hálfleiks. Og svo þegar Sigurður Hjörtur flautar af,“ segir Albert og bætir við: „Þetta var alveg hrottalega slakur leikur. Ég er sammála Óla að þegar leið á leikinn fóru Blikar að þora að halda meira í boltann og komast í ákveðnar stöður en þetta var rosalega flatt.“ Óli Valur skuldar, samkvæmt Alberti Brynjari.Vísir/Diego Óli Valur Ómarsson hefur ekki heillað eftir fína byrjun með Blikum á síðustu leiktíð en hann kom til Breiðabliks frá Stjörnunni á síðasta ári. „Þá kannski komum við inn á Óla Val. Það er hann sem þarf að eiga miklu betra tímabil en hann átti í fyrra ef Blikar ætla að gera eitthvað í ár,“ segir Albert sem stiklaði svo á stóru með meðfylgjandi myndefni á frammistöðu Óla Vals í leiknum. „Þetta eru 27 leikir (sem Óli Valur hefur spilað) fyrir Breiðablik í Bestu deildinni, þrjú mörk og ein stoðsending. Hann skoraði síðast 3. júlí 2025. Hann lagði upp síðast 3. maí. Þetta er bara dýr leikmaður sem skuldar. Þetta er bara ekki nægilega gott fyrir lið sem ætlar að berjast um titilinn.“ Klippa: Blikar slakir og segir Óla Val skulda Albert bendir á að auk Óla Vals skuldi Ágúst Orri Þorsteinsson, annar kantmaður liðsins, sem skoraði aðeins eitt mark á síðustu leiktíð. „Ég trúi því bara ekki að Blikar ætli að fara í gegnum þennan glugga án þess að sækja sóknarþenkjandi leikmann. Það er ekkert annað en metnaðarleysi,“ segir Albert. Umræðuna úr Stúkunni má sjá í spilaranum.
Breiðablik Besta deild karla Stúkan Íslenski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira