Skítsama hvort Mbappé líki við Mourinho eða Juliu Roberts Sindri Sverrisson skrifar 24. apríl 2026 09:01 Kylian Mbappé og Álvaro Arbeloa munu líklega ekki halda áfram að starfa saman á næstu leiktíð. Getty/Sven Hoppe Álvaro Arbeloa, stjóri Real Madrid, segist ekki ætla að kippa sér upp við það þó að Kylian Mbappé, ein helsta stjarna liðsins, setji þumalinn upp gagnvart orðrómi um að José Mourinho gæti orðið næsti stjóri Real.
Mikil umræða er á Spáni um það hver verði næsti stjóri Real og ólíklegt þykir að Arbeloa haldi áfram um stjórnartaumana, eftir að hafa tekið við þegar Xabi Alonso var rekinn í janúar. Undir stjórn Arbeloa féll Real strax úr leik í spænska bikarnum og einnig nýverið úr Meistaradeild Evrópu, í spennandi einvígi við Bayern München, og þá er liðið níu stigum á eftir Barcelona í spænsku 1. deildinni. Þess vegna bendir allt til þess að nýr maður mæti í brúna hjá Real í sumar og einn af þeim sem hefur verið nefndur sem kandídat er Mourinho, sem nú er stjóri Benfica. Portúgalinn stýrði Real á árunum 2010-13 og setti liðið þá met þegar það náði 100 stigum í spænsku deildinni auk þess að vinna spænska bikarinn og ofurbikarinn. Mbappé virðist hrifinn af því að fá Mourinho því hann „lækaði“ færslu á samfélagsmiðlum um að Mourinho væri kandídat í stjórastarfið hjá Real. Í færslunni voru meðal annars myndir af Mourinho og Cristiano Ronaldo frá fyrri tímum og svo myndir af Mourinho og Mbappé í dag, og gefið í skyn að Mbappé gæti náð sömu hæðum undir stjórn Portúgalans eins og Ronaldo gerði á sínum tíma. View this post on Instagram A post shared by Score 90 (@score90) Arbeloa var spurður út í þetta „læk“ Mbappé á blaðamannafundi en vildi sem minnst úr því gera: „Þetta eru hlutir sem ég spái ekki einu sinni í. Það skiptir mig ekki máli þó að hann láti sér líka við Mourinho, Juliu Roberts eða nokkurn annan. Það hefur enga merkingu,“ sagði Arbeloa. Hvernig þjálfaranum datt í hug að nefna bandarísku leikkonuna Juliu Roberts í þessu sambandi liggur ekki fyrir.
Spænski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Sjá meira