Má vera gamalt ef það hentar mér Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 22. apríl 2026 06:31 Misbeiting tungmálsins í póltískum tilgangi var Sigurði Kristni Pálssyn, fyrrverandi framkvæmdastjóra, umhugsunarefni í grein sem birtist á Vísi nýverið. Kaus hann að nefna sem dæmi að andstæðingar inngöngu í Evrópusambandið kölluðu viðræður í þeim efnum aðlögunarviðræður en ekki aðildarviðræður og vísaði þar til enska orðalagsins „accession negotiations“. Veruleikinn er hins vegar sá að hugtakið aðlögunarviðræður er miklu meira lýsandi fyrir það út á hvað slíkar viðræður ganga miðað við gögn sambandsins en aðildarviðræður. Sem sagt mun betur upplýsandi fyrir kjósendur. „Þetta snýst að miklu leyti um það að aðlaga löggjöf umsóknarríkisins að löggjöf Evrópusambandsins,“ sagði Marta Kos, stækkunarráðherra sambandsins, í samtali við norska ríkisútvarpið NRK 21. maí síðastliðinn um ferlið sem fer í gang þegar ríki sækir um inngöngu í það. Þetta er sem fyrr segir í fullu samræmi við gögn Evrópusambandsins í þessum efnum. Þar á meðal gögn þess í tengslum við umsókn Íslands sem skilað var inn árið 2009 og nú stendur til að endurlífga. Til að mynda í viðræðuramma sambandsins vegna umsóknar landsins sem viðræðurnar þurfa að rúmast innan. Til dæmis segir í spurt og svarað á vef Evrópusambandsins: „Upptaka og innleiðing regluverksins er grundvöllur viðræðnanna. […] Hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig fer eftir því hversu fljótt hvert ríki kemur á umbótum og aðlagast regluverki sambandsins. […] Markmið viðræðnanna er að umsóknarríkið taki upp regluverkið eins og það leggur sig.“ Í viðræðurammanum segir:“ Rétt innleiðing Íslands á regluverkinu og framkvæmd þess, þ.m.t. árangursrík og skilvirk beiting af hálfu viðeigandi stofnana á sviði stjórnsýslu og dómsmála, mun ákvarða hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig.“ Hins vegar er ekki nóg með að þetta komi fram í gögnum Evrópusambandsins, og sé auk þess í fullu samræmi við reynslu umsóknarríkja að sambandinu, heldur kemur þetta beinlínis fram í greinargerðinni með þingsályktunartillögu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar, um fyrirhugað þjóðaratkvæði. „Á það er gjarnan bent að aðildarviðræður við ESB snúist um að ný aðildarríki lagi sig að reglum sambandsins. Má þetta til sanns vegar færa, enda væri Ísland að ganga í ríkjabandalag með fyrirliggjandi reglum,“ segir þannig í greinargerð ráðherrans. Vert er að halda því til haga að hér er í öllum tilfellum um að ræða mjög nýlegar upplýsingar en Sigurður kvartar mikið yfir því í grein sinni að andstæðingar inngöngu í Evrópusambandið vísi í tilvitnanir í forystumenn sambandsins á undanförnum árum án þess þó að sýna fram á með nokkrum hætti að þær eigi ekki eins við í dag og þegar þau orð voru látin falla. Sjálfur vísar hann síðan meðal annars í skýrslu Evrópunefndar forsætisráðherra frá árinu 2007 sem er enn eldri en allt það sem hann sakaði pólitíska andstæðinga sína um að vísa í og vildi meina að væri úrelt án alls haldbærs rökstuðnings. Til að mynda var Sigurði sérstaklega uppsigað við tilvitnun í Uffe heitinn Ellemann-Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur, þar sem hann sagði í samtali við mbl.is 2018 að við Íslendingar vissum fullkomlega hvað væri í pakkanum og ef okkur litist ekki á það væri bezt fyrir okkur að standa áfram utan Evrópusambandsins. Rifjaði hann réttilega upp að Ellemann-Jensen hefði einnig sagt að tekið væri tillit til hvers ríkis. Með öðrum orðum þá vitum við með hvaða hætti er í boði að taka tillit til okkar enda pakkinn opinn. Til dæmis engar varanlegar undanþágur frá yfirstjórn sambandsins. Mjög sérstakt er fyrir vikið að sjá Sigurð kalla eftir umræðu byggðri á „núverandi veruleika, heildstæðum heimildum og heiðarlegri framsetningu.“ Það færi því vitanlega afar vel á því að hann byrjaði á því að líta í eigin barm í þeim efnum. Deginum ljósara er af skrifum Sigurðar að vandamálið að hans mati er ekki það að verið sé að vitna í heimildir sem séu gamlar, þó sem fyrr segir sem enn eru í fullu gildi, heldur sem henta ekki hans pólitíska málstað. Sjálfur telur hann ljóslega á sama tíma ekkert því til fyrirstöðu að skírskota til enn eldra efnis ef hann telur það vera málstað hans til framdráttar. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar