Erlent

Fjórir í lífs­hættu eftir lestar­slys í Dan­mörku

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Framendar lestanna skullu saman.
Framendar lestanna skullu saman. Ritzau Scanpix

Tvær farþegalestir skullu saman skammt frá Hillerød á Sjálandi í Danmörku. Fjórir farþegar eru í lífshættu og alls hafa sautján verið fluttir til aðhlynningar á sjúkrahúsi.

Samkvæmt umfjöllun TV2 barst viðbragðsaðilum tilkynning um lestarslys klukkan hálf sjö í morgun að staðartíma. Tvær lestir á leið sinni hvor úr sinni áttinni til Hillerød á norðanverðu Sjálandi höfðu skollið saman við leiðamót.

Fjöldi viðbragðsaðila er á vettvangi.Ritzau Scanprix

Öllum farþegum hefur verið komið úr lestunum tveimur en ljóst er af myndum af vettvangi að höggið hefur verið þungt.

Ekkert liggur fyrir mögulegar orsakir slyssins enn sem komið er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×